Austri - 25.11.1999, Blaðsíða 8
Langbylgjumastrið á Eiðum
Lætur í sér
heyra
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri tók formlega í notkun lang-
bylgjusendinn á Eiðum 18. nóv. sl.
Er hann annar af tveim sendum sem
nýlega hafa verið teknir í notkun. Er
hinn staðsettur á Gufuskálum, og
var sá gangsettur 8.sept.l997.
Munu þeir stórauka öryggi og þjón-
ustu við landsmenn þar sem útsend-
inga FM nýtur ekki við, og sérstak-
lega munu sjófarendur njóta góðs af.
Er nýi sendirinn á Eiðum mikið
mannvirki, mastrið er
220 m. hátt og tryggir
betri hljómgæði með
hæð sinni, og ný
tækni leiðir til lægri
bilanatíðni og minni
viðhaldskostnaðar.
Búið er að innleiða
tölvutæknina í stað
lampa sem áður voru
notaðir í svo öflugum
sendum. Þessartvær
langbylgjustöðvar
þjóna öllu landinu,
Gufuskálar senda út
með 300kW styrk á
tíðninni 189kHz og
Eiðar með 1 OOkW
styrk á tíðninni 207
kHz. Hafa sendingar
þeirra náðst í Noregi
og Nýfundnalandi
svo dæmi séu tekin
um aflið. A Eiðum
hefur verið lang-
bylgjusendir síðan
1938.
Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri, ræsir sendinn.
Austr
Beinn útflutningur
og farþegaflug
Fyrir stuttu var á Egilsstöðum
stofnað Flugfélag sem ber hið
þjóðlega nafn Flugfélagið Jökull.
Undirbúningur að stofnun félags-
ins er nokkur, fundir hafa verið
haldnir og menn fengnir til að
koma og útskýra möguleika í flug-
rekstri, kosti og galla. Stefán
Jóhannsson, stjórnarformaður,
segir mikinn hug vera í fólki, og
kom maður frá viðskiptadeild
Utanríkisráðuneytisins á stofn-
fundinn. Stofnfélagar voru hátt í
30, og bar þar mest á fólki úr
ferðaþjónustu, verslun og fisk-
framleiðendum, en skortur á beinu
fraktflugi hefur gert austfirskum
fiskframleiðendum erfitt um vik
þegar kemur að beinum útflutningi
á ferskvöru. Félagið mun beita sér
fyrir því að markaðssetja Egils-
staðaflugvöll, og er það nú að
leita að samstarfsaðilum erlendis
til að fljúga hingað. Stefán segir
helst litið til Norðurlandanna, Nor-
egs, Danmerkur og Færeyja um
samstarf þegar kemur að fluginu,
en mörg önnur mál eru á dagskrá
Flugfélagsins Jökuls. Flugskóli,
frístundagarður, tengsl við Vestur-
Islendinga í Kanada, og Eiðastóll
og afdrif hans eru meðal atriða
sem flugfélagsmenn láta sig varða.
Helgarferð til Dublin
Austfírðingar
fluttir út
Þota frá Islandsflugi hlaðin aust- minnst á þá flughræddu sem sleppa
firskum farþegum fór frá Egilsstaða- við tvær auka flugferðir.
flugvelli sl. föstudag og var áfanga- Mikil stemning var á Egilsstaða-
staðurinn Dublin á Irlandi. Eru við- velli áður en vélin fór, og þéttskip-
skiptavinimir afar ánægðir með það aður bekkurinn í biðsalnum, enda
að geta flogið beint héðan, enda fóru 140 manns með vélinni. Far-
þýðir það að fólk getur sparað sér angurinn út vóg rúmt tonn, og at-
peningaútlát og snúninga í Reykja- hyglisvert að sjá hver þyngdin verð-
vík og Keflavík. Svo ekki sé nú ur þegar heim kemur.
Austfirðingarnir hópast um borð íþotuna, spenntir yfirþví aðfara til írlands.
Austri/ us
Kurl
Eftirfarandi saga er fengin að láni
bókinni Já, ráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon, frá Gunn-
arsstöðum í Þistilfirði, sat á Alþingi fyr-
ir Alþýðubandalagið í Norðurlands-
kjördæmi eystra ffá 1983 til 1999. Þar
situr hann reyndar enn, nú fyrir Vinstri
hreyfinguna - grænt og óháð framboð.
Þistilfirðingurinn er prakkari að
eðlisfari. Þegar hann var sam-
gönguráðherra datt honum einhveiju
sinni í hug að hringja í ráðuneytið sitt
og spyrja um sjálfan sig. Um leið og
símastúlkan svarar kát og hress í
bragði, sagði Steingrímur með draf-
andi röddu:
„Er djöfulsins samgöngu-
ráðherrann við”?
„Nei, hann er ekki mættur”.
„Æ, æ,...ég ætlaði nefnilega að
koma við hjá ykkur og berja hann
duglega”.
„ Einmitt! En hann er væntanlegur
klukkan tvö. Er það kannski of seint
fyrir yður”?
Mun Steingrími hafa brugðið
nokkuð við þetta svar símastúlkunnar.
Fellabæ
V
Sími 471-1623
Fax 471-1693
J
Núfer
aðventan í
hönd, hátíð
Ijóss og
kœrleika, þá fer
vel að gera sér
dagamun.
Föstudagskvöld 26. nóv. og laugardagskvöld 27. nóv.
kl. 19:00
Okkar rómaða jólahlaðborð ogfranska jólavínið Beaujolais
Nouveau á boðstólum. Snillingarnir Einar Bragi og Daníel sjá um
jólatónlistina.
Jólaölið kemur í hús föstudagskvöldið 26. nóv. kl. 21:00.
Sunnudaginn 28. nóv. kl. 16:00.
Indland - Ferðakynning og litskyggnusýning.
Þóra Guðmundsdóttir frá Seyðisfirði kynnir fyrirhugaða
œvintýraferð til Kerala á Suður-Indlandi 10.-27. febrúar árið 2000.
Verið velkomin
Gœðin ífyrirrúmi
HöTEL HÉRAÐ
ICELANDAIR HOTELS
Miðvangi 5-7 • 700 Egilsstaðir
Sími471 1500 • Fax 471 1501
LancfhMnœrerum ykkarfólk
Búðargötu 5, 730 Reyðarfjöróur,
sími 474 1407, fax 474 1533
Miðási 1-5, 700 Egilsstaðir,
sími 471 1688, fax 471 2564
AFGREIÐSLUSTAÐIR:
• Reykjavík s. 569 8400
• Egilsstaðir s. 471 1688
• Reyðarfjörður s. 474 1202
Fáskrúðsljörður s. 475 1508
Seyðisfjöður s. 472 1111
Borgarfjörðureystri s. 472 9977
Neskaupstaður s. 477 1515
Eskifjörður s. 476 1480
Stöðvarfjörður s. 475 8880
Breiðdalsvík s. 475 6671
Djúpivogur s. 478 8875