Austri - 30.03.2000, Page 5
Egilsstöðum, 30. mars 2000
AUSTRI
5
Barnabarn og
Amma saman á
skólabekk
Á yfirstandandi önn í Hússtjórn-
arskólanum á Hallormsstað sátu
saman á skólabekk um tíma
óvenjulegar bekkjarsystur. Hér er
um að ræða ömmu og sonardóttur.
Þetta eru Ingunn Berglind Arnar-
dóttir frá Stöðvarfirði og amma
hennar, Ingunn Gunnlaugsdóttir
frá Innri-Kleif í Breiðdal. Þannig
var mál með vexti að Ingunn eldri
var um tíma á saumanámskeiði í
hússtjórnarskólanum, en Ingunn
yngri er í fullu námi í skólanum.
Fjarðabyggð
Hátíð um páskana
Ferðamálafélag Fjarðabyggðar er
um þessar mundir að undirbúa hátíð
í Fjarðabyggð um páskana. Ætlunin
með því er að skapa mikla stemmn-
ingu í bænum og freista þess að fá
ferðafólk þangað. Hátíðin er sam-
starfsverkefni Skíðamiðstöðvarinnar
í Oddsskarði, tónlistarfólks, safn-
anna í bænum, skemmtistaða,
gististaða og leikfélaganna.
namsleið
Dagana 17.-19. mars síðastliðna var haldið glerlistarnámskeið í
Barnaskólanum á Eiðum. Þátttakendur voru tíu talsins en leiðbeinandi
á námskeiðinu var Ingibjörg Hjartardóttir sem sést hérjyrir neðan, til
hœgri, aðstoða einn nemanda sinn. Austri/gb
Síðastliðinn fimmtudag var haldið skákmót í Menntaskólanum á
Egilsstöðum. Var mótið sérstakt fyrir þœr sakir að það var haldið
utanhúss ífrosti og snjókomu. Keppendur voru fimm og tók mótið 5
klukkutíma. Sigurvegari mótsins var Steinar Ingi Þorsteinsson.
Austri/ivv
orðið um skiptingu verksins við Siglingastofnun, þar
sem erfitt verður að skilgreina hvar dýpkun lýkur og
skipaskurður tekur við. Siglingastofnun greiðir 90%
verksins ef um dýpkun er að ræða.
Hugmyndin um „Gulleyjuna“ er að nota efni sem
farlægja þarf við að gera rennu rétt fyrir innan núver-
andi stað, og í stað þess að fjarlægja efnið er það nýtt á
staðnum. Önnur ástæða fyrir
því að útbúa eyju er að þá verð-
ur ekki allur straumurinn fyrir
innsiglinguna, en það er erfitt að
sigla inn úr straumnum inn á
lygnuna í höfninni. Höfnin
(bugtin) verður undir hvolfþaki
sem er um eitt hundrað metrar í
þvermál og um tuttugu metrar á
hæð. Þar inni verða byggingar
sem hýsa ýmislegt er tengist
ferðaþjónustu og afþreyingu.
Myndirnar eru teiknaðar af
Benedikt Vilhjálmssyni.
Nokkuð framsæknar hugmyndir hafa komið fram
hjá stjóm Lagarfljótsormsins ehf. um höfn á Egilsstöð-
um. Ein þeirra er að grafa „kanal“ frá Nátthagavík-
inni og inn að Blómabæ og önnur gerir ráð fyrir eyju
rétt fyrir ofan Lagarfljótsbrú.
Hugmyndin um „kanalinn“er talin erfið, sérstaklega
skipulagslega séð og einnig er talið að ágreiningur geti
Opnunartími:
Virka daga kl.9:00-19:00
Laugardaga kl. 10:00-18:00
Sunnudaga kl. 12:00-18:00