Austri - 30.03.2000, Blaðsíða 6

Austri - 30.03.2000, Blaðsíða 6
6 AUSTRI Egilsstöðum, 30. mars 2000 SPURNINGIN Nú virðist standa til að kjördæmanefnd leggi til að Austur-Skaftafells- sýsla verði með Suðurkj ördæmi. Ert þú sáttur við það? Albert Eymundsson, bæjarstjóri Homafjarðar Ég hefði kosið hinn kostinn að fylgja Norð-Austurkjördæminu. Rest rök sem vega eitthvað í þessu máli mæla með því í mínum huga. Á hinn bóginn hef ég í engar áhyggjur vegna þessa mál. Þessi breyting mun ekki hafa nein afgerandi áhrif fyrir íbúa í Austur-Skaftafellssýslu. Þetta hefur engin áhrif á Kf almennings og breytir engu í þessum stóru málaflokkum eins og atvinnumálum, samgöngumálum, heilbrigðismálum, menntamálum annari þjónustu o.s.frv. Við erum og höfum haft mesta samvinnu við byggðarlögin austan við okkur á stjómsýslusviðinu. Því mun breytingin íþyngja fólki sem er að vinna á þeim vettvangi og að því leytinu til er þetta verra. Ég held að Norð-Austurkjördæmið verði eina alvöru landsbyggðarkjördæmið í ffam- tíðinni og af þeirri ástæðu munum við eiga meiri samleið með því. Það hefði verið gott fyrir þetta stóra landsbyggðarkjördæmi að hafa sterkan byggðakjama héma í útjaðrinum, en að sama skapi gott fyrir Suðurkjördæmið að fá Homafjörð til mótvægis þar. Ólafur Sigurðsson, Svínafelli Mér finnst það landffæðilega miklu betra að fara suður um. Það er mikið einfaldara fyrir félagsstarfsemi að fá fólk til þess að fara suður á bóginn á fundi og þess háttar. Það gengur betur fyrir okkur að ná félagsstarfi á þennan veg, því að fólk á alltaf einhvem veg- inn ffekar erindi suður á bóginn heldur en norður. Þetta byggðarlag verður ekki síður sterkt sem útjaðar á suður- landi en í Norð-Austurkjördæminu. Ég hef ávallt sagt við heimamenn að við verðum svo sem aldrei sterkari en við viljum sjálf en við höfum kannski meiri möguleika á því í þeirri baráttu sem landsbyggðin á við þéttbýlið héma megin heldur en með norð- austrinu. En auðvitað verður hver að hafa sína skoðun á þessu. / Penninn Aftarlega á merinni Svo virðist sem að margir telji skilyrði til búsetu megi vera mis- munandi eftir því hvar fólk býr. Sem dæmi um það má nefna ástandið hér á okkar ástkæra Aust- urlandi, þar sem hlutimir hafa gerst hratt að undanfömu í áttina að því að gera þennan landshluta nær óbú- anlegan. Samgöngumálin Um þessar mundir er Indriði Mar- geirsson, sérleyfishafi, að hætta akstri. Sennilega er það til komið vegna þess hve lágar fjárhæðir sam- gönguráðuneytið hefur látið honum í té til að halda uppi áætlunarferð- um sínum, sem eru milli Egilsstaða og Breiðdalsvíkur um firðina. Ann- ar sérleyfishafi, Hjörtur Ásgeirsson á Djúpavogi er einnig hættur akstri af sömu ástæðum. Hjörtur hefur um árabil haldið uppi áætlunarferð- um milli Djúpavogs og Hafnar í Homafirði tengdar flugi til Horna- fjarðar. Fyrst að þessir tveir ágætu menn hverfa nú á braut, er frekar erfitt fyrir fólk á þessu svæði að komast á milli staða. Svo virðist sem að fallið hafi milli þilja að gera ráð fyrir því að það kostar sitt að halda uppi samgöngum með áætl- unarbílum. Ef eitthvað er, hefðu þessir menn átt að fá aukinn styrk vegna gífurlegrar hækkunar á elds- neyti að undanfömu. Að sjálfssögðu er hægt að fara á milli staða á einkabílum, en það breytir ekki þeirri staðreynd að fólk á að geta haft þann valmöguleika á að komast leiðar sinnar með áætlun- arbílum, án tillits til búsetu. Það em svo sem hugmyndir uppi um að samgöngur milli staða á sunnan- verðum Austfjörðum og áætlunar- flugvallanna verði í formi pöntunar- stýrðrar þjónustu. í því tilfelli þurfa aðilar að panta sér far, ef þeir ætla að ferðast með flugi og það er rétt hægt að ímynda sér hvað það kost- ar. Islandsflug hefur, þegar þessi orð eru rituð, hætt flugi til Egilsstaða og er ég viss um að önnur eins fá- keppnisstaða á þessum markaði hef- ur sjaldan ef ekki aldrei komið upp. Reikna ég fastlega með því að Flug- félag Islands hækki fargjöld sín svo um muni, ekki það að þau séu neitt sérstaklega lág. Til að bæta gráu ofan á svart hefur Flugfélag íslands nú ákveðið að hætta flugi til Vopna- fjarðar. Tvenn jarðgöng - algjört lágmark Vegagerðin skilaði í sl. febrúar- mánuði tillögum sínum að lang- tímaáætlun í jarðgangafram- kvæmdum á íslandi næstu 10 árin. Þar er gert ráð fyrir að þau göng sem komi á Austurlandi verði á milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar- fjarðar. Það er ekki nóg að mínu mati. Á milli Vopnafjarðar og Hér- aðs skulu einnig koma jarðgöng. Miðað við hve oft Austfirðingar hafa verið hlunnfamir og hve mikið þeir hafa verið sniðgengnir í sam- göngumálum, fyndist mér það sann- gjamt, ekki nema þó bara sem sára- bætur fyrir það hve illa er búið að fara með fólkið í fjórðungnum. Fjármunum misskipt Nýverið skrifaði ungur lögfræði- nemi grein í morgunblaðið. I grein- inni var fjallað um kostnað við gerð heimasíðu stjómarráðsins. Sá kostn- aður var, að því er fram kom í grein- inni, 52 milljónir króna. Þó að heimasíða Stjómarráðsins sé mjög glæsileg, þá er sennilega hægt að gera ágætis síðu á vefnum fyrir minni upphæð. Ég er nokkuð viss um að fyrir slíka upphæð væri hægt að laga ýmislegt á litlu stöðunum úti á landi. Þó að litið sé á 52 milljónir sem smámuni miðað við margt ann- að sem gengur og gerist í „Menning- arborginni 2000“, þá er það alveg ótrúlegt hvað þessi upphæð myndi breyta miklu fyrir sum byggðarlög. Að lokum Mér finnst stundum eins og verið sé á kerfisbundin hátt að gera fólki algjörlega ókleift að búa hér á Aust- urlandi og að það sé jafnframt liður í að hrekja alla í átt að Stór-Reykja- víkursvæðinu. Svæði sem skapar jafn mikil verðmæti eins og raun ber vitni í fjórðungnum, á að fá eitthvað í staðinn. Þó ekki væri nema mann- sæmandi samgöngur. Guðmundur Þorkell Guðmundsson Betri nýting á húsnæði í eigu ríkisins á Landsbyggðinni Ólafur Ragnarsson, sveitastjóri Djúpavogshrepps hefur skrifað þing- mönnum kjördæmisins opið bréf þar sem hann varpar fram þeirri hug- mynd að nýta betur húsnæði í eigu ríkisins á landsbyggðinni. Þar er gert ráð fyrir að ríkisstofn- anir á höfðuborgarsvæðinu, sem þröngt er orðið um, flytji vaxtarhlut- ann af starfseminni í húsnæði ríkis- ins úti á landi. Ólafur leggur áherslu á að hér sé aðeins farið fram á að flytja hluta starfsemi stofnana út á land. Aug- ljóslega myndi þessi tilflutningur spyma á móti þeirri óeðlilegu þenslu sem hefur verið á höfuðborgarsvæð- inu. Auk þess er nauðsynlegt að nýta það húsnæði í eigu ríkisins, sem stendur autt úti á landi, eða er um það bil að tæmast vegna niðurskurð- ar á starfsemi ýmissa ríkisfyrirtækja sbr. íslandspóstur, Landssíminn, Landsbankann o.s.frv. Með flutn- ingi ríkisfyirrtækja myndi fjölbreytt- um atvinnutækifærum fjölga á landsbyggðinni án þess að þurfi að koma til niðurskurðar á höfuðborg- arsvæðinu. Ein stofnun, sem hugsanlega gæti flutt hluta af starfsemi sinni út á land, er Tryggingastofnun Ríkisins. Nú hafa ráðamenn þar einmitt uppi áform um nýbyggingu í Reykjavík vegna húsnæðisskorts. Sífellt er verið að flytja fleiri og fleiri verk- efni frá þessum stofnunum á lands- byggðinni suður til höfuðborgar- svæðisins þar sem ríkiskerfið þenst út. Ólafur tekur nokkur dæmi því til staðfestingar, en einnig hefur hann tillögur um hvemig mætti snúa þess- ari þróun við. 1. Póst- og símahús, þar er verið að einfalda starfsemina með því að færa burt verkefni og fækka starfs- fólki. Nýta mætti þetta húsnæði og starfsfólk með því að færa til þeirra verkefni. Ólafur segist hafa sett sig í sam- band við forstjóra Islandspósts með hugmynd um nýta húsnæði íslands- pósts á Djúpavogi og starfsfólkið t.d. með vinnu við viðhald þjóðskrár. Forstjóri íslandspósts tók vel í hugmyndir Ólafs og er mjög áhuga- samur um að nýta húsnæðið með einhveijum hætti betur en nú er. 2. Heilsugæslustöðvamar em mik- il og rúmgóð hús. Aðbúnaður stöðv- ana hefur verið í stöðugri endumýj- un og nú hafa þær nýverið mikið verið tölvuvæddar. í heilsugæslustöðinni á Djúpavogi er starfsmaður í hlutastarfi, enda ekki læknir nema endrum og sinn- um. Nýlega tilkynnti dómsmálaráð- herra að taka ætti upp heildarskrán- ingu slysa. Það verkefni myndi passa vel inní heilsugæslu í litlu þorpi á lands- byggðinni. 3. Landsbankinn er í meirihluta eign ríkisins eins og er. Innan þeirr- ar stofnunar fara verkefnin hratt suð- ur. Veðsetning afla, greiðslumat og fleira mætti telja. Þetta er í raun furðuleg ráðstöfun eins og bankinn hefur á að skipa hæfu starfsfólki út um land allt. 4. Dvalarheimilin standa vannýtt á mörgum stöðum á landsbyggðinni. Ólafur segist vita að margir myndu vilja komast út á land ef þeir vissu af lausu plássi. Mikilvægt er að fá einhvem sem að vinnur við þennan geira til að koma þessu á framfæri og þá helst að það væri gert innan heilbrigðis- ráðuneytisins. 5. Útibú frá Reykjalundi. Það mætti skoða að koma upp t.d. heilsu-og endurhæfingabúðum á Eiðum. 6. Styrkja mætti landsmálablöðin t.d.með því að gefa þeim kost á verkefnum við útgáfu fréttabréfa og blaða sem rfld og stofnanir gefa út. Marga fleiri þætti mætti nefna. Niðurlag bréfs Ólafs til þing- manna Austurlands kjördæmis hljóðar svo: „Kæru þingmenn. Þaö er ekki til skemmtunar sem ég sest niður og rita ykkur þetta erindi. Það er þannig málum komið að við hljótum að krefjast þess afykkur að þið látið til ykkar taka í byggða- málum. Flutningur verkefna ríkisins út á land er ekki eina lausn byggða- vandans. En það er stór þáttur í því að breyta og hafa áhrif á þessa þróun. Eitt starf í lítið byggðarlag hefur mikið að segja og það hefur ávallt jákvœð hliðaráhrif. Það er búið að greina vandann. Tillögur að mjög raunhœfum verk- efnaflutningi liggjafyrir. Það er mín reynsla að það fer ekkert verkefni útfyrir höfuðborgar- svœðið nema pólitískl kjörinn full- trúi taki af skarið. Starfsmenn við- komandi stofnana fœra ekki skjal út fyrir Elliðaár. Því verður að ráða tímabundið aðila sem að er landsbyggðasinnað- ur og getur í krafti pólitísks valds feert verkefni til landsbyggðarinnar. Með vinsemd og virðingu Ólafur Ragnarsson, sveitarstjóri Djúpavogi”. Andrés Skúlason Djúpavogi

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.