Fylkir - des. 2019, Blaðsíða 24
24 FYLKIR - jólin 2019
°
°
Töluverð gróska var í tónlistarlífi
Eyjamanna upp úr 1950. Margir
ungir eyja- hljóðfæraleikarar
höfðu mikinn áhuga, og vildu
ná lengra í hljóðfæraleik sínum
og leika í hljómsveit. Einn þeirra
var Haraldur Baldursson sem lék
með H.G. sextettnum. Haraldur
er fæddur hér í Vestmannaeyjum
25. febrúar 1932, að Brekastíg 3
( Sólberg), sonur hjónanna Bald-
urs Ólafssonar bankastjóra og
Jóhönnu Andreu Ágústsdóttur
(Kiðjabergi). Þótt Haraldur sé
orðinn 87 ára, er heilsan góð og
enn koma upp stundir þar sem
gítarinn er tekinn fram og spiluð
lög. Ég settist niður með frænda
mínum og fékk hann til að segja
mér frá árum sínum með H.G.
sextettnum.
„Ég átti góðan vin á þessum tíma,
Jón Helga Steingrímsson, og spil-
uðum við mikið saman, ég á gítar
og Jón Helgi á píanó. Við vorum
ungir á þessum árum og okkur
langaði að spila í hljómsveit. Þetta
var nokkrum árum á undan rokk-
inu, aðallega var verið að spila
jazz en einnig vals, tangó, rælum,
polkum o.s.frv.
Það var síðan um haustið 1949, að
til Eyja flytur nafni minn, Haraldur
Guðmundsson prentari. Haraldur
var fæddur í Vestmannaeyjum
30. júlí 1922, nánar tiltekið á svo-
kölluðum Vilborgarstöðum. Vil-
borgarstaðir voru um þar síðustu
aldarmót átta jarðir. Guðmundur
Gíslason faðir Haraldar fékk ábúð
á Austur Vilborgarstöðum (austur-
bænum/austasti bær) árið 1909
og sat jörðina til ársins 1930, er
Loftur Jónsson frá Kirkjubæ tók
við. Loftur bjó í húsinu þegar eld-
gos hófst þann 23. janúar 1973.
Haraldur sleit barnsskónum að Vil-
borgarstöðum.
Haraldur lærði prentiðn á fasta-
landinu, og tók sveinspróf 1939.
Þegar Haraldur flutti aftur til Eyja
haustið 1949 hóf hann vinnu í
prentsmiðjunni Eyrúnu.
Haraldur Guðmundsson var
flinkur hljóðfæraleikari og lék á
mörg hljóðfæri. Hann hafði meðal
annars stofnað mandólínhljóm-
sveit Reykjavík-
ur áður en hann
flutti til Eyja.
Held að það sé
eina mandólín-
h l j ó m s v e i t i n
sem starfrækt
hefur verið á
Íslandi. Einnig
lék Haraldur
með hljómsveit
Björns R. Einars-
sonar.
Fljótlega eftir
að Haraldur
flutti til Eyja
varð ég svo
heppinn að
hann stofnaði
h l j ó m s v e i t
og fékk ég að
vera með og
verða einn af stofnfélögum. Vinur
minn Jón Helgi Steingrímsson
kom aðeins seinna inn í hljóm-
sveitina. Hljómsveitin fékk nafnið
H.G. sextettinn. Hljómsveitinni
var að sjálfsögðu stjórnað af Har-
aldi Guðmundssyni og lék hann
á trompet og banjó, ég á gítar,
Guðni Hermansen á tenórsaxafón,
Gísli Bryngeirsson frá Búastöðum
á klarínett, Alfreð W. Þórðarson á
píanó og Sigurður Þórarinsson
(Sissi) á trommur.
Hljómsveitin spilaði á böllum í
Samkomuhúsinu og Alþýðuhús-
inu. Fljótlega kom vinur minn
Jón Helgi Steingrímsson í hljóm-
sveitina og tók sæti Alfreðs W.
Þórðarsonar á píanó og Sigurður
Guðmundsson (Háeyri) á tromm-
ur fyrir Sissa.
Það má segja að spilamennska
mín í H.G. sextett
hafa haft mikil áhrif
á líf mitt og fram-
tíðina. Það var
nefnilega á dans-
leik í Alþýðuhúsinu,
þar sem við vorum
að spila, að stelpur
úr Kvennaskól-
anum í Reykjavík
mættu. Þær voru í
útskriftarferðalagi
í Eyjum og skelltu
sér á dansleikinn.
Þetta kvöld kynnt-
ist ég Gyðu Guð-
mundsdóttur, sem
átti síðan eftir að
verða eiginkona
mín og er það enn
þann dag í dag.
Sumarið 1950 var
mjög eftirminnilegt, því þá fór H.G.
sextettinn með Lúðrasveit Vest-
mannaeyja, sem Oddgeir Krist-
jánsson, stjórnaði í ferðalag um
Austurland. Haldnir voru tónleikar
og böll á mörgum stöðum. Fyrir
Tónlistarlíf í Eyjum um miðja síðustu öld
H.G. sextettinn
Fjölskyldan á vilborgarstöðum. Haraldur yngstur og hér á milli foreldra sinna sem voru oddný Elín
Jónasdóttir frá deild á Álftanesi og guðmundur gíslason frá Seljavöllum undir Eyjafjöllum.
GREINARHÖFUNDUR:
ÍvAR ATLASoN
Haraldur guðmundsson ungur
að árum á vilborgarstaðatúni.
urðirnar, Klettsvíkin, Miðklettur
og Ystiklettur í baksýn.
H.g. sextettinn frá vinstri: gísli Bryngeirsson ( gísli á Búastöðum
) klarínett, guðni Hermansen tenórsaxafón, Sigurður guðmunds-
son ( Siggi á Háeyri ) trommur, Haraldur guðmundsson stjórnandi
H.g. sextett trompet og banjó, Haraldur Baldursson gítar og Alfreð
Washington Þórðason píanó.
Haraldur Baldursson man ekki nafnið á þessari hljómsveit. Efri
röð frá vinstri, Höskuldur Stefánsson (Neskaupstað) harmónika og
Sigurður Markússon klarínett. Neðri röð frá vinstri: Páll Steingríms-
son gítar og bróðir hans, Jón Helgi Steingrímsson píanó.
Starfsfólk Útvegsbanka Íslands 1952-1953. Fremri röð: Jakob ólafs-
son og Baldur ólafsson. Aftari röð frá vinstri: Jón ólafsson, Bjarni
Sighvatsson útibússtjóri, Ásta Engilbertsdóttir, Haraldur Baldurs-
son, Sighvatur Bjarnason, Jón Scheving og Jóhannes Tómasson.
gyða guðmundsdóttir og
Haraldur Baldursson.
Það var nefnilega á dansleik
í Alþýðuhúsinu, þar sem
við vorum að spila, að
stelpur úr Kvennaskólanum
í Reykjavík mættu. Þær voru
í útskriftarferðalagi í Eyjum
og skelltu sér á dansleikinn.
Þetta kvöld kynntist ég Gyðu
Guðmundsdóttur, sem átti síðan
eftir að verða eiginkona mín og er
það enn þann dag í dag.