Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.01.1992, Blaðsíða 6

Samtökin '78 - Sjónarhorn - 15.01.1992, Blaðsíða 6
6 Sjónarhorn Engin uppgjöf fyrst fattaði ég að ég væri hommi fimmtán ára, fannst það svolítið hart þorði ekki í skólann þorði ekki margt svo var það diskó og hommar urðu smart þá var maður kúl þá var maður pönk ’81 og hlutimir urðu röff í blöðunum lásuð’ um vírus og breyttuð öll um rödd ísland ó ísland það er gott að koma heim (eða hitt þó heldur) því hér eru allir svo líbó þar til kemur að þeim þegar þau vita að þú ert smitaður er hætt að bjóða heim „við erum að hugsa um börnin við meinum það ekki þannig en ekki anda of mikið að þeim" stundum verð ég svo hræddur þegar ég svitna um nætur - á ég fyrir leigubíl? kemst ég á fætur? ég ligg uppi á spítala og græt meðan kraftinn þrýtur einn inni á dimmu herbergi - fjölskyldan frammi og grætur stundum er ég æðislega þreyttur fullur dópaður stónd og breyttur ekki eins og ég vanalega er en sama hver fer með mér í rúmið ég veit ALLTAF hvert sæðið úr mér fer þú lítur oft á mig sem glæpon samt þarf ég alltaf að bera ábyrgð á þér það er búið að reka mig úr vinnu og líka út úr húsnæði vinur minn sagði „ekki nota sama handklæði hafði tannburstann sér gerðu mér greiða ekki of nálægt mér ég skal ennþá vera vinur þinn paranojd að smitast af þér“ vinir mínir eru að falla einn af öðrum sá síðasti var blindur orðinn að beinum strákurinn á undan honum náði varla tuttugu og þrem íslenski mórallinn stattu stoltur og beinn harkaðu af þér vertu snyrtilega klæddur glæsilegur og hreinn en þið þama úti ég ætla að segja ykkur eitt eftir þrjú fjögur ár vaknið þið upp við rosalegt sjokk með tárin í augunum „af hverju notaði ég ekki smokk?“ „af hverju notaði ég ekki smokk?“ „af hverju notaði ég ekki smokk?“ „af hverju notaði ég ekki smokk?“ Lesbíur og alnæmi frá sjónarhorni Jónu Ingibjargar Jónsdóttur Mikið hefur verið rætt um falska öryggiskennd meðal fólks hvað varðar hættuna á að smitast af alnæmi. Um nokkurt skeið hafa lesbíur til dæmis ímvndað sér að þær þyrftu ekki að hafa neinar sérstakar áhyggjur af að smitast af þess- um sjúkdómi. RANGT! Úti í hinum stóra heimi eru dæmi þess að lesbíur hafi smitast af alnæmisveirunni og nokkrar þeirra hafa smitast af öðrum konum. Flestar hinna HlV-já- kvæðu lesbía hafa fengið veiruna við fíkniefnanotkun með sprautum. Aðrar hafa haft kynmök við karlmenn og ekki gætt varúðar eða fengið smitað sæði við tæknifrjóvgun. Það væri ósköp notalegt að geta sagt við sjálfa sig að það sem gerist erlendis komi íslenskum lesbíum ekkert við. En hvenær hefur það borgað sig að stinga höfðinu í sandinn? Það getur flækt málin að telja sig tilheyra hópi sem hingað til hefur verið talinn í lítilli hættu. Lesbíur telja sér ekki ógnað af alnæmi af því að þær eru lesbíur. Sumar lesbíur telja þær konur tvíkynhneigðar sem hafa einnig kynmök við karla. Aðrar lesbíur sem sofa öðru hvoru hjá gagnstæða kyn- inu telja sig ekki vera bísexúal. En þegar rætt er um líkur á HIV- smiti skiptir ekki meginmáli hvernig þú skilgreinir sjálfa þig, heldur hvað þú gerir í kynlífinu. Eg held að flestum sé í fersku minni þegar fræðsluáróðrinum var breytt í þá veru að tala til „karla sem sofa hjá öðrum körl- um“ í stað þess að tala til homma eingöngu. Astæðan var sú sama. Þeir karlar sem litu ekki á sig sem homma en höfðu samt kynmök við aðra karlmenn, fannst al- næmi ekki koma sér við. Þess vegna var orðalaginu breytt. Það er tvennt sem dregur úr líkum á að kona smiti aðra konu af alnæmisveirunni þó að það sé svo sannarlega möguleiki. f fyrsta lagi er erfiðara fyrir konu að smita aðra konu af veirunni vegna þess að magn leg- gangaslíms, sem berst á milli tveggja kvenna í ástarleik, er minna en magn sæðis sem berst á milli karls og konu við óvarðar samfarir. í öðru lagi er það gang- ur sjúkdóma að nokkurn tíma taki fyrir smitvaldinn - í þessu tilviki alnæmisveiruna - að ber- ast á milli samfélagshópa. Og það vill svo til að konur sem hafa eingöngu kynmök við aðrar kon- ur eru einn síðasti hópurinn sem veiran nær að smita. Það er samt engin ástæða fyrir íslenskar les- bíur að láta eins og ekkert sé á meðan alnæmi breiðist út í heim- inum. Ætla íslenskar lesbíur að detta í þá gryfju að hugsa: „Þetta kemur ekki fyrir mig, heldur ein- hverjar aðrar.“ Þó engin kona sem telur sig lesbíu hafi enn smitast hér á landi af alnæm- isveirunni, tel ég að þær hafi ekki, frekar en aðrir á skerinu, efni á að ganga um með bundið fyrir augun. Framför - ekki full- komnun Fyrir konur sem njóta ásta með öðrum konum er vert að hafa tvennt í huga. Att þú eða ástkona þín á hættu að smitast af alnæmi, eða er eitthvað í kynlífssögu þinni eða hennar sem bendir til að svo gæti verið? Sértu ekki viss skaltu ætíð lifa hættuminna kynlífi. Hafir þú yflrleitt sofið hjá konum en haft síðan kynmök við karlmann, þá er vissara að iðka einnig hættuminna kynlíf. Þegar þú ert búin að meta áhættuna skaltu gefa gaum að því hvaða „hjálpartækja“ þú þarfnast til að lifa þessu svokallaða hættu- minna kynlífi. Þetta finnst sumum kannski einum of yfirvegað og skynsamlegt en þeir sem æfa sig í því að stunda „safe sex“ er slíkt kynlíf ekkert tiltökumál þegar fram í sækir. Að vísu er enginn fullkominn og við þekkjum það vel að fólk, bæði samkynhneigt og gagnkynhneigt, sem hefur til- einkað sér hættuminna kynlff, hrasar öðm hverju og hagar sér óskynsamlega í sexinu. Þetta er nefnt „relapse“ hegðun á enskri tungu og heilmikið stúderað af forvamarfræðingum alnæmis. „Framför - ekki fullkomnun“ er máltæki sem ég held að eigi hér vel við. Það má vel vera að konum finnist orðið „hættuminna“ ákaf- lega niðurdrepandi, en er orðið „öruggara“ eitthvað skárra? Hér með er auglýst eftir bragð- sterkara orði eða hugtaki sem væri líklegt til að festast á tungu meðal lesbía (og annarra). Hvað felst í hættuminna kyn- lífi fyrir konur sem hafa kynmök við aðrar konur? Það þýðir að þú verður að gæta þín á smituðu blóði (líka tíðablóði) og smituðu slími frá leghálsi og leggöngum. Þú ættir ekki að hafa kynmök við ástkonuna þegar hún er á túr nema þú sért viss um að hún hafi ekki alnæmisveiruna í sér. Munnmök eru hættuminni þegar hún er ekki á blæðingum. Sé hún smituð af veirunni eru munnmök hins vegar ávallt hættuleg. Ástar- bleðill sem líka kallast tann- læknadúkur er latex gúmmídúkur sem munnmaka- glöðum elskendum hefur verið bent á að hægt sé að nota sem hjálpartæki í hættuminna kynlffi. Þú getur beðið tannlækninn þinn um bút næst þegar þú átt tíma hjá honum eða reynt að verða þér úti um dúkinn hjá fyrirtækjum sem flytja inn vörur fyrir tannlækna. Takist þér að verða þér úti um eintak, skaltu þvo dúkinn því sumir eru með talkúmdufti sem getur haft ertandi áhrif á slím- húðina. Stundum er erfitt að gera sér grein fyrir því á hvaða hlið ástar- bleðilsins munnvatnið er og hvorum megin leggangaslímið. Til að leysa þennan vanda hafa hugmyndaríkar lesbíur saumað ástarbleðilinn á andlitsgrímur eða búið til „naríur'* og sett dúk- inn á þann stað sem snýr að sköp- unum. Reyndar finnst sumum dúkurinn helst til þykkur, en með tíð og tíma verða vonandi fram- leiddir þynnri (og bragðbetri) dúkarmeð elskendur í huga. Síð- ur er mælt með matarplasti í sama tilgangi þar sem ekki er vitað nægilega um gildi þess sem smitvörn gegn alnæmisveirunni. Smokkar hafa líka smitvarn- argildi meðal lesbía noti þær titr- ara eða önnur kynlífshjálpartæki sem þær skiptast á að nota. Hjálpartæki má líka þvo upp úr 10% klórblöndu (1 hl. klór á móti 9 hl. vatns) og skola síðan undir hreinu vatni ef þú ætlar að deila þeim með annarri konu. Hafir þú nautn af því að putta ástkonuna í leggöngin eða enda- þarminn, er rétt að nota skurð- hanska ef þú ert með sár eða exem á höndum eða ef hún er á túr. Ekki gleyma að þvo hansk- ana fyrst ef talkúm er á þeim. Endalok kynlífsins? Eg sé lesendur þessarar greinar fyrir hugskotssjónum þar sem þeir hrista höfuðið, fórna hönd- um og segja: „Verður sexið ekki alveg steindautt og óspennandi ef það á að vera svona sterílt?“ í fyrstu virðist það vera rétt, þ. e. a. s. ef þú ert vön að hugsa sem svo að alnæmi komi þér ekkert við. Þessari grein er ætlað að ýta við þeim lesbíum sem líta þannig á málið og þá er sjálfsagtað mínu mati að koma með allar hugsan- legar upplýsingar til að auðvelda umræður. Því eins og áður sagði þá skapar æfingin meistarann. Það að lifa hættuminna kynlífi hefur kosti í för með sér sem hvorki lesbíur né aðrir mega gleyma. Þú smitast síður af al- næmisveirunni. þú sýnir að þér þykir vænt um sjálfa þig og ást- konu þína og getur notið kynlífs- ins lengur með því að eiga þér lengri ævi. Lifið heilar! Jóna Ingibjörg Jónsdóttir er hjúkrun- ar- og kynfræðingur og starfsmaður Landsnefndar um alnæmisvarnir. Greinin er skrifuð að beiðni blaðsins. OCr HVA£> MEÐ PAÐ PÓtT É<x SOF! OÐRU HVvRU hJA KoRLVH ? 'E(x SKILútRBIK/i MlCr NÓ SAMT SEM lesb'iu 1 MIN VECxNA MATTU KEfS VECrNA SKIL OREIMA þ/CrSBM MAKRÓBÍÓTÍSKAN HERSTovvA - ANOST/E-ÐINÚt, HALDINA/ SJÁLFSPULARHVÓT OOr MVNALoSTA! ÞAÐ SEM SKIPTIR m'ali er HJÁ HVEk)UM þu StFUR ! lL Björn Bragi Björnsson

x

Samtökin '78 - Sjónarhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Sjónarhorn
https://timarit.is/publication/1491

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.