Fréttablaðið - 23.10.2020, Qupperneq 4
VIÐSKIPTI Hagnaður Hofgarða ehf.
nam 947 milljónum króna árið 2019.
Félagið fjárfestir í hlutabréfum og
öðrum verðbréfum, bæði í skráðum
og óskráðum fyrirtækjum. Árið á
undan nam hagnaður félagsins 180
milljónum króna.
Helstu eignir Hofgarða eru hluta-
bréf í skráðum íslenskum félögum
svo sem í Marel hf. en gengisþróun
þess félags var mjög hagstæð á árinu
2019.
Af óskráðum íslenskum fyrir-
tækjum má nefna Bláa lónið en
Hofgarðar eiga 6 prósent í því félagi.
Heildareignir félagsins í lok árs
2019 námu um 2,7 milljörðum
króna samkvæmt efnahagsreikn-
ingi, skuldir voru 151 milljón króna
og eigið fé 2,5 milljarðar króna.
Eigandi Hofgarða er Helgi Magn-
ússon. Félag í hans eigu á 82 prósent
hlutafjár í Torgi sem meðal annars
gefur út Fréttablaðið. – jþ
Góð afkoma
hjá Hofgörðum
Skemmtileg og spennandi bók skrifuð
af mikilli virðingu og næmi fyrir flóknum
tilfinningum sem fylgja unglingsárunum
Sigurvegari Íslensku barnabókaverð-
launanna 2020
DÁSAMLEGA
FYNDIN
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | Um helgar 11–16 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
REYK JAVÍK Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri segist ekki eiga von á
því að breytingar verði á meðferð
reikningsskila Félagsbústaða í sam-
stæðu Reykjavíkurborgar í kjölfar
álits reikningsskila- og upplýsinga-
nefndar sveitarfélaga um sam-
stæðureikning Reykjavíkurborgar.
Hann segir að skýrt hafi komið fram
í álitinu að borginni sé heimilt að
taka uppgjör Félagsbústaða inn í
samstæðureikning borgarinnar.
„Þetta eru atriði sem endurskoð-
endur og endurskoðunarnefnd
borgarinnar hefur til skoðunar á
hverjum tíma en þessu hefur verið
nokkuð skýrt svarað. Í samræmi
við 39. grein ársreikningalaga eru
fjárfestingareignir Félagsbústaða
færðar við gangvirði í saman-
teknum ársreikningi Reykjavíkur-
borgar. Í álitinu kemur skýrt fram
að heimilt er að beita ofangreindu
ákvæði,“ segir Dagur.
Borgarstjórinn bendir einnig
á álit reikningsskilaráðs, sem er
önnur nefnd skipuð af iðnaðarráð-
herra, frá því fyrr á þessu ári. „Þar er
mælt með því að færa fjárfestingar-
eignir á gangvirði óháð því hver til-
gangur með eignarhaldi eignanna
er,“ segir hann. Dagur bætir við
að endurskoðunarnefnd borgar-
ráðs muni fara yfir málið á næstu
dögum.
Í áðurgreindu áliti er tekið fram
að Reykjavíkurborg sé heimilt,
en ekki skylt, að taka ársreikning
Félagsbústaða óbreyttan inn í sam-
stæðureikning borgarinnar. Það
sé þó háð þeirri forsendu að starf-
semi Félagsbústaða sé skilgreind á
sviði fjárfestinga í fjárfestingafast-
eignum. Í lögum um ársreikninga
er hugtakið fjárfestingaeign skil-
greind sem „fasteign, land, bygging
eða hluti byggingar, sem ætluð er til
öf lunar tekna, svo sem til útleigu
eða í öðru ágóðaskyni, en ekki til
notkunar í rekstri eða, þjónustu“.
Dagur segir að í áðurnefndu
áliti reikningsskilaráðs komi fram
að mælt sé með því að færa fjár-
festingaeignir á gangvirði, óháð
tilgangi þeirra. „Félagsbústaðir
hafa verið að fjárfesta gríðarlega á
undanförnum árum í samræmi við
hús næðis áætlun borgarinnar og
fjölgun félagslegra íbúða. Borgin á
því í gegnum Félagsbústaði næstum
því 5 prósent alls húsnæðis í Reykja-
vík,“ segir hann.
Einar S. Hálfdánarson, sem
átti sæti í endurskoðunarnefnd
borgarráðs, sagði að allar fasteignir
Félagsbústaða ætti að færa á afskrif-
uðu kostnaðarverði, til samræmis
við fasteignir borgarinnar sem til-
heyra A-hluta borgarsjóðs.
Dagur segir að borginni sé heim-
ilt að færa eignir Félagsbústaða
inn á gangvirði, að því gefnu að
matsaðferð Félagsbústaða sé hin
sama og samstæðureikningur gerir
ráð fyrir. Hann hafnar því að blikur
séu á lofti um eiginfjárstöðu borgar-
innar. „Öllum er það ljóst að gang-
verð gefur mun betri upplýsingar
um raunverulegt verðmæti eignar
heldur en afskrifað kostnaðarverð,
miðað við aðstæður á Íslandi. Ef
það yrði ekki gert myndi gagnsæið
minnka og miklar duldar eignir
vera í bókum borgarinnar. Eitt af
grundvallarhugtökum reiknings-
skila er að þau gefi sem gleggsta
mynd af öllum stærðum, þar á
meðal eignum, skuldum og eigin fé.“
Dagur segir fjárfesta ánægða.
„Fjárfestar sem eiga skuldabréf
Reykjavíkurborgar og Félagsbú-
staða hafa verið mjög sáttir við að
fylgt sé alþjóðlegum reikningsskila-
reglum varðandi Félagsbústaði en
ekki einhverjum sérsmíðuðum
eða sérviskulegum útúrdúrum
sem gera ársreikninga ólæsilega
og ósambærilega við hefðbundin
uppgjör. Enda hafa ekki komið
óskir frá fjárfestum um að breyta
uppgjörsaðferðum Félagsbústaða,
þvert á móti. Fjárfestar hafa líka
verið mjög ánægðir með þá faglegu
styrkingu sem skipun endurskoð-
unarnefndar hefur haft í för með
sér. Það er valinn maður í hverju
rúmi þegar kemur að uppgjörum
og endurskoðun hjá borginnni.“
thg@frettabladid.is
Hafnar að eigið fé sé ofmetið
Borgarstjóri segir álit reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga ekki kalla á breytingar á fram-
setningu samstæðureiknings borgarinnar. Hann hafnar „sérviskulegum útúrdúrum“ við framsetningu.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir fjárfesta ánægða.FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VESTFIRÐIR Hafnarstjórn Ísafjarðar
segir að nýju snjóflóðasetri sé ekki
hægt að koma fyrir í Flateyrarhöfn
vegna snjóf lóðahættu. Eins og
Fréttablaðið greindi frá í septem-
ber er hópur fólks sem vill koma
setri upp á Flateyri til að fræða fólk
um þessa miklu náttúruvá. Upp-
haflega stóð til að koma því fyrir í
gömlu pakkhúsi í þorpinu en síðan
hafa komið upp hugmyndir um að
setja það í varðskipið Ægi.
Veðurstofa Íslands vinnur nú að
nýju hættumati fyrir Flateyri og
fleiri staði vegna þess að snjóflóðin
í janúar fóru yfir leiðigarða. Í ljósi
þess telur hafnarstjórn að ekki sé
tímabært að taka ákvarðanir um
framkvæmdir við höfnina.
Þá telur stjórnin einnig að plássið
í höfninni sé of takmarkað til að
koma varðskipinu þar fyrir undir
snjóf lóðasetur og auk þess væri
ekki hægt að koma því fyrir án fjár-
stuðnings frá öðrum opinberum
aðilum. Telur hafnarstjórn þó um
áhugaverða hugmynd að ræða þó
að þessi útfærsla henti ekki.
Landhelgisgæslan hafði fyrir sitt
leyti tekið vel í hugmyndina um að
nota Ægi undir snjóflóðasetur. Ægir
hefur ekki verið í notkun um nokk-
urt skeið. Birgi Gunnarssyni, bæjar-
stjóra Ísafjarðar, hefur verið falið
að vinna málið áfram með þeim
sem vilja koma setrinu upp. – khg
Snjóflóðasetur ekki í höfnina vegna snjóflóðahættu
Reynt er að finna snjóflóðasetri
stað á Flateyri. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
COVID -19 Af þremur sjúklingum
sem liggja á gjörgæslu vegna
COVID-19 eru tveir í öndunarvél.
Þetta kom fram á upplýsingafundi
almannavarna í gær.
Alls eru nú 1.159 einstaklingar í
einangrun með virkt smit á land-
inu og sæta 2.542 sóttkví. 21 liggur
á sjúkrahúsi.
Í gær greindust alls 33 með innan-
landssmit hér á landi sem er fækkun
frá fyrri dögum. Ísland er eitt fjög-
urra landa í Evrópu þar sem tíðni
daglegs smits og meðaltal síðustu
viku fer minnkandi.
Þrátt fyrir að faraldurinn sé í nið-
ursveiflu varar Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir við að sigurinn sé
hvergi nærri í höfn.
„Þetta er langhlaup eins og við
höfum sagt margoft áður og það er
ljóst að það þarf lítið út af að bregða
til að við fáum bakslag í faraldurinn
hér innanlands,“ sagði Þórólfur á
fundinum.
Þá greindust 17 smitaðir á landa-
mærunum sem er óvenjuhá tala.
– atv
Tveir sjúklingar
í öndunarvél
Sóttvarnalæknir segir sigur á
veirunni hvergi nærri í höfn.
Það er valinn
maður í hverju rúmi
þegar kemur að uppgjörum
og endurskoðun hjá borg-
inni.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
2 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð