Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2020, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 23.10.2020, Qupperneq 24
Miðhraun 2 · 210 Garðabæ · 587 1300 · kapp@kapp.is · www.kapp.is KAPP er leiðandi í sölu og þjónustu á flutningstækjum og búnaði KAPP leggur ríka áherslu á góða þjónustu og vandað verk enda eru einkunnarorð fyrirtækisins í stóru sem smáu „Þú finnur traust í okkar lausn“. Schmitz Cargobull trailervagnar. • Innflutningur og sala. • Nýjir og notaðir vagnar. • Kassaviðgerðir. Allar stærðir og gerðir. • Lengjanlegar. • Hefðbundnar. • Nýjar eða notaðar. • Viðgerðarþjónusta. Allar gerðir frá DHollandia. • Litlir sendibílar. • Stórir flutningabílar. • Langferðabílar. • Hjólastólalyftur o.fl. Rennismíði og fræsivinna á öllum tegundum plasts og málma. • Upptekning á hvers kyns vélum og heddum. • Verðtilboð í stærri viðgerðir. Carrier fyrir bifreiðar og vagna. • Allar gerir af bílum • Allar gerðir af vögnum. • Orkusparandi. • Umhverfisvænt. • Hedd plönuð og þrýstiprófuð. • Ventlar og ventilsæti slípuð og skorin. • Sveifarásar mældir og renndir • og svo margt fleira. FLUTNINGALAUSNIR TRAILERVAGNAR GÁMAGRINDUR KÆLIKERFI VÉLAVERKSTÆÐI VÖRULYFTUR RENNIVERKSTÆÐI Ford hefur frumsýnt nýja útgáfu af Transit-sendibílnum sem kallast einfaldlega 5.0 tonne. Að sögn Ford er hér um að ræða sendibíl með mestu flutnings- getu Ford-sendibíla og er honum ætlað að keppa við MAN TGE og Mercedes Sprinter. Hann mun fara í sölu í næsta mánuði og verða fyrstu bílarnir afhentir í byrjun næsta árs. Eins og nafnið gefur til kynna er heildarþyngd sendibílsins fimm tonn og getur hann flutt allt að 2.383 kíló af varningi. Það er 300 kílóum meira en venjulegur Ford Transit. Að sögn Ford er auðvelt að breyta bílnum í sjúkrabíl eða smárútu með allt að 19 sætum. Til að ráða við aukna flutningsgetu er bíllinn með sterkari bremsum og hjólabúnaði. Auk þess hefur yfir- bygging hans verið styrkt. Drifið og afturöxullinn kemur úr Transit fyrir Norður-Ameríkumarkað en sá bíll getur flutt allt að 3.500 kíló. Aðeins ein vél verður í boði sem er tveggja lítra dísilvél með forþjöppu og skilar hún 168 hestöflum, og 390 newtonmetra togi. Hægt verður að velja um sex gíra beinskiptingu eða tíu þrepa sjálfskiptingu. Fyrir handhafa ökuskírteinis sem gefið er út fyrir 11. ágúst 1997 þarf ekki meirapróf á þennan bíl en svo- kallað C1-próf fyrir þá sem tekið hafa próf eftir það. Ford frumsýndur Með sjálfskiptingu er eyðslan kringum 10 lítrar á hundraðið. Rivian mun framleiða nýja bílinn fyrir Amazon í 10.000 eintökum til að byrja með. Verða bílarnir tilbúnir fyrir 2022 en áætlað er að byggja alls 90.000 slíka fyrir árið 2030. Er verðmæti þessa samnings áætlað í kringum 5 milljarða dollara. Ekki hefur verið tilkynnt um tæknileg atriði nýja bílsins en sagt hefur verið frá nokkrum fídusum hans eins og 360 gráðu myndavélabúnaði sem er tengdur við upplýsingakerfi bílsins. Einnig verður fullkomin umferðaraðstoð í bílnum. Að sjálfsögðu verður bíllinn með Amazon Alexa raddstýribúnaði og verður hægt að nota hann til að stýra leiðsögukerfi og fá upp- lýsingar um veður fram undan. Á ameríska vísu verður aftur- hurðin svokölluð rúlluhurð og f lutningsrýmið með sérstöku hillukerfi. Hjól bílsins eru eins nálægt hornum hans og hægt er til að auka rými innandyra en það hjálpar líka bílnum við akstur í þrengri aðstæðum. Amazon keypti í febrúar síðastliðnum hlutabréf í Rivina fyrir 700 millj- ónir dollara en Ford hefur einnig fjárfest í Rivina með það fyrir augum að eiga samstarf um f leiri rafdrifin farartæki. Amazon og Rivianí í samstarfi um sendibíl Amazon hefur frumsýnt nýjan rafdrifinn sendibíl sem hannaður var í samstarfi við Rivian-rafbílaframleiðandann. Framendinn minnir nokkuð á andlit nýja Honda e rafbílsins. Það er ekki laust við að maður finni til þó nokkurrar smæðar við að sjá þennan samanburð manns og Komatsu 830E kolatrukks. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Stærstu bifreiðar veraldar eru það gríðarstórar að maðurinn verður bókstaflega eins og mús í samanburði. Víða eru gífurlegir risatrukkar notaðir í námugreftri. Risa-sturtubílar, sem notaðir eru til að ferja þung hlöss af málmgrýti úr námum vega þá hátt í 453.592 kíló og er burðar- getan yfir 300 tonn. Trukkar af þessari stærðargráðu eru knúnir áfram með um 3.000 hestöflum en til samanburðar er Honda Fit með um 117 hestöfl og Jagúar XF 300 hestöfl. Hæð námutrukks af þessari stærðargráðu er yfir sex metrar, sem þýðir að bílstjórinn gæti klöngrast úr bílstjórasætinu inn um opinn glugga á annarri hæð á venjulegu húsi. Trukkarnir eru þá rúmlega fimmtán metrar að lengd sem er svipuð lengdinni á á fullorðnum hnúfubak. Slík ferlíki nota gríðarlegt magn af jarðeldsneyti sem stuðlar að töluverðri mengun. Framleið- endur eru því farnir að skoða umhverfisvænni orkugjafa. Anglo American, ENGIE og Williams Advanced Engineering hafa unnið saman að framleiðslu heimsins stærsta vetnisknúna námu- trukksins. Markmiðið er að hann sé jafnvígur ef ekki kraftmeiri en sambærilegir dísiltrukkar. Þessi námutrukkur er um 290 tonna sturtubíll og telst nú stærsta raf- magnsbifreið í heimi. Vetnisbúnaðurinn mun gera námutrukkana hljóðlátari og ódýrari í viðhaldi en dísiltrukka. Í stað dísilvélar er lithium-rafhlaða og er trukkurinn því bæði vetnis- og rafmagnsknúinn. Þá hefur hann orkuhleðslu upp á 1.000 kílóvatt- stundir sem gerir honum kleift að vinna í sömu erfiðu aðstæðunum og dísiltrukkar. Fyrstu trukkarnir fóru í framleiðslu á þessu ári og fara prófanir fram í platínunámum í Mogalakwena í Suður-Afríku. Trukkar á stærð við hnúfubak Vetnisbúnaðurinn mun gera námu­ trukkana hljóðlátari og ódýrari í viðhaldi en dísiltrukka. 10 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.