Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Page 6
VEIRAN ER ÓVINURINN
Hann segir
átakanlegt
að sjá hvað
sjúklingar
upplifa
oft mikla
vanlíðan, ekki
bara líkamlega
heldur
andlega.
MYNDIR/
ANTON BRINK
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
G eir Þorvaldsson hefur áralanga reynslu sem slökkviliðs- og sjúkra-
flutningamaður. Hann mætir
á sínar vaktir í Skógarhlíð þar
sem Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins er til húsa. Hús-
næðinu hefur verið skipt upp í
hólf og þeir sem eru á ólíkum
vöktum mega ekki hittast. Þá
er búið að koma þar upp sér-
aðstöðu með herbergjum fyrir
starfsfólk ef grunur vaknar
um smit eftir útkall og það
þarf að fara í sóttkví.
Aldrei nær stríðsástandi
„Gamall maður sagði eitt sinn
við okkur þegar við vorum í
sjúkraflutningum niðri í bæ
að hann hefði aldrei upplifað
stríðsástand á Íslandi og að
vonandi kæmumst við aldrei
nær því en þetta þar sem allt
er lokað og fólk lokað inni á
eigin heimilum.“
Geir segir sjúkraflutninga
vegna COVID vera tvenns
konar. „Annars vegar er það
svokallaður sitjandi flutning-
ur þar sem fólk getur sjálft
gengið út í bíl og við keyrum
það á áfangastað. Síðan eru
það liggjandi flutningar þeg-
ar fólk er orðið veikara. Þá
komum við á sjúkrabíl með
sjúkrabörum. Almennt fara
tveir í flutninga en þegar
sjúklingarnir eru orðnir
veikari kemur þriðji starfs-
maður með sem er til að-
stoðar. Hann keyrir á eftir á
sérbíl, opnar dyr og slíkt en
er ekki í beinni snertingu við
sjúkling.“
Veikustu sjúklingarnir eru
fluttir á gjörgæsluna eða aðr-
ar deildir Landspítalans sem
hafa verið nýttar fyrir inn-
lagnir vegna COVID en aðrir
eru jafnvel keyrðir í tíma á
COVID-göngudeildinni og
síðan aftur heim.
Vita ekki hvað gerist næst
Þá þarf stundum að fara með
sjúklinga í sóttvarnahúsin.
„Við höfum jafnvel verið að
keyra fólk af heimili sínu og
í sóttvarnahús og því finnst
það nánast vera að fara í fang-
elsi.“
Hann segir átakanlegt að
sjá hvað sjúklingar upplifa
oft mikla vanlíðan, ekki bara
líkamlega heldur andlega.
„Það er erfitt að sýna samúð
í gegn um grímu og annan
hlífðarbúnað. Fólk heyrir líka
oft verr í manni. Margir skilja
heldur ekki hvernig þeir gátu
smitast því þeir fóru svo var-
lega en það sýnir bara hvað
þetta er bráðsmitandi.“
Hann segir það líka reyna
á aðstandendur sem stundum
upplifa að þeir séu að kveðja
í hinsta sinn. „Sem betur fer
er það sjaldnast raunin. Þeim
finnst erfitt að horfa upp á
fólk sett á sjúkrabörur og þeir
fá ekki að fara með. Þeir vilja
líka oft vita hvað gerist næst
og hvert við förum með við-
komandi en við höfum stund-
um engin svör því við vitum
ekkert hvernig sjúkdómurinn
leggst á fólk og oft gerast hlut-
irnir mjög hratt.“
Pössum upp á okkur
Geir segir samstarfið við
heilbrigðisstarfsfólk, lög-
reglu og 112 afar gott og
greinilegt að allir séu að gera
sitt besta.
Þá hefur daglegt líf utan
vinnunnar líka litast af
ástandinu. „Þetta er krefj-
andi vinna sem byggist líka á
félagsskap og vináttu og það
er erfitt að mega ekki hitta
fólk sem maður vinnur með.
Nú skiptir bara máli að allir
hugi vel að sóttvörnum og
passi vel upp á sig og fólkið
sitt. Veiran er ekkert að fara í
bráð en við getum gert margt
til að ástandið verði bæri-
legra.“
Geir segir
marga ekki
skilja hvernig
þ e i r gá t u
smitast því
þeir fóru svo
varlega.
Finnst þeir vera að
kveðja í hinsta sinn
Það er
erfitt að sýna
samúð í gegn
um grímu
og annan
hlífðar-
búnað.
Aldrei hafa fleiri dvalið í farsóttarhúsunum en liðna
viku. Smituðum í þriðju bylgju COVID-19 virðist þó
fækka hægt. Á þessum fordæmalausu tímum starf-
ar fjöldi fólks í framlínunni við krefjandi aðstæður.
Við fáum hér innsýn í dagleg störf þriggja þeirra.
MYND/ANTON BRINK
GEIR ÞORVALDSSON SLÖKKVILIÐS- OG SJÚKRAFLUTNINGAMAÐUR
6 FRÉTTIR 23. OKTÓBER 2020 DV