Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Side 7
FRÉTTIR 7
Markmiðið með starfi göngudeildarinnar er að fólk þurfi ekki á innlögn að halda. MYNDIR/ANTON BRINK
ERNA NILUKA NJÁLSDÓTTIR HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Á COVID-GÖNGUDEILD
E rna Niluka hefur starf-að á COVID-göngu-deild Landspítalans frá
því hún var sett á laggirnar
í vor og tók þátt í uppbygg-
ingu deildarinnar. Þar vinnur
teymi hjúkrunarfræðinga,
lækna, sjúkraliða og ritara og
á skömmum tíma skapaðist
þar mikil sérþekking.
Deildin er í gömlu iðnaðar-
húsnæði á lóð Landspítalans í
Fossvogi, gulu húsi sem kall-
ast Birkiborg. „Þessi deild er
alveg mögnuð. Hún var búin
til á þremur sólarhringum.
Iðnaðarmenn voru að störfum
þegar ég fór heim á miðnætti
og enn voru iðnaðarmenn
að störfum þegar ég mætti
klukkan sjö um morguninn.
Það hefur verið einstakt að
taka þátt í þessu verkefni þar
sem fólk tók höndum saman.
Við fundum öll strax að veiran
var óvinurinn og við vorum
öll saman í liði gegn henni.“
Stór hópur að veikjast núna
Erna segir deildina í raun
vera heilsugæslu allra COV-
ID-smitaðra á meðferðartíma
sjúkdómsins. Markmiðið sé að
fólk geti verið heima og þurfi
ekki á innlögn að halda. „Við
vinnum út frá lista yfir alla
smitaða. Þegar fólk greinist
smitað þá erum það við sem
hringjum og tilkynnum um
smitið. Við gerum áhættumat
sem er meðal annars skipt
niður í grænan, gulan og
rauðan. Eftirlit okkar er síðan
skipulagt eftir þessu áhættu-
mati. Grænn merkir að fólki
líður vel og er með lítil ein-
kenni, gulur að fólk sé veikt
og versnandi og rauður að fólk
sé með alvarleg einkenni og
þarfnist læknis.“
Áfram er síðan hringt
reglulega í fólk og staðan tek-
in. „Ef einstaklingur fer allt í
einu að upplifa einhvers konar
versnun þá fær hann tíma á
göngudeildinni. Þar tökum
við lífsmörk og blóðprufu.
Stundum kemur fólk daglega
á göngudeildina, fær heild-
rænt mat og jafnvel vökvagjöf
og lyfjameðferð, fer heim og
kemur síðan aftur næsta dag.
Við reynum að grípa inn í
tímanlega til að fyrirbyggja
innlögn. Á sjöunda til tíunda
degi versnar fólki oft mjög en
það er ýmislegt hægt til að
minnka líkur á því með því
að meðhöndla einkenni sjúk-
dómsins.
Það er alveg brjálað að gera
núna í framhaldi af því þegar
yfir þrjú hundruð manns
smituðust á þremur dögum
nýlega. Það fólk er að veikjast
núna.“
Skima vímuefnaneytendur
Undanfarið hefur Erna meðal
Finnum að við höfum tilgang
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
annars verið vaktstjóri á
göngudeildinni en einnig
sinnt ýmsum sérverkefnum.
„Við höfum tveir hjúkrunar-
fræðingar verið að fara með
lögreglu að skima vímuefna-
neytendur. Það hafa verið að
koma upp smit í undirheim-
unum og þar sem þessir ein-
staklingar eru mjög ólíklegir
til að koma sjálfir í próf förum
við til þeirra. Við hringjum þá
á undan okkur og fáum sam-
þykki. Það eru ekki allir til í
þetta en fólk er almennt mjög
þakklátt.“
Hún segir mestu áskoran-
irnar tengjast fólki í neyslu
og þeim sem búa við erfiðar
félagslegar aðstæður. „Ein-
stæðar mæður hafa þurft að
vera veikar heima með þrjú
börn í einangrun. Sumir hafa
þurft að sinna ungum börnum
sínum með hanska og grímu.
Við höfum engin úrræði til að
hjálpa fólki í þessum aðstæð-
um. Við höfum meira að segja
íhugað að senda fólk með mót-
efni inn á heimili til að hjálpa
en þá gæti fólk komið út með
snertismit sem síðan dreifði
sér og yrði eflaust of flókið
með tilliti til sóttvarna. Það
reynir líka mikið á andlega
þegar fólk þarf kannski að
vera lokað inni í einu herbergi
íbúðarinnar fjarri öðrum í
fjölskyldunni.
Sturta eftir hverja vakt
Erna segir sérstakt að vinna í
hlífðargallanum og starfsfólk
hafi fengið kennslu í að fara
í hann og úr til að sóttvarnir
séu tryggðar. „Við reynum
að tryggja að enginn þurfi
að vera í gallanum lengur en
eina, tvær klukkustundir. Það
er mjög heitt, svitinn lekur af
manni og fólk er með móðu
á gleraugunum að setja upp
nálar og taka blóðprufur. Eft-
ir hverja vakt, og stundum á
miðri vakt, förum við í sturtu.
Það gladdi okkur mikið þegar
hárvörufyrirtæki gaf okkur
vörur og allt í einu voru allir
með svo vel ilmandi hár eftir
vinnu. Þetta gerði mikið fyrir
andlega hlið starfsfólks ásamt
öðrum gjöfum.“
Hún segir gallann gera það
að verkum að það sé erfitt að
vera persónulegur við sjúkl-
inga. „Það getur verið erfitt
að sýna hlýju bara með aug-
unum. Fólk er oft mjög þakk-
látt fyrir snertinguna þegar
við tökum í höndina á því,
jafnvel þó við séum í hlífðar-
fatnaði, því snerting er okkur
svo mikilvæg.“
Þrátt fyrir krefjandi verk-
efni segir hún starfsandann
á deildinni vera afskaplega
góðan. „Ég hlakka alltaf til
að koma í vinnuna. Á þessum
undarlegu tímum höfum við
heilbrigðisstarfsfólk líka
fundið fyrir því að við skipt-
um máli og höfum tilgang.
Það gefur manni auka orku
til að halda áfram.“
Erna segir
gallann gera
það að verk-
um að það sé
erfitt að vera
persónulegur
við sjúklinga.
Sumir hafa
þurft að
sinna ung-
um börnum
sínum með
hanska og
grímu.
DV 23. OKTÓBER 2020
Framhald á síðu 22 ➤