Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Blaðsíða 11
fisk þó að ég borði hann. Ég væri orðinn vegan ef ég væri ekki svona latur. Ég er að bíða eftir því að kjöt verði bannað. Ég væri bara feginn.“ Viðbjóður víða Stefán Máni á 15 ára dreng og 19 ára stúlku. „Ég er heppinn með það að þau vilja ennþá gera hluti með mér og við erum miklir vinir. Það að for- eldrar séu svo hallærislegir held ég að byrji bara um leið og maður eignast barn. Þá er maður orðinn gamall og fárán- legur. Ég er mátulega fárán- legur, þau vilja allavega ennþá gera hitt og þetta með mér og það er ennþá einhver rútína í heimsóknum þó að þetta sé auðvitað orðið fullorðið fólk.“ Börn Stefáns Mána nálgast sögupersónur föður síns hratt í aldri en í Svartur á leik eru þolendur ofbeldis ungt fólk og í nýju bókinni koma táningar við sögu með sorglegum hætti. Hræðist hann ekki að börnin hans séu á þessum aldri, vitandi hvaða hættur og hreint út sagt viðbjóður leynist víða? „Ég er það heppinn – 7, 9, 13 – að krakkarnir mínir eru það heilbrigð og skynsöm að þau eru mjög langt frá þessum hliðarvegi í lífinu. Ef maður fer að velta sér upp úr því ljóta sem getur gerst og hvað heim- urinn er hættulegur hættir maður að geta sofið.“ En þú vinnur við að velta þér upp úr því ljóta? „Já, en ég velti mér ekki mikið upp úr því þess á milli. Kannski losa ég þetta bara út í skrifum,“ segir Stefán og viðurkennir að sig dreymi þó stundum illa en það eigi lík- lega við um flesta. Hefur ofbeldi breyst á þess- um rúmu tveimur áratugum sem þú hefur skrifað spennu- og glæpasögur? „Já, þegar þú segir það. Þetta var alltaf þetta hand- rukkunardót og undirheima- dæmi. Mér finnst hafa verið miklu minna að frétta af ógeðslegum handrukkunum, þar sem er verið að halda fólki í gíslingu þó að það gerist enn. Mér finnst eins og að undir- heimaógeðið sé ekki eins og það var. Kynferðisbrot og heimilisofbeldi er mun meira finnst mér og það er ofbeldið sem mér finnst allra verst.“ Í skrifum sínum spilar Stefán Máni oft inn á hræðslu og taugaveiklun. Hann segist þó ekki muna eftir því hve- nær hann varð fyrst sjálfur hræddur. „Ég held að ég hafi bara alltaf verið hræddur. Bara við allan fjandann, mað- ur. Ég var myrkfælinn sem barn. Ef þú skilur mig eftir í sumarbústað úti í rassgati þá verð ég hræddur. Ég er veður- hræddur. Þoli ekki að keyra úti á landi í vondu veðri. Ég get líka verið alveg hrikalega draugahræddur.“ Til að trúa á drauga þarf maður að trúa á eitthvað ann- að og meira. „Já. Það er svo helvíti óspennandi ef það er ekkert annað og meira.“ Fleiri kvikmyndir Stefán segist sjálfur hafa minnkað ofbeldið í eigin skrif- um og ekki vera að bæta í með hverri bók. „Ég hef eiginlega farið í þveröfuga átt. Ég hef enga löngun til þess að skrifa eða lesa svona grafískt. Það er vandmeðfarið. Spenna skiptir máli og spenna er ekki það sama og ógeð. Ég hef alveg skrifað hluti sem sjokkera mig og mér finnst virkilega óþægilegir og ég í raun veit ekki alveg hvernig ég gerði það. Það skiptir mestu máli að það sé spennandi. Ég er ekki að reyna að sjokkera. Ég held ég geri það nú heldur ekki.“ Nautið kom út árið 2015 og segir Stefán að hún sé ein af bestu bókum sínum en hún FRÉTTIR 11DV 23. OKTÓBER 2020 Ég gæti aldrei drepið neitt. Ekki einu sinni fisk þó að ég borði hann. Ég væri orðinn vegan ef ég væri ekki svona latur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.