Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Qupperneq 22
KJÖTSÚPA Á FYRSTA VETRARDAG Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is SÚ KRYDDAÐA Tími: 2 klst. Fyrir 4-6 Þessi er líklega ólíkust hinni klass- ísku súpu og leitað er í austurlenska matargerð. Hér er tilvalið fyrir þá djörfu að leika sér enn frekar með bragðið og breyta og bæta eftir smekk og ævintýragirni og til dæmis nota ögn af kóresku gouchujang- mauki með í súpuna. 800 g lambasíðubitar skornir í hæfilega bita (má nota annað feitt lambakjöt) 1,6 l vatn 50 ml soyasósa 6-7 dropar fiskisósa 100 g engifer, skrældur 2 stk. chili 6 geirar hvítlaukur 8 stk. nýjar gulrætur 1 stk. laukur, skrældur 30 g hrísgrjón 1 búnt vorlaukur 15 g kóríander Byrjið á að setja síðubita og vatn í pott og stillið á miðlungshita og bíðið eftir suðu. Á meðan suðan er að koma upp skerið chili, hvítlauk og engifer í litla bita. Því næst einnig gulrætur og lauk í litla bita. Þegar suðan er komin upp, fleytið þá froðuna sem kemur í fyrstu suðu frá. Því næst bætið við soyasósu, fiski- sósu, engifer, hvítlauk og chili og leyfið að sjóða í 20 mín. Hugrakkir geta bætt við 2 msk. af gouchujang- mauki út í soðið. Bætið við gulrótum, hrísgrjónum og lauk og sjóðið í rétt rúmlega 30 mínútur. Á þessum tímapunkti er best að smakka til súpuna og athuga hvort vanti meira salt en þá má annað- hvort bæta meira salti eða meiri soyasósu út í. Rétt áður en að súpan er borin fram er bæði vorlaukur og kóríander saxað fínt og bætt við. Verði ykkur að góðu. Gísli Matthías Auðuns-son, matreiðslumeist-ari og veitingamaður, deilir hér óhefðbundinni út- gáfu af kryddaðri kjötsúpu en Gísli heldur mikið upp á íslenskt hráefni og hefur haldið heiðri gamalla rétta á lofti. Hann er óhræddur við að blanda saman gömlum og nýjum hefðum. Aðspurður um kjötsúpu- blæti Íslendinga segir hann líklegustu ástæðuna fyrir vinsældum súpunnar, fyrir utan hvað hún sé góð, að klassíska ömmuuppskriftin er auðveld og hráefnið ódýrt. Sjálfur notar Gísli yfirleitt ekki súputeninga. „Það sem ég geri sem er kannski svo- lítið óhefðbundið er að ég set alveg extra mikið af beinum út í þegar ég er að laga súp- una. Rista þau fyrst í ofni og þá kemur svo góður kraftur í súpuna.“ Hvernig má bjarga bragðlausri súpu? „Gott salt kemur manni langt, en svo er auðvitað allt í lagi að setja einhvers konar kjötkraft í súpuna. En oft getur verið gott að setja bara ögn meira af súpujurtum og salti til að hún verði bragð- betri. Svo má fólk auðvitað líka leika sér og setja hvít- lauk og chili í súpuna – það er í raun fátt heilagt í súpunni annað en að nota lambakjöt og vel af grænmeti.“ Landsmenn kannast við að heyra talað um ullarbragð af lambakjöti en Gísli kann ráð við því eins og flestu öðru. „Ullarbragðið kemur oftast ef fitan og brákin sem kemur þegar kjötið er soðið í byrjun er ekki tekið og því leyft að malla vel og lengi í súpunni. Mæli með að passa upp á það. Einnig, ef það er of mikil fita getur hún gefið ákveðið þrá- abragð í súpuna, þannig að þá er einnig gott að fleyta fituna af toppnum með ausu. En svo snýst þetta bara um að krydda hana aðeins meira.“ n Síðastliðin ár hefur íslensku kjöt- súpunni verið gert hátt undir höfði með Kjötsúpudeginum sem haldinn er fyrsta vetrardag á Skólavörðustíg en svo verður ekki í ár. Því er fólk hvatt til þess að smella í góða súpu heima. Gísli Matthías eigandi Skál og Slippsins í Vestmanna- eyjum. MYNDIR/ AÐSENDAR 22 FÓKUS 23. OKTÓBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.