Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Page 27
SAKAMÁL J oseph Sonnier var dug­legur og vinsæll læknir í smábænum Lubbock í Texas. Hann hafði um stund sleikt sárin eftir 27 ára hjóna­ band með konu sem yfirgaf hann fyrir annan mann. Þeg­ ar hér var komið sögu hafði Joseph fyrir löngu jafnað sig á skilnaðinum og naut þess að vera einhleypur. Joesph átti tvo syni sem voru fullorðnir og átti hann í góðu sambandi við þá. Læknir sleikir sárin Joseph flutti frá Dallas til Lubbock árið 2007, eftir skilnaðinn. Þar varð hann vinsæll og virtur. Hann sótti danstíma og vingaðist við nokkrar konur. Árið 2011 kynntist Joseph hinni fögru Richelle Shetina. Hún átti fjögur börn. Joseph og Richelle náðu mjög vel saman og urðu náin þó að Jo­ seph væri ekki mjög fús til að giftast aftur. En í júlí árið 2012 var bundinn snöggur og sorg­ legur endi á ástir Richelle og Josephs. Snemma að morgni hringdi kona skelfingu lostin í neyðarlínuna. Hún var landslagshönnuður og hafði verið að vinna að verkefni á lóð læknisins. Sá hún að dyrnar voru brotnar upp og heil gluggarúða hafði verið tekin út. Er lögregla kom á staðinn fannst Joseph látinn. Hann hafði verið skotinn og hlotið margar hnífstungur. Joseph bjó í rólegu og glæpalausu hverfi. Ekkert hafði verið tekið af heimilinu. Ljóst virtist því frá upphafi rannsóknar að hér lá eitthvað persónulegt að baki. Fyrri elskhugar kannaðir Lögreglan ræddi við Richelle Shetina sem var harmi slegin og sagði hún að hefði elskað Joseph heitt. Hún greindi lög­ reglunni frá því að einhver maður hefði verið að fylgjast með parinu í nokkra mánuði fram að morðinu. Hún þekkti þann mann ekki í sjón. Þegar Richelle var spurð út í fólk sem gæti verið ósátt út í samband hennar og Josephs nefndi hún til sögunnar konu sem Joseph hefði verið í tygj­ um við í um sjö ár. Hún hefði hvað eftir annað hringt í Jo­ seph eftir að hann tók saman við Richelle og hellt sér yfir hann. Þegar hann hætti að svara símhringingum frá henni sendi hún honum orð­ ljót textaskilaboð. En hvað með fyrri elsk­ huga Richelle? Hún nefndi lýtalækninn Mike Dixon sem bjó í Amarillo, skammt frá Lubbock. Richelle og Mike höfðu átt í sambandi er hann var giftur og hafði sambandið leitt til þess að kona hans skildi við hann. Er Rich elle sleit sambandinu við hann tók hann því mjög illa og talið var að hann væri enn ástfanginn af henni. Lögreglumenn óku frá Lub­ bock til Amarillo og ræddu málið við Mike. Hann viður­ kenndi að hann væri enn mjög hrifinn af Richelle en ekki hvarflaði að honum að myrða vegna þess. Auk þess hefði hann ekki talað við Rich elle í marga mánuði. Einnig kom á daginn að Mike hafði fjarvistarsönnun nótt­ ina sem Joseph var myrtur. Eftir þetta leit út fyrir að Mike Dixon tengdist málinu ekki neitt en annað átti eftir að koma á daginn. Maður að nafni Paul Reynolds kom að máli við lögreglu og sagði frá því að meðleigjandi hans hefði játað fyrir honum að hafa myrt mann í Lubbock og hann hefði síðan reynt að svipta sig lífi. Sagði Reynolds að frásögn mannsins passaði við morðið á Joseph Sonnier eins og greint hefði verið frá því í fjölmiðlum. Vinur lýtalæknisins Maðurinn sem Reynolds greindi frá hét Dave Shep­ ard. Sá maður var stórgerður og feitur, fráskilinn og at­ vinnulaus. Lögregla komst fljótt að því að hann hafði átt í vinfengi við Mike Dixon lýtalækni og leit mjög upp til hans, langaði til að ná langt í lífinu eins og hann, en var órafjarri því. Dave Shepard var með dóma á bakinu, meðal annars fyrir þjófnað. „Eitthvað gerðist sem olli því að Dave fannst hann þurfa að hefna fyrir Mike,“ sagði Paul Reynolds við lög­ regluna. Hann sagði lögreglu jafnframt að samkvæmt frá­ sögn Daves Shepard hefði Mike Dixon borgað honum fyrir að myrða Joseph Sonn­ ier. Dave Shepard játaði undir yfirheyrslum. Hann hafði brotið sér leið inn í húsið, skotið á lækninn og síðan stungið hann mörgum sinn­ um með hnífi. Jafnframt fundust gögn um textaspjall Daves og lýtalæknisins þar sem sá síðarnefndi virtist hvetja hann til að ljúka verk­ inu. Mike Dixon harðneitaði hins vegar að hafa fengið Dave til myrða Joseph Sonn ier fyrir sig og sagðist einungis hafa greitt Dave fyrir að fylgjast með parinu og taka af því myndir. Það flækti stöðuna þegar Dave breytti sögu sinni til sam­ ræmis við framburð Dixons og sagði Dixon ekki hafa sagt sér að drepa Joseph, það hefði verið hans ákvörðun. Það breytti því ekki að báðir Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is voru fundnir sekir. Dixon tókst að fá áfrýjunarleyfi en var sakfelldur aftur. Báðir mennirnir sitja í ævilöngu fangelsi. Mörgum þykir sérstakt að vel stæður lýtalæknir skuli hafa ráðið leigumorðingja til að myrða annan lækni, ein­ göngu út af afbrýðisemi. En margt ótrúlegra hefur gerst en það. n Eftir þetta leit út fyrir að Mike Dixon tengdist málinu ekki neitt. Dave Shepard leit upp til lýtalæknisins. MYNDIR/ LÖGREGLAN Í LUBBOCK/TEXAS Lífið virtist brosa við Joseph er hann var myrtur. SKJÁSKOT/YOUTUBE Lýtalæknirinn Mike Dixon var afbrýðisamur. Tveir læknar og eitruð afbrýðisemi Joseph Sonnier hafði fundið ástina aftur eftir skilnað þegar hann var myrtur. Hver vildi gera þessum vinsæla, dáða og geðþekka lækni mein? Kærasta hans nefndi til sögunnar afbrýðisama fyrrverandi kærustu en svarið lá annars staðar. DV 23. OKTÓBER 2020 FÓKUS 27

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.