Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2020, Qupperneq 37
D óri DNA, leikari og grínari, er fæddur í Nautsmerkinu. Eins og dýrið sjálft vill Nautið oftast bara slaka og hafa það huggulegt. Það er mikill nautnaseggur og á það til að vera ögn þrjóskt. Nautin eru líka afar metnaðarfull og mjúk inn við beinið. Það kann að meta listir, góðan mat og lúxus. Það gæti tekið smá tíma að komast í innri hring Nautsins en þegar þú ert kominn þangað þá mun hann drepa fyrir þig, bókstaflega! Fjarki í sverðum Hvíld | Slökun | Hugleiðsla | Íhugun | Endurreisn Eitthvert ákveðið verk sem þú ert að sinna krefst auk- innar þolinmæði og innistæðan er ekki mikil. Það er mælt með því að þú gefir þér smá tíma til að byggja þig upp til þess að fá kraftinn í lokasprettinn. Það þýðir ekkert að brenna út áður en maður hefst handa við nýtt verk- efni. Hver getur hjálpað, í hvern getur þú hringt? Ekki gera lítið úr hugleiðslu, finndu hugleiðslu sem hentar þér, stundum fær maður skýrleika við það að fara út að hlaupa. Með því að hreinsa hugann þá birtast manni lausnir! Töframaðurinn Birtingarmynd | Útsjónarsemi | Kraftur | Innblástur Töframaðurinn er sannkallað gæfuspil, ef þú hlustar á það mun allt fara vel. Spilið er boðberi um vel heppnað verk sem mun gefa vel af sér. Það er notalegt að fá svona spil þegar mikil óvissa ríkir því það hjálpar manni að treysta ferlinu. Allt sem maður þarf að hafa aðeins meira fyrir verður ennþá meira virði að því loknu. Vertu skýr með ásetning því alheimurinn er að hlusta, að venju er ekki vitlaust að skrifa markið sín í bók, það er mikill galdur í því. Sexa í bikurum Rifja upp fortíðina | Bernskuminningar | Sakleysi | Gleði Hér kemur inn einhver nostalgía, æskuminningar. Veit ekki alveg hvað það táknar fyrir þig en það er eins og þú sért að heimsækja barnæskuna og þær tilfinningar sem með því komu. Þetta getur verið áminning um að rækta Skilaboð frá spákonunni Það ólgar kraftur innra með þér – líkt og landinu öllu. Leyfðu þér að gjósa. STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Dóri DNA SVONA EIGA ÞAU SAMAN Vikan 23.10. – 29.10. Metnaður og mýkt Ástfangin í draumalandi MYND/VILHELM stjörnurnarSPÁÐ Í L íkamsræktarfrumkvöðullinn Ágústa Johnson hefur verið talsvert í fréttum undanfarið að ræða um samkomub- ann og takmarkanir á starfsemi fyrirtækis hennar vegna COVID-19. Ágústa er gift utan- ríkisráðherranum Guðlaugi Þór Þórðarsyni og saman eiga þau fjögur börn. DV lék forvitni á því hvernig hjónin eiga saman ef litið er til stjörnumerkjanna. Ágústa og Guðlaugur eru bæði fædd í des- ember og bæði Bogmenn. Bogmaðurinn er eldmerki og er fullur af lífi. Það er frábær til- finning að sjá tvo Bogmenn koma saman og ást þeirra blómstra, það er eins og að fylgjast með barni vaxa úr grasi. Þau kunna vel á hvort ann- að og deila sömu gildum. Þau elska ekki bara hvort annað, heldur vilja þau kenna hvort öðru að elska mannkynið. Þegar tveir Bogmenn eru ástfangnir þá verða þeir svo niðursokknir að það er eins og þeir séu staddir í draumalandi. Þó svo að þau séu yfirleitt sammála um flest, þá kemur það fyrir að þau séu ósammála, sem endar yfirleitt vel, þökk sér samskiptahæfi- leikum parsins. n Ágústa Þóra Johnson Bogmaður 2. desember 1963 n Örlát n Hugsjónamaður n Húmoristi n Framtakssöm n Óþolinmóð n Lofar upp í ermina á sér Guðlaugur Þór Þórðarson Bogmaður 19. desember 1967 n Örlátur n Hugsjónamaður n Húmoristi n Framtakssamur n Óþolinmóður n Lofar upp í ermina á sér MYND/ANTON BRINK Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna? Hrútur 21.03. – 19.04. „Tekur einhver eftir því ef ég set smá Bailey’s í kaffið mitt í vinnunni?“ hugsar þú á meðan þú manst að þú ert að vinna heima hjá þér og þarft ekki einu sinni að fara í buxur! Leggðu frá þér flöskuna og taktu góðan göngutúr. Heima- vinna er krefjandi og fátt betra en að hreinsa hugann og virkja kroppinn. Naut 20.04. – 20.05. Ég get svo svarið það að ef þú segir enn einu sinni mánudagar til mæðu, þá öskrar einhver á þig! Ef þú vilt einhverja breytingu, þá verður þú að finna hana innra með þér, taka í taumana og VERA breytingin. Tvíburi 21.05. – 21.06. Þín spá er sögð í gömlum máls- háttum. Neyðin kennir naktri konu að spinna, þú deyrð ekki ráðalaus! Þú ert með fullt af hugmyndum. Nú er góður tími til að byrja á nýjum verkefnum eða í nýrri vinnu. Krabbi 22.06. – 22.07. Loks smá innri ró og allt að falla í réttan farveg. Þú sérð fyrir endann á óvissunni og nýtur þín vel í nátt- úrunni. Gott helgarfrí úti á landi er lyfseðill spákonunnar til þess að endurnæra taugarætur eftir spennufallið. Ljón 23.07. – 22.08. Rárrr! Rólegur, kisi. Ljónið er í sexí stuði þessa dagana. Hvar er glamúrinn? Hvar er gamla leður- flíkin mín? Hvar er tilefnið til þess að fara í þessa leðurflík? Kryddaðu tilveruna og bjóddu á stefnumót og sýndu allt sem í þér býr. Stefnumót með maka væri vinsælt. Meyja 23.08. – 22.09. Sammála um að vera ósammála er góð málamiðlun. Því miður breytum við ekki fólki og það er allt í lagi. Það er einhver pirringur í loftinu sem tengist ákveðnum aðila og er að angra þig en þú þarft bara að hrista það af þér og muna hversu litlu máli þetta skiptir í stóra sam- henginu. Vog 23.09. – 22.10. Vogin elskar fátt meira en að vera í flæðinu. Eftir örlitla sjálfsvorkunn tekur þú upp ofurhetjuskikkjuna og líður eins og þú sért ósigrandi! Með samt smá vott af efa en aðal- lega krafti kemstu aftur í flæðið og treystir því að heimurinn og innsæið leiði þig á rétta braut. Þú bara verður að treysta. Sporðdreki 23.10. – 21.11. Fortíðardraugur bankar upp á og það er alls ekki neikvæð upplifun. Þetta er meira í áttina að því að skilja og læra um okkur sjálf, skilja orsök og afleiðingar sem hafa orðið á vegi manns í gegnum tíðina. „Aha“-augnablik sem hjálpar þér að kafa dýpra í sjálfið. Bogmaður 22.11. – 21.12. Þér leiðist sjaldan og þú getur kennt sjálfum þér alfarið um. En það kemur ekki að sök. Þú ert fæddur með þennan drifkraft. Þarft bara að muna að finna jafnvægið í þessu stöðuga fjöri sem þú býður sjálfri þér og öllum þínum nánustu upp á. Það kemur. Steingeit 22.12. – 19.01. Það má skipta um skoðun og gera stórtækar breytingar. Fylgdu hjartanu þessa vikuna þótt það feli í sér erfiðar ákvarðanir því það skiptir máli að velja það sem er rétt fyrir þig. Vatnsberi 20.01. – 18.02. Þig langar smá bara að vera undir teppi, gera lítið sem ekkert upp- byggilegt, horfa á Netflix og borða nammi. Og okkur finnst það bara ágætis hugmynd. Heimurinn er smá á hvolfi og maður á fullkominn rétt á því að taka nokkra frídaga. Mátt vera dugleg/ur í næstu viku. Fiskur 19.02. – 20.03. Sköpunarkrafturinn bankar upp á sem aldrei fyrr. Þetta er klárlega vikan sem þú föndrar eitthvað nýtt, málar nýja mynd, stofnar nýja Pinterest-síðu og ákveður að þú munir búa til ALLAR jólagjafirnar í ár. þitt innra barn og að taka hlutunum ekki of alvarlega. Stundum er maður líka að halda í gamlar minningar sem þjóna manni ekki lengur heldur draga úr manni. Þetta er eitthvað til að gefa sér smá tíma til að hugsa um og hvað það gæti þýtt fyrir þig. FÓKUS 37DV 23. OKTÓBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.