Fjölrit RALA - 15.08.1993, Qupperneq 6
4
Ógrónu landi er skipt í átta flokka eftir eðli og uppruna. Þess skal getið að á landi sem er
skilgreint „ógróið“ getur verið allt að 5% gróðurhula. Flatarmál vatna og vatnsfalla var mælt
sérstaklega.
NIÐURSTÖÐUR
Arnardalur
Alls færu um 9639 ha lands undir vatn við efri vatnsborðsstöðu í Arnardal og þar af eru
um 1616 ha land með gróðri, eða um 16%. Um 58% þessa gróðurs eru í hæðarbeltinu
milli neðra og efra vatnsborðs 520-560 m.
Gróðurfarið er afar einhæft. Gróðurlendi eru iaðar- eða hálfdeigja. graslendi. kvistlendi.
mvrar og flóar. Gróðurfélög graslendisins eru hreint graslendi (Gramineae - Hl), með ýmsum
grastegundum ríkjandi í gróðurfari, og melgras (Leymus arenarius - H4) sem er á víð og dreif
um svæðið og bendir til mikils sandfoks. Eina kvistlendisgróðurfélagið er loðvíðir-grávíðir
(Salix lanata-Salix callicarpea - D3) sem einnig er algengt þar sem jarðvegur er á hreyfingu.
Jaðargróðurfélögin em mörg: mýrelfting (Equisetum palustre - Tl), hrossanál-stinnastör-grös
(Juncus balticus-Carex bigelowii-Gramineae ssp. - T2), hálmgresi (Calamagrostis neglecta -
T3), broddastör-víðir-stinnastör (Carex microglochin-Salix ssp -Carex bigelowii - T6) og
hrossanál-vinguli (Juncus balticus-Festuca ssp. - T9). Mýra- og flóagróðurfélögin em
stinnastör-grávíðir (Carex bigelowii-Salix callicarpea - U2) og gulstör (Carex lyngbyei -
VI).
Álftadalur
AIls færu um 1518 ha lands undir vatn við efri vatnsborðsstöðu í Álftadal og þar af eru
um 324 ha land með gróðri, eða um 21%. Af þessum gróðri eru um 74% í hæðarbeltinu
milli neðra og efra vatnsborðs 580-620 m.
Gróður er fábreyttur en gróðurlendi era kvistlendi. iaðar. graslendi. mosabemba og um 4 ha
myrlendis. Gróðurfélag kvistlendisins em loðvíðir-grávíðir (Salix lanata-S. callicarpea - D3)
og grasvíðir (Salix herbacea - D6), sem er snjódældagróður og er afleiðing mikilla snjó-
þyngsla. Gróðurfélög graslendisins em hreint valllendi (Gramineae ssp. - Hl) og graslendi