Fjölrit RALA - 15.08.1993, Síða 7
5
með smárunnum (H3). Gróðurfélög mosaþembunnar eru mosaþemba með smámnnum (A4)
og snjómosi (Anthelia - A9).
Gróðurfélög jaðarsins eru mýrelfting (Equisetwn palustre - Tl) og hrossanál-grávíðir (Juncus
balticus-Salix callicarpea - TIO). Hið takmarkaða mýrlendi í Álftadal er mýrastör-klófífa
{Carex nigra-Eriophorum angustifolium - U7).
Brú
AUs færu um 2292 ha lands undir vatn við efri vatnsborðsstöðu á Brú og þar af eru um
1635 ha land með gróðri, eða um 71%. Af þessum gróðri eru um 83% í hæðarbeltinu
milli neðra og efra vatnsborðs 345-395 m.
Gróður á þessu svæði, sem er í eða við byggð, er mun fjölbreyttari, þéttari og gróskumeiri
en á fyrmefndu svæðunum á hálendinu. Gróðurlendi eru sefmóar. graslendi. kvistlendi, star-
móar, mýrar og iaðar.
Gróðurfélög sefmóanna, sem eru aðallega í hlíðum, eru þursaskegg (Kobresia myosuroides -
E1), þursaskegg-smárunnar (E2) og þursaskegg-ijúpnalauf {Kobresia myosuroides-Dryas octo-
petala - E4). Þessi gróður er einkennandi fyrir mjög þurrt land og ofbeitt land sem er af þeim
sökum orðið rýrt til beitar. Gróðurfélög graslendisins eru hreint valllendi {Gramineae ssp. -
Hl), graslendi með stinnastör {Gramineae-Carex bigelowii - H2) og graslendi með
smárunnum (H3). Að auki eru um 119 ha ræktað graslendi. Graslendi er kjörgróðurlendi
búfjár á sumarbeit.
Gróðurfélög kvistlendisins em fjalldrapi-blábeijalyng-krækilyng {Betula nana-Vaccinium uli-
ginosum-Empetrum hermafroditum - Cl), fjalldrapi-þursaskegg-grös {Betula nana-Kobresia
myosuroides-Gramineae - C2), fjalldrapi-víðir {Betula nana-Salix ssp. - C3) og loðvíðir-grá-
víðir (Salix lanata-S. callicarpea - D3). Starmóamir em á hallandi landi þar sem rakaskilyrði
em góð. Gróðurfélög þeirra em stinnastör (Carex bigelowii - Gl) og stinnastör-smámnnar
(G2). Starmóar em metnir til jafns við graslendi hvað beitargildi til fjárbeitar varðar.
Enda þótt mýrar á svæðinu séu ekki víðáttumiklar em þær fjölbreyttar að gróðurfari og