Fjölrit RALA - 15.08.1994, Page 17

Fjölrit RALA - 15.08.1994, Page 17
15 framkvæmd á þremur stöðum samtímis; í Norður-, Mið- og Suður-Svíþjóð. Hefðbundin básafjós voru borin saman við lítt einangruð lausagöngufjós með legubeði. Tilraunahóparnir töldu allir 20-25 kýr nema lausagönguhópurinn í Suður-Svíþjóð sem var ríflega 45 kýr. Niðurstaða tilraunanna varð sú að í Norður- og Mið-Svíþjóð var enginn munur á nyt kúnna eftir fjósgerðum en í Suður-Svíþjóð komu básafjósin betur út. Ekki er talið að hópstærðin hafi haft þessi áhrif en hluti skýringarinnar kann að vera að tilraunin stóð aðeins í tvö ár í Suður-Svíþjóð á móti fjórum og fimm árum á hinum stöðunum. Sá tími sem kýmar þurftu til að aðlaga sig aðstæðum í lausagöngunni vóg því þyngra þar en á hinum stöðunum. Fóðurnýting kúnna í lausagöngufjósunum var nálægt 9% verri en hinna. Líklegt var talið að vetrarkuldar hafi ráðið þar nokkm um. í norskum tilraunum á áttunda áratuginum kom hvorki fram marktækur munur á nyt né fóðumotkun kúa í hefðbundnum langbásum annars vegar og lausagöngu með jötulegubásum (Gjestang o.fl., 1979) eða legubásum (Gravás, 1972) hins vegar. Báðar tilraunimar stóðu í tvo vetur, sjö mánuði í senn, og voru 8-9 kýr í hvorum hópi. Þrátt fyrir lítið umfang tilraunanna em niðurstöðumar áreiðanlegar, báðir hópamir vora hýstir í sömu byggingu (sitt hvora megin við fóðurgang) og fylgst var nákvæmlega með nyt, fóðumotkun, sjúkdómum, hreinlæti gripa og atferli, auk þess sem loftslag, fóðrun og hirðing beggja hópanna var með sama hætti. Konggaard (1980 a) fann, í tilraun sem spannaði sex ár í þremur fjósum, að eldri kýr (á 2.-6. mjaltaskeiði) í legubásafjósi framleiddu að meðaltali 5% minni mjólk en kýr í básafjósi og 8% minna en kýr í lausagöngufjósi með legubeði, reiknað út frá mjalta- skeiðsnyt. F.kki fannst marktækur munur á nyt 1. kálfs kúa eftir fjósgerðum. Slæm klaufaheilsa kúnna í legubásafjósinu var talin eiga stóran þátt í slakri frammistöðu þeirra. Þegar nytin var reiknuð sem kg/árskú vora hlutfallstölumar fyrir básafjós, lausagöngu með legubásum og lausagöngu með legubeði, 100, 99 og 105 ef kýmar vora á beit á sumrin, en 100, 104 og 110 ef þær vora inni allt árið (hvort tveggja meðaltöl þriggja ára). Ástæðan er sú að lausu kýrnar vora frjósamari og heilbrigðari þannig að á ársgrundvelli skilaði hjörðin hærri nyt. Munur á fóðurnýtingu kúa var óverulegur milli fjósgerða. Sprensen o.fl. (1981) fundu með uppgjöri frá 23 bæjum í Danmörku að kýr í básafjósum mjólkuðu 7-8% meira en kýr í lausagöngufjósum miðað við mjaltaskeiðsafurðir. Talið var að mismuninn hafi, að einhverju eða öllu leyti, mátt rekja til verri fóðrunar, aðbúnaðar og umhirðu kúnna í lausagöngufjósunum. Aðrir þættir. Ein af merkilegri rannsóknum á þessu sviði er tölfræðileg úttekt á áhrifum 40 fóðrunar- og umhverfisþátta á meðalnyt 3000 norskra hjarða. Niðurstöðurnar vora þær

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.