Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 2
Einfaldir menn og reglur S varthöfði er ekki flók-inn maður. Hann kann að meta að vakna á sama tíma á hverjum degi, borða klassískan hafragraut með engum óþarfa sætuefn- um eða ávaxtarugli, skila svo grautnum akkúrat tuttugu mínútum eftir fyrsta kaffi- bollann og horfa á fréttatím- ann á hverju kvöldi – þó svo fréttatími sjónvarpsins sé úreltur miðill sem endursegir aðeins fréttir sem hægt var að lesa á netmiðlum mörgum klukkustundum fyrr. Sem sagt einfaldur rútínumaður. Þess vegna hafa þessar sóttvarnaaðgerðir valdið því að Svarthöfði er búinn að naga neglur sínar svo mikið að ef hann er alveg hrein- skilinn er hann eiginlega að stunda mannát á þessum tímapunkti. Að vita hvaða fjöldatak- markanir gilda á hverjum tíma í dag er eins og að spila flókið borðspil. Fyrst þarf að reikna út hvað viðstaddir eru gamlir. Börn teljast ekki inni í takmörkum. Svo þarf að gera upp á milli fjölskyldumeðlima og vina til að velja inn í svo- nefnda jólakúlu. Ekki líklegt til vinsælda enda eru fjöl- skyldumeðlimir oft fljótir til að stökkva í fýlu þegar gert er upp á milli þeirra. Fimmtán manna hópur má ekki koma saman á heimili, en má koma saman á veitinga- stað og tæknilega séð geta allir farið saman í IKEA og í sund. Svo eru þekktir tónlistar- menn að boða jólatónleika heima í stofu. Á einum tón- leikunum eru búið að auglýsa rúmlega tíu söngvara, tvo kóra, stórhljómsveit og dans- ara. Á bak við útsendinguna er líklega stórt lið af tækni- mönnum og öðrum. Líklega eru þarna fleiri tugir að fara að koma saman og enginn getur sannfært Svarthöfða um annað en að þessi hópur sé líka að hittast til að æfa fyrir tónleikana. Og þetta má fyrir einhverja furðulega ástæðu? Þetta er í lagi en það er ekki í lagi fyrir tuttugu manna vinnustað að fara saman í jólahlaðborð. Ekki efast Svarthöfði um að þetta sé allt byggt á ein- hverjum útreikningum, ex- cel-skjölum, rannsóknum og krúsídúllum. Fyrir þá sem komu ekki að því að búa þessar reglur til geta þær virkað nokkuð ósanngjarnar milli hópa. Sund opið en ekki ræktin, rök- stuðningurinn er fleiri smit sem hafa greinst á líkams- ræktarstöðvum. Samt er ekki tekið tillit til þess að saman- burðurinn er ósanngjarn í því ljósi að mun fleiri sækja lík- amsræktarstöðina svo smitin eru líklega ekki fleiri hlut- fallslega miðað við höfðatölu. Þegar reglur eru flóknar og illskiljanlegar, þá geta margir einfaldir einstaklingar fengið þá flugu í hausinn að virða megi þær að vettugi. Svarthöfði hefði frekar viljað sjá óbreyttar reglur. Ennþá harðar en einfaldari. Bönnum frekar öll jólaboð en að láta Svarthöfða þurfa að gera upp á milli móður- systkina og kunningja. Því þegar faraldurinn er búinn þá þarf Svarthöfði samt enn að lifa með þeim ákvörðunum. Og enginn er langræknari en svikin frænka. n SVART HÖFÐI Aðalnúmer: 550 5060 Auglýsingar: 550 5070 Ritstjórn: 550 5070 FRÉTTA SKOT 550 5070 abending@dv.is Er pabbi þinn heima? É g varð 36 ára gömul í vikunni en fann mig engu að síður í sömu stöðu og þegar ég var þrítug, tvítug og tíu ára. Mér eldri karlmaður vildi ræða við annan karlmann um mín störf. Ég hef áður skrifað um það sem ég kalla „Er pabbi þinn heima?“ heilkenni en það var fyrir sléttum sex árum og þá var ég að furða mig á því að ég væri enn að lenda í slíkum aðstæðum. Þá var ég framkvæmdastjóri markaðssviðs Skjásins og var mætt á fund með manni sem ég var að íhuga að stunda stórtæk viðskipti við. Ég lokaði dyrunum á fundarherberginu, settist við borðið og hóf fundinn. Það voru ekki liðnar fimm mínútur þegar maðurinn, sem er alla jafna kurteis og skemmtilegur, sagði: „Ég bjóst nú við að forstjór- inn sæti fundinn.“ Með þessu fylgdi: „Er pabbi þinn heima?“-svipurinn. Þessi ágæti maður sem er þó nokkuð eldri en ég var að vísa í karlkyns forstjóra á svipuðu reki og hann sjálfur. Hann vildi sem sagt eiga „karlaspjall“. Sami maður vísaði í mig stuttu seinna í símtali við forstjórann sem „stelp- una“ þar sem hann setti út á störf mín og benti á að ég ætti að vera í sjónvarpi – ekki á skrifstofu. Ég held að hann hafi séð það sem hrós. Áðurnefnt heilkenni einkennir oft eldri karlmenn sem treysta sér illa til að tala við konur, sérstaklega ef þær eru yngri en þeir. Heil- kennið lýsir sé meðal annars í ótta eldri manns sem horfir yfir öxlina á konum í von um að finna annan eldri mann til að mynda augn- samband og ræða við. Það var svo í liðinni viku sem þjóðþekktur maður, sem er alla jafna þeyttur rjómi, hafði samband við eiginmann minn til að ræða starf mitt og verkefni dagsins. Þetta fannst mér ömurlegt. Atvikið þótti mér niðurlægjandi fyrir annars frábæran mann að ræða við eiginmann minn um mín störf. Störf sem téður eigin- maður hefur ekkert með að gera og ég hef reynt að setja hann sem minnst inn í. Ég hefði tekið því vel að ræða og útlista málið beint við manninn þó það reyndar hafi alls ekki fjallað um hann, heldur dóttur hans. En jú, pabbi hefur samband við eiginmann ritstjóra. Ég held því alls ekki fram að þetta tilvik, né það sem fyrr er rætt, sé sprottið af slæmum ásetningi eða dónaskap. Þetta er gamli hugsunarhátturinn sem er svo baneitraður. Ég er þrjátíu og fokking sex ára! Ekki klaga mig í eiginmann minn, pabba minn, eða aðra mér eldri karlmenn á svæðinu. Ekki tala fram hjá mér á fundum og ekki voga þér að halda að ég geti ekki talað mínu máli og gert heilkennið í þér fok- helt ef þarf. Nei! Pabbi minn er ekki heima! n UPPÁHALDS ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Sigurbjörn Richter,sigurbjorn@dv.is PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000. Pabbi, hvað er feðraveldi? MYND/GETTY Vigdís Hauksdóttir, borgar- fulltrúi Miðflokksins, deilir með okkur 5 uppáhalds á aðventu og jólum. Vigdís er blómaskreytinga- og garð- yrkjufræðingur og er fyrsti Íslandsmeistarinn í blóma- skreytingum. „Það eru alltaf sömu fimm hlutirnir sem ég fæ mér á aðventunni og fyrir jólin. Ég er með frekar skandinavískan og ein- faldan smekk þegar kemur að þessum árstíma. Vil hafa hlutina einfalda og flotta þannig að eitt skyggi ekki á annað,“ segir Vigdís. 1 Rauðir túlípanar Get ekki verið án þeirra á aðfangadag. 2 Rauður amaryllis í potti Verð að eiga einn slíkan á aðventunni. 3 Rauð lítil epli sem ég kaupi úti í matvöru- búð. Ómissandi í skálar og á hurðakransa – lyktin er svo góð. 4 Stafafura úr íslenskri náttúru Uppáhalds græna efnið mitt í skreytingum og hurðakröns- um á aðventunni. 5 Grófir könglar Þeir eru yndislega fallegir með epl- unum og furunni. AÐVENTU/JÓLA 2 EYJAN 11. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.