Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 6
6 FRÉTTIR 11. DESEMBER 2020 DV
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
ÞYNGSTU DÓMAR
ÍSLANDSSÖGUNNAR
Sá algengi misskilningur virðist lifa góðu lífi hér á landi að lengsti
fangelsisdómur sem hægt er að dæma einstakling í sé 16 ár og að
„lífstíðarfangelsi“ sé þannig 16 ára fangelsi. Þetta er alrangt en þó
hefur enginn hérlendis verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Hæstarétti.
Í 34. gr. almennra hegn-ingarlaga segir berum orðum: „Í fangelsi má
dæma menn ævilangt eða um
tiltekinn tíma, ekki skemur en
30 daga og ekki lengur en 16
ár.“ Orðið „eða“ spilar þarna
lykilhlutverk.
Þannig er refsiramminn í
raun tvískiptur. Fyrst er það
breiði glugginn á milli 30 daga
og 16 ára sem dómarar hafa
að vinna úr, og svo ævilangt.
Hæstiréttur hefur aldr-
ei nýtt sér seinni gluggann,
ævilangt fangelsi, þótt þrír
hafi reyndar verið dæmdir til
ævilangrar fangelsisvistar í
héraðsdómi, en báðir dómar
voru mildaðir í Hæstarétti.
Þó hefur Hæstiréttur komist
ansi langt með að fullnýta sér
refsirammann í grófustu of-
beldisbrotunum, þar á meðal
kynferðisbrotum, og fíkni-
efnabrotum, sér í lagi þeim
málum þar sem framleiðsla
fíkniefna þykir sönnuð.
Sakborningur
leiddur inn í
Héraðsdóm
Reykjavíkur.
Héraðsdómur
hefur þrívegis
dæmt mann
í ævilangt
fangelsi.
Hæstiréttur
mildaði alla
þrjá dómana.
MYND/EYÞÓR
MORÐMÁL OG OFBELDISBROT
Í 211. gr. almennra hegn-ingarlaga segir: „Hver sá sem sviptir annan mann
lífi, skal sæta fangelsi, ekki
skemur en 5 ár, eða ævilangt.“
Refsiramminn er því milli 5
og 16 ár, eða ævilangt. Hæsti-
réttur hefur ítrekað farið upp
fyrir þennan glugga, og þá
stuðst við svokallaðar refsi-
hækkunarheimildir og eru
þess meira að segja dæmi í
nýlegum málum.
Thomas Møller Olsen
Þann 15. janúar 2017 sendi
lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu frá sér svohljóðandi
tilkynningu: „Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu leitar
að Birnu Brjánsdóttur. Birna
er fædd 1996, hún er 170 cm
há, um það bil 70 kílógrömm,
með sítt, ljósrautt hár. Birna
var klædd í svartar galla-
buxur, gráa peysu, svartan
flísjakka með hettu og svarta
Dr. Martin skó [...].“ Næstu
daga var leitað að Birnu víða
og leiddi leitin björgunaraðila
loks á spor rauðrar Kia Rio-
bifreiðar. Bifreiðin hafði verið
tekin á leigu af tveim græn-
lenskum sjómönnum á togar-
anum Polar Nanoq sem var í
höfn í Hafnarfirði.
Þegar grunur tók að beinast
að sjómönnunum var skipið
komið út fyrir landhelgi Ís-
lands. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar flaug þá með sérsveit-
armenn til móts við skipið
sem snúið hafði verið við og
sigldi í átt til Íslands aftur.
Sérsveitarmennirnir fóru
um borð í skipið og handtóku
mennina tvo. Þeirra á meðal
var Thomas Møller Olsen. Við
rannsóknina fundu tollverðir
20 kíló af hassi sem mennirnir
voru þá um leið grunaðir um
að smygla. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar fann svo nokkrum
dögum síðar lík Birnu við Sel-
vogsvita skammt vestan við
Þorlákshöfn.
Thomas Olsen var að lokum
ákærður fyrir smygl og að
hafa orðið Birnu að bana
og komið líki hennar fyrir í
Ölfusá. Héraðsdómur dæmdi
Thomas til 19 ára fangelsis-
vistar fyrir morðið og smyglið
á hassinu. Landsréttur stað-
festi dóminn og Hæstiréttur
hafnaði ósk um áfrýjunar-
leyfi.
Héraðsdómur þrisvar
dæmt í ævilangt fangelsi
Sem fyrr sagði hafa þrír verið
dæmdir í ævilangt fangelsi af
héraðsdómstólum landsins en
Hæstiréttur mildað þá alla.
Árið 1980 voru þeir Sævar
Ciesielski og Kristján Viðar
Viðarsson dæmdir í ævilangt
fangelsi fyrir samtíning af
„smáglæpum“ auk þess sem
þeir voru sagðir hafa átt þátt
í hvarfi Guðmundar Einars-
sonar. Voru þeir ákærðir fyrir
að hafa ráðist á Guðmund,
misþyrmt honum og stungið
með hníf svo bani hlaust af
og komið svo líki hans fyrir á
óþekktum stað. Þá voru þeir
jafnframt dæmdur fyrir ým-
iss konar þjófnaðarbrot, ávís-
anafalsanir, fíkniefnalaga-
brot og innbrot. Þá voru þeir
Sævar og Kristján ákærðir
fyrir að hafa ráðist á Geirfinn
Einarsson, grafið hann, hellt
bensíni yfir líkið og brennt.
Framhald á síðu 8 ➤
Thomas
Møller Olsen
leiddur inn
í dómssal í
héraðsdómi.
Thomas
hlaut 19 ára
fangelsisdóm
fyrir morðið
á Birnu
Brjánsdóttur
og smygl á
20 kílóum af
hassi.
MYND/EYÞÓR
Hver sá sem
sviptir annan
mann lífi,
skal sæta
fangelsi, ekki
skemur en 5
ár, eða ævi-
langt.