Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR 11. DESEMBER 2020 DV
Hæstiréttur mildaði síðar
dómana yfir þeim tveimur og
leit meðal annars til þess að
þeir voru aðeins 17 ára er þeir
áttu að hafa banað mönnunum
tveimur. Kristján Viðar fékk í
Hæstarétti 16 ár og Sævar 17.
Nú liggur auðvitað fyrir að
mennirnir voru saklausir hvað
morðákærurnar varðaði og
ásakanir á hendur þeim upp-
spuni frá rótum.
Þriðji maðurinn til þess að
hljóta ævilangt fangelsi er
Þórður Jóhann Eyþórsson.
Ævilangi fangelsisdómur-
inn yfir honum féll þann 22.
október 1993. Var hann þar
dæmdur fyrir að hafa orðið
Ragnari Ólafssyni að bana
við Snorrabraut. Áður hafði
Þórður hlotið dóm fyrir morð
árið 1983, og var á skilorði er
hann myrti Ragnar. Hæsti-
réttur mildaði síðar dóminn
yfir Þórði í 20 ára fangelsi.
Níu ár fyrir barnaníð
Einn þyngsti dómur sem fallið
hefur fyrir kynferðisbrot
gegn börnum féll á þessu ári.
Var þar Þorsteinn Halldórsson
dæmdur í tveimur aðskildum
málum fyrir kynferðisbrot
gegn ungum piltum. Árið 2018
hlaut Þorsteinn fyrst sjö ára
fangelsi fyrir ítrekuð kyn-
ferðisbrot gegn 18 ára pilti
sem hann hafði borið fíkniefni
í með þeim afleiðingum að
hann var nánast meðvitundar-
laus í um viku. Brotin gegn
piltinum hófust þegar hann
var 15 ára gamall og stóðu í
rúm tvö ár. Landsréttur mild-
aði fangelsið í fimm og hálft
ár skömmu áður en Þorsteinn
hlaut svo annan dóminn í hér-
aðsdómi. Þar dæmdi héraðs-
dómur Þorstein til að sæta
þriggja og hálfs árs refsiauka
vegna um 50 kynferðisbrota
gegn 14 ára gömlum pilti.
Einn þyngsti
dómur sem
fallið hefur
fyrir kyn-
ferðisbrot
gegn börnum
féll í ár.
FÍKNIEFNAMÁL HVÍTFLIBBAGLÆPIR
R efsiramminn vegna fíkniefnabrota er á bilinu 30 dagar til 12
ára. Héraðsdómur hefur að-
eins einu sinni fullnýtt þann
ramma en sá dómur var þó
mildaður í Hæstarétti.
67.485 E-töflur
Árið 2002 var austurrískur
maður að nafni Kurt Fellner
staddur á Keflavíkurflugvelli
á leið sinni frá Amsterdam til
New York. Við gegnumlýs-
ingu á farangri Kurts blasti
við tollvörðum óvenjuleg sýn,
rúmar 67 þúsund E-töflur sem
Kurt ætlaði sér að smygla
til Bandaríkjanna. Kurt var
handtekinn hér og ákærður
fyrir smyglið og hlaut fyrir
vikið 12 ára fangelsisdóm.
Refsiramminn sem hafði að-
eins nokkrum mánuðum áður
verið hækkaður úr 10 í 12 ár
vegna fíkniefnabrota var þar
með fullnýttur. Hæstiréttur
mildaði reyndar dóminn yfir
Kurt um þrjú ár.
Skömmu áður hafði Tryggvi
Rúnar Guðjónsson hlotið ell-
efu ára fangelsisdóm í hér-
aðsdómi sem Hæstiréttur
mildaði síðar í 10 ár. Tryggvi
Rúnar var gripinn með um 17
þúsund E-töflur, 200 grömm
af kókaíni og 8 kíló af hassi.
Með broti sínu braut Tryggvi
jafnframt gegn skilorði sem
hann var á vegna fyrri dóms.
Tíu ár enn metið
Síðan þá hefur Hæstiréttur
reyndar jafnað það met
nokkrum sinnum. Jónas
Ingi Ragnarsson fékk 10 ára
fangelsisdóm fyrir spíttverk-
smiðju í Hafnarfirði 2008 og
þeir Pétur Rabe og Rúnar
Þór Róbertsson fengu sín 10
árin hvor í héraðsdómi vegna
Papeyjarmálsins svokall-
aða þegar varðskip og þyrla
Landhelgisgæslunnar eltu
skútu sem þeir höfðu siglt til
landsins með rúmum 100 kíló
af fíkniefnum í nágrenni við
Papey árið 2009. Árni Hrafn
Ásbjörnsson hlaut í því máli
níu ára fangelsi og aðrir fengu
vægari dóma.
Hæstiréttur staðfesti síðar
alla þessa dóma.
Árið 2007 gerðu þeir Einar
Jökull Einarsson, Alvar Ósk-
arsson, Guðbjarni Traustason
og Marinó Einar Árnason svo
tilraun til þess að smygla rúm-
um 40 kílóum af fíkniefnum
auk 1.700 E-taflna til landsins
í Pólstjörnumálinu svokallaða.
Einar Jökull hlaut níu og hálfs
ára fangelsisdóm, Alvar sjö og
hálft ár, Guðbjarni sjö ár og
Marinó fimm.
Stærsta fíkniefnamál í kíló-
um talið sem upp hefur komið
er líkast til mál Þorsteins
Kragh og Jacob van Hinte árið
2008. Voru þeir gripnir með
152 kíló af kannabisefnum og
1,3 kíló af kókaíni í húsbíl sem
þeir óku til landsins með Nor-
rænu. Hlaut Þorsteinn níu ára
fangelsisdóm og Jacob sjö og
hálft ár.
Þá má nefna „Stóra fíkni-
efnamálið“ árið 2000, sem er
ef til vill ekki lengur svo stórt
ef borið saman við seinni
mál. Voru í því máli 19 ein-
staklingar ákærðir og hlutu
15 manns dóm. Þyngstu dóm-
arnir fengu þeir Sverrir Þór
Gunnarsson og Ólafur Ágúst
Ægisson. Hlaut Ólafur níu ár
og Sverrir sjö og hálft. Þótti
þar sannað að þeir hefðu flutt
inn tugi kílóa af fíkniefnum
um nokkurt skeið.
D ómar vegna svokall-aðra hvítflibbaglæpa stökkbreyttust í kjöl-
far hrunsins. Fram að því
voru þyngstu dómar frekar
mældir í mánuðum en árum.
Al-Thani málið
Þyngstu dómar Íslands-
sögunnar í þessum flokki
eru vegna Al-Thani málsins
svokallaða árið 2015. Voru
þar fjórir stjórnendur Kaup-
þings banka sakfelldir eftir
að þeir lánuðu sjeiknum Mú-
hameð Al Thani fyrir 5% hlut
í Kaupþingi árið 2008 sem
hann notaði svo til þess að
kaupa hlutabréf í bankanum.
Með gjörningnum voru þeir
sagðir hafa ætlað sér að hafa
áhrif á verðmyndun hluta-
bréfa í bankanum á markaði.
Voru Hreiðar Már Sigurðsson,
forstjóri Kaupþings, Sigurður
Einarsson stjórnarformaður,
Ólafur Ólafsson, einn aðaleig-
andi, og Magnús Guðmunds-
son, forstjóri Kaupþings í
Lúxemborg, ákærðir fyrir
umboðssvik og markaðsmis-
notkun.
Hreiðar Már fékk fimm og
hálft ár í Hæstarétti, Sigurður
fékk fjögur ár, og þeir Ólafur
og Magnús fengu sinn fjögurra
og hálfs árs fangelsisdóminn
hvor. Fleiri voru ákærðir og
sakfelldir, en þeim var ýmist
ekki gerð refsing eða hún skil-
orðsbundin. Magnús hlaut síð-
ar 18 mánaða fangelsisdóm í
Marple-málinu svokallaða, og
var þar sérstaklega tekið fram
að þar með væri Magnús sam-
tals dæmdur í sex ára fangelsi
og refsiramminn vegna brota
hans þar með fullnýttur og
því ekki hægt að dæma hann
til þyngri refsingar. n
Sakborningar í Pólstjörnumálinu í héraðsdómi ásamt lögmanni sínum. MYND/EYÞÓR
Skútan Sirtaki í haldi varðskips Landhelgisgæslunnar eftir æsilega
eftirför við Papey á Austurlandi. MYND/PJETUR
Ólafur Ólafsson, sakborningur í Al-Thani málinu, gengur út úr húsa-
kynnum Héraðsdóms Reykjavíkur ásamt lögmönnum. MYND/VILHELM