Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 11
og þekki fólk um alla veröld. Ég get fljótt komið mér fyrir hvar sem er og liðið eins og heima hjá mér.“ Hún segir að það gæti verið skemmtilegt að skrifa um hennar ævintýralegu æsku- minningar: „Ég þyrfti bara að finna hvernig ég gæti breytt þeim í glæpasögu,“ segir hún glettin. Það er nefnilega þar sem ástríðan liggur – í skrif- um glæpasagna. Lilja sendi nýverið frá sér sína áttundu skáldsögu sem ber heitið Blóðrauður sjór. Við skrifin sótti hún innblástur í eitt umtalaðasta mannshvarf í sögu Noregs – hvarf Anne Elisabeth Hagen. Maðurinn hennar, Tom, hefur legið undir grun vegna hvarfsins en enginn veit enn hvað varð um Anne. „Blóðrauður sjór byrjar á því að vel stöndugur bisnessmaður kemur heim þar sem allt er á rúi og stúi, eigin- konan horfin og hans bíður lausnargjaldskrafa á eldhús- borðinu. Ég velti síðan upp ýmsum möguleikum, meðal annars hugmyndum sem hafa komið fram í Hagen-málinu. Það er eins og gullnáma fyrir glæpasagnahöfund þegar svona dularfull mál koma upp og maður fer að hugsa: Hvað ef?“ Í bókinni eru sömu aðalper- sónur og þeirri síðustu frá Lilju, Helkaldri sól, þar sem lesendur kynntust hörkutólinu Áróru og rannsóknarlögreglu- manninum Daníel. Hugmynd- in er að lesendur geti fylgt þessum persónum í tveimur, jafnvel þremur bókum til við- bótar en í hverri þeirra sé nýtt mál sem þarf að leysa og því hægt að lesa bækurnar óháð hinum. Báðar þessar bækur hafa fengið mikið lof gagn- rýnenda og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu. Þríleikur Lilju – bækurnar Gildran, Netið og Búrið – sem naut fádæma vinsælda var í raun „ein stór bók“ eins og hún kemst að orði og því nálg- ast hún nýju bækurnar á ann- an hátt. Áður en hún skrifaði þríleikinn samdi hún við For- lagið sem hefur gagnast henni vel á alþjóðlegum vettvangi. Mamma glæpasagnafíkill Lilja segir að henni hafi alltaf þótt gaman að skrifa en hún ákvað að skrifa sína fyrstu glæpasögu þegar Bjartur/Ver- öld stóð fyrir samkeppni þar sem leitað var að „hinum nýja Dan Brown“ en hann skrifaði Da Vinci lykilinn og fleiri metsölubækur. „Ég hugsaði með mér að ég gæti bara vel verið hinn nýi Dan Brown, skrifaði bók og sendi inn. Í millitíðinni kom bankahrunið og keppninni var í raun aflýst. Þrátt fyrir það ákváðu þau að gefa út tvö handrit sem höfðu verið send inn, fyrstu bókina mína og fyrstu bókina hans Ragnars Jónassonar. Við vitum þó ekk- ert hvort okkar hefði verið hinn nýi Dan Brown,“ segir hún glettin. Það var mikið lesið á heim- ilinu þegar Lilja var að alast upp. „Ég var kannski smá skrýtin og einrænt barn. Frá því ég var lítil gerði pabbi leslista fyrir mig og þegar ég var tólf ára var ég búin að lesa allar heimsbókmennt- irnar. Mamma var hins vegar glæpasagnafíkill og bækurnar sem hún stakk upp á fyrir mig voru allt öðruvísi. Ég hugsa að þaðan komi áhugi minn á glæpasögum. Það er alveg sér- stök tegund af lestraránægju sem maður fær af því að lesa glæpasögur. Þar er hugarleik- fimin á fullu og oft einhvers konar tilfinning fyrir réttlæti í lokin sem ég held að gefi fólki ákveðna ánægju, því í raunveruleikanum eru mála- Ef það er enginn hani þá verður bara ein hænan yfirhæna. FRÉTTIR 11DV 11. DESEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.