Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Qupperneq 17
Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is Í síðustu viku mælti Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir frumvarpi til laga um svonefnda almannaheilla- starfsemi, en lagt er til að stórauka hvata til stuðnings við félög og sjálfseignar- stofnanir sem vinna í þágu almannaheilla og létta sömu- leiðis skattbyrði þessara aðila. „Þriðji geirinn“ Hugtakið almannaheill er býsna víðfemt. Hér getur verið átt við starfsemi mann- úðar- og líknarfélaga, æsku- lýðs- og íþróttafélaga, björg- unarsveita, menningar- og listafélaga og svo mætti áfram telja. Þessi félög eru stundum kölluð „þriðji geir- inn“ en það er þá starfsemi sem hvorki er hluti af hinu opinbera né einkageiranum. Hér á landi annast frjáls fé- lagasamtök margvísleg brýn samfélagsleg verkefni sem opinberir aðilar þyrftu ella að sinna og að líkindum gjarnan með miklu meiri tilkostnaði. Nefna má hjálparsveitir skáta, flugbjörgunarsveitirnar og slysavarnardeildir. Þar vinna þrautþjálfaðar sveitir fórnfúst starf – oft við háskalegar að- stæður. En starfsemi af þessu tagi verður ekki rekin án fjár- hagslegs stuðnings fólks og fyrirtækja. Margvíslegar ívilnanir Samkvæmt frumvarpinu verð- ur einstaklingum heimilað að draga framlög til almanna- heillastarfsemi fyrir allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar. Þá er lagt til að atvinnurekendur geti dregið frá framlög sem nema allt að 1,5% af árstekjum frá skattskyldum tekjum sín- um en hlutfallið er núna 0,75%. Einnig er boðað að almanna- heillafélög verði undanþegin greiðslu tekjuskatts og stað- greiðslu skatts af fjármagns- tekjum, auk undanþágu frá greiðslu virðisaukaskatts með nánar tilgreindum skilyrðum. Félög af þessu tagi verði einn- ig undanþegin greiðslu stimp- ilgjalda og fleira mætti nefna, svo sem að lögð er til undan- þága frá greiðslu erfðafjár- skatts af gjöfum til almanna- heillasamtaka. Samfélag virkra borgara Víða erlendis er skattalegum hvötum beitt til að efla starf- semi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana sem starfa í þágu almannaheilla, en það eru þá félög sem ekki hafa fjárhagslegan tilgang og stefna að því að bæta hag almennings með einhverjum hætti. En sem dæmi má nefna að þá voru hugmyndir um stóraukið vægi almannaheilla- starfsemi veigamikill þáttur í stefnu ríkisstjórnar Davids Cameron, forsætisráðherra Breta á árunum 2010–2016. En hann fór fram undir kosn- ingaslagorðinu „Big Society“ eða stóru samfélagi, sem þá var hugsað sem sem andstæða „Big Government“ – færa ætti sífellt fleiri verkefni nær borgurunum sjálfum og frá ríkisvaldinu. Markmiðið með aðgerðum stjórnar Camerons var ekki hvað síst að stefna að stór- aukinni valddreifingu í sam- félaginu. Mikilvægt væri að auka hvata almennings til sjálfboðaliðastarfs á vett- vangi frjálsra félagasamtaka og stuðla þannig að samfélagi þar sem æ fleiri borgarar létu sig brýn samfélagsmálaefni varða með beinni þátttöku, í stað þess að ætíð væri treyst á hið opinbera. Eldheitar hugsjónir Velferðarkerfið hér á landi hefur frá fyrstu tíð verið að stórum hluta rekið af frjálsum félagasamtökum og sjálfseignarstofnunum. Nefna má sjálfseignarstofnunina Grund og Sjómannadagssam- tökin sem reistu Hrafnistu- heimilin. Samband íslenskra berklasjúklinga (SÍBS) kom á fót vinnu- og endurhæfingar- hælinu á Reykjalundi og svo mætti lengi telja. En til að grasrótarstarfsemi af þessu tagi nái að dafna þarf að varð- veita þær eldheitu hugsjónir sem liggja til grundvallar og gera það að verkum að tug- þúsundir manna og kvenna séu tilbúin að vinna sjálfboða- liðastarf í þágu málefnisins. Hið opinbera má þá ekki með nokkrum hætti tálma starf- semina. Mikilvægi frjálsra félagasamtaka Segja má að framkomið frum- varp um skattaívilnanir til almannaheillafélaga feli í sér viðurkenningu á mikilvægu hlutverki frjálsra félagasam- taka og sjálfboðaliða í sam- félaginu, en athugun starfs- hóps um þetta málefni leiddi í ljós að í nágrannaríkjunum væru skattalegir hvatar til starfsemi almannnaheilla- samtaka mun víðtækari en hér á landi. Verði frumvarpið að lögum má vænta þess að styrkari stoðum verði rennt undir margvíslega starfsemi frjálsra félagasamtaka. Almannaheill, samtök fé- laga og sjálfseignarsamtaka í almannaheillastörfum, hafa fagnað frumvarpinu sem sé að þeirra áliti til mikilla bóta fyrir „þriðja geirann“. Þau segja tillögurnar bæta veru- lega skattalega stöðu samtaka sem vinna að almannaheill og þar muni mestu um heimildir til handa einstaklingum til að lækka skattgreiðslur sínar með því að beina styrkjum til viðurkenndra almannaheilla- félaga. Skattaleg hvatning af þessu tagi er í sumum öðrum löndum talin mikilvægust allra þeirra skattaívilnana sem þessum félögum eru búnar. Ganga mætti lengra Þrátt fyrir að stór skref séu stigin með þessu frumvarpi má velta því upp hvort ekki sé rétt að ganga lengra og skoða til að mynda greiðslur almannaheillasamtaka á inn- skatti virðisaukaskatts sem nú vega þyngra en aðrar skatt- greiðslur í útgjöldum þessara samtaka, en mörg sambæri- leg samtök í nágrannalönd- unum eru undanþegin þessum skatti. Hér að framan var nefnt að varðveita þyrfti þær eldheitu hugsjónir sem lægju þessum félögum til grundvallar – en það þarf líka að kveikja nýjar og skapa skilyrði til þess að borgararnir geti með auðveld- ari hætti tekið sig saman um lausn margvíslegra þjóðþrifa- mála – og að slík starfsemi fái búið við sem hagfelldast laga- umhverfi í öllu tilliti. n Hjálparsveitir vinna fórnfúst starf – oft við háskalegar aðstæður. MYND/AUÐUNN SKOÐANAPISTILL BORGARARNIR VIRKJAÐIR TIL ÞJÓÐÞRIFAVERKA Frumvarp til laga um almannaheillafélög felur í sér viðurkenningu á mikilvægi starfsemi sem stundum er nefnd „þriðji geirinn“. En til að grasrótar- starfsemi af þessu tagi nái að dafna þarf að varðveita þær eldheitu hugsjónir sem liggja til grundvallar. EYJAN 17DV 11. DESEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.