Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS Börn fæðast ekki með fordóma Hjónin María Rut og Ingileif eru höfundarnir á bak við bókina Vertu þú! Þær eru þakklátar fyrir góðar viðtökur og vona að bókin geti hjálpað foreldrum að ræða við börnin sín um fjölbreytileikann. Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is M aría Rut Kristins-dóttir og Ingileif Friðriksdóttir eru mörgum Íslendingum kunnar. Fjölmiðlakonan Ingileif hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna um árabil og er nýgengin til liðs við skapandi stofuna Ketchup Creative. María Rut er aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunn- arsdóttir, þingmanns Við- reisnar. Þær hafa verið ötulir talsmenn fyrir baráttu hin- segin fólks og halda einnig úti hlaðvarpsþættinum Raun- veruleikinn. Nýlega gáfu þær út bókina Vertu þú! þar sem þær segja litríkar sögur af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni. Þekkja það af reynslunni Í bókinni er fjallað um hin- segin fólk, trans börn, börn af erlendum uppruna, fatlað fólk, fjölbreytt fjölskylduform og fleira. Bókin var skrifuð með þessi börn í huga, sem bregða út af norminu á einhvern hátt, en hún var líka skrifuð fyrir foreldra sem vilja ræða við börnin sín um fjölbreytileik- ann en vita ekki hvernig best er að bera sig að. Þær þekkja það af eigin reynslu sem mæð- ur tveggja drengja. „Þegar sá eldri var að byrja í grunnskóla voru svo margir foreldrar barna í kringum hann, sem langaði að tala við börnin sín en vissu ekki hvernig þeir ættu að fara að. Við ákváðum að þessi bók gæti þá verið ágætis byrjun á samtali og ákváðum að vera bara með bók sem segir hlut- ina nákvæmlega eins og þeir eru. Því yfirleitt þarf bara að segja börnunum hlutina og þau skilja þá, þau fæðast ekki með neina fordóma,“ segir Ingileif og María Rut bætir við: „Ef við höldum áfram að tipla á tánum í kringum raun- veruleikann og í kringum samfélagið eins og það er saman sett, því við erum fjölbreytt, við erum ólík, við erum alls konar. Ef við erum alltaf hikandi gagnvart því að það sé staðreynd, þá búum við til þessar jaðarsettu hug- myndir um að fólk sé öðru- vísi en eitthvert norm. Okkur langaði að skrifa bókina frek- ar hispurslaust til að fá líka fullorðna fólkið til að skoða eigin fordóma og kannski eig- in ótta við að taka þessi sam- töl. Því þau eru kannski alin upp við meiri jaðarsetningu en kynslóðin sem á eftir þeim kemur.“ Sagan um Ronju Í bókinni er saga um trans stelpuna Ronju. María Rut og Ingileif segja að þær hafa velt því lengi fyrir sér hvern- ig væri best að segja söguna hennar Ronju, þar til þær áttuðu sig á því að þær ættu bara að segja hana alveg eins og hún er. „Við vorum búnar að skynja María Rut og Ingileif segja hispurslaust frá fjölbreytileikanum. MYND/HANNA 11. DESEMBER 2020 DV að foreldrum þætti þetta erf- itt viðfangsefni til að tala um við börnin sín. Annaðhvort taldi fólk þetta vera of flókið eða börn væru of ung til að vita um trans fólk. En börn eru ekkert of ung til að vita af fjölbreytileikanum og því fyrr sem þau vita að við erum öll ólík því betra,“ segir Ingi- leif og bætir við að það sé best að segja hlutina alveg eins og þeir eru svo börn skilji. María Rut segir að það sé þó alveg mannlegt að þykja þessi umræðuefni erfið að einhverju leyti. „Við erum alin upp með að þetta sé kannski frekar óþægilegt umræðuefni, því það á það til að vera svo mikill feluleikur og skömm í kringum þetta,“ segir hún og bætir við að þeirra draumur sé að með aukinni og opinni umræðu þá þurfi það ekki að vera svona mikill hjalli fyrir fólk að fá að vera það sjálft. Aðspurðar hvenær þær telja vera rétta tímann til að byrja að ræða fjölbreytileikann við börn segja þær að það fari eft- ir þroska barnsins. „Foreldrar skynja þroska barna sinna. Ég held að þau skilji þetta mikið fyrr en við gerum okkur grein fyrir. En auðvitað setur maður hlutina í ólíkan búning eftir þroska,“ segir María Rut. Ekki of mikið María Rut og Ingileif kippa sér lítið upp við gagnrýnis- raddir sem telja bókina og skilaboð hennar vera „of mikið“. „Ef einhverjum finnst það að tala um raunveruleikann vera „of mikið“ þá veit ég ekki alveg hvar við erum stödd. Það að neita að tala um ein- hverja hluti við börn, að ætla bara að sneiða fram hjá því að fjölskylduform séu mismun- andi til dæmis, það er eins og ætla að sneiða fram hjá því að sumir eru rauðhærðir eða eitthvað álíka. Hinsegin fjölskyldur eru hluti af mann- flórunni, alveg eins og trans fólk. Það að tala ekki um það er svo mikil fáfræði. Með því að tala um þetta getum við eytt tabúinu og fordómum,“ segir Ingileif. „Þetta snýst um lífsham- ingju. Þetta snýst um að fá að vera maður sjálfur í eigin skinni og hafa áhuga á því sem maður hefur áhuga á, og það meiðir ekki annað fólk. Það tekur ekkert pláss af öðrum. Þessi bók er vonandi efniviður fyrir foreldra sem hafa áhuga á að tala um fjölbreytileika við börnin sín en vita ekki hvar þeir eiga að byrja,“ segir María Rut. Viðtökurnar frábærar Það er greinilegt að það hefur verið mikil eftirspurn á íslenskum markaði fyrir svona bók. Vertu þú! komst á metsölulista Eymundsson og var uppseld um tíma, en sem betur fer er ný sending komin til landsins. Þrátt fyrir þessar ótrú- legu viðtökur munaði litlu að bókin hefði aldrei komið út. Fyrst þegar Ingileif og Mar- ía Rut fengu hugmyndina og vildu framkvæma hana, þá fengu þær þau svör að það væri þegar ein „svona“ bók á markaðinum og markaðurinn væri því „mettaður“. Þær viðurkenna að þeim hafi þótt þessi viðbrögð und- arleg, þar sem það eru mörg þúsund barnabækur um hið hefðbundna fjölskylduform, en aðeins ein um hinsegin fjöl- skyldur. „Um leið og við áttum fund með Sölku bókaforlagi þá small þetta allt og hefur geng- ið ótrúlega vel,“ segir María Rut. María Rut og Ingileif segja að það hafi kveikt á neista að skrifa bókina og að viðtökurn- ar hafa gefið þeim hvatningu til að halda áfram. Þær segja það því ansi góðan möguleika á að landsmenn megi eiga von á meira efni frá þeim í fram- tíðinni, það er allavega ekki útilokað. n Við erum alin upp með að þetta sé kannski frekar óþægilegt umræðuefni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.