Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Qupperneq 26
Gríðarlega grísasjúk og heklar eftir því Ragnheiður M. Kristjónsdóttir er með eindæmum handlagin. Hvort sem bora þarf fyrir hillu eða hekla smágrís fer Ragga létt með það. É g var og er grísasjúk en ástæðan er ekki alveg kristaltær. Eflaust er það blanda nokkurra atriða. Ég fíla bleikan lit, grísir eru með hrikalega sæta, litla inn- stungunebba og flest allt sem tekur á sig grísalíki verður svo endalaust krúttlegt,“ segir Ragga, eins og hún er kölluð. Sýkin byrjaði svo sem nógu sakleysislega. „Ég sótti í allt góss sem minnti á grísi og fjárfesti í einum og einum tusku grís, eftir að hafa nælt mér í aura með því að stúta sparigrísnum. Sá stærsti var gríðarlega stór og mig dreymdi fyrir nafninu: Daníel Markó, sem var virðingar- vottur við heimsbókmennt- irnar, þær sem fjölluðu um Ísfólkið. Næst fór ég að leira örlitla grísi úr Fimo-leir og láta mig dreyma um að eign- ast alvöru angórudverggrísi. Jú, þeir eru víst til,“ segir Ragga, sem losnaði ekki undan blætinu þó að aldurinn færðist yfir. Dálætið óx. Instagram-grísir „Eftir að hafa fylgt fjölda sprenghlægilegra grísa á Insta gram og laðað að mér alls kyns gjafir í grísalíki fór ég að prófa mig áfram með að hekla þá. Síðustu jól fengu vel valdir vinir og vandamenn að njóta ávaxta þeirrar tilrauna- starfsemi þegar þeim bárust lukkugrísir í kassa með skila- boðum ætluðum hverjum og einum. Þær sendingar vöktu lukku og því varð úr að halda aðeins áfram á sömu braut. Ég var ánægð með gömlu grísina en ekki nógu ánægð, svo ég ákvað að mölva aðeins upp hugmyndina. Nýtt garn, nýir litir og aukalykkjur hér og þar leiddu af sér nýja og litskrúðuga kynslóð hrein- ræktaðra lukkugrísa, sem eru sætari og lukkulegri en rækjur í majónesi. Gústi félagi minn hefur óbil- andi trú á því sem ég geri og verandi grafískur hönnuður og þúsundþjalasmiður hnoðaði hann í eitt stykki sölusíðu fyrir mig þar sem stefnan er að selja grísina bæði hér heima og er- lendis,“ segir Ragga en sala grísanna fer vel af stað. „Eðli málsins samkvæmt eru engir tveir grísir eins, enda hand- gerðir af alúð, og litir og garn fara eftir innblæstri dagsins. Grísirnir eru því allt frá því að vera á stærð við fimm krónu pening og upp í sæmilega bústna golfkúlu, en allir eiga þeir það sameiginlegt að færa eiganda sínum lukku.“ Heklköst Aðspurð hvort það sé ekki snúið að hekla svo litla grísi segir Ragga það vera kúnst sem komi í köstum. „Það er talsverð kúnst að hekla mjög litla grísi, þessir allra minnstu eru ekki mikið stærri en króna og það þarf þolin- mæði, vandvirkni og góð gler- augu í það verkefni. Sjálf hef Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Ragnheiður á bleika deginum með grísinn Flosa John um hálsinn. MYNDIR/AÐSEND Einstaklega krúttlegt. Grísirnir fást á piggyinabox.is. MYNDIR/AÐSENDAR ég alltaf verið sjúk í allt smátt og í gamla daga var leikfanga- verslunin Tokyo í algjöru uppáhaldi en þar voru alls kyns smáhlutir frá japanska leikfangaframleiðandanum Sanrio á borð við Hello Kitty, My melody og Little Twin Stars. Þeir grísir sem eru til sölu eru ekki alveg svona smáir því það hafa ekki allir sama smekk fyrir ör grísum og ég sjálf.“ Ragga heklar í skorpum og þemun eru misjöfn. „Mamma kenndi mér að hekla og ég hef tekið nokkur stór heklköst: húfur handa öllum og ömmu þeirra, sjöl, barnateppi og í ár eru það grísir og risastórt CO- VID-teppi handa sjálfri mér. Svo hef ég verið að viða að mér nýjum aðferðum á You- tube og það er algjör veisla því möguleikarnir eru enda- lausir.“ Fyrir jólin smellti heklar- inn knái í grísi á jólatréð. „Jólagrísir eru bullandi jóla- legir. Lukkugrísirnir mínir á piggyinabox.is eru með hanka og miða með fallegum skila- boðum. Hankann má klippa af ef maður vill setja grísinn í smáhlutahillu, koma honum fyrir á altari í stássstofunni, eða hvað annað sem fólki dett- ur til hugar, eða hengja hann á hankanum á jólatréð. Hvað er jólalegra en krúttlegur fjöl- notagrís?“ n 26 FÓKUS 11. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.