Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Page 28
BÆKUR SEM AUKA SJÁLFSTRAUST BARNA Í jólabókaflóðinu í ár er fjöldinn allur af góðum kost- um í jólapakkann. Hér gefur að líta brot þeirra góðu barnabóka sem út koma, en þessar bækur þykja sérstaklega til þess fallnar að ljá börnum hugrekki og kynda undir kraftinum sem býr í þeim öllum. Ég vel mig eftir Ernu Kristínu Stefánsdóttur Útgáfuár: 2020 Bókin hjálpar börnum og um- sjónaraðilum að læra inn á sjálfs- myndina og líkamsmyndina, þekkja helstu hugtökin og efla sjálfstraustið með fræðandi og skemmtilegum hætti þar sem karakter bókarinnar leiðir ykkur í gegnum allt það mikilvæga í tengslum við virðingu gagnvart okkur og einstaka líkamanum okkar. Áherslan er lögð á að hjálpa öðrum að komast skrefinu nær því að ná sátt við líkama sinn, bera virðingu fyrir honum og elska hann. Elska hann eins og hann er núna og í gegnum allar breytingar sem kunna að verða í gegnum lífið. Íslandsdætur eftir Nínu Björk Jónsdóttur Útgáfuár: 2020 Bókin fjallar um margar merkustu konur Íslandssögunnar og sýnir svo sannarlega að konur geta allt. Hugrekki, dugnaður og kjarkur drýpur af hverri síðu. Bókin er falleg myndskreytt af Auði Ýri Elísabetardóttur sem ljær sögu- hetjunum sterka mynd. Í formála frá höfundi kemur fram að það sé hennar von að börn eigi eftir að lesa bókina og sækja í hana hvatningu og kjark til þess að láta drauma sína rætast og gefast ekki upp þótt á móti blási. Öflugir strákar: Trúðu á sjálfan þig Eftir Bjarna Fritzson Útgáfuár: 2020 Bjarni Fritzsson er sálfræði- menntaður afreksmaður í íþrótt- um sem haldið hefur fjölda sjálfs- styrkingarnámskeiða fyrir börn og unglinga. Bjarni hefur gefið út fjölda bóka með það markmið að efla krakka og hafa bækurnar um Orra óstöðvandi og Möggu messa notið mikilla vinsælda en Bjarni hefur einbeitt sér að því að ná til drengja með skrifum sínum. Bókin Trúðu á sjálfan þig kemur meðal annars inn á hvernig börn geta verið ánægð með sig og öðlast meira sjálfstraust. Hvernig ná má betri árangri í því sem þau hafa áhuga á og hvernig takast skuli á við mótlæti. Orri óstöðvandi og Magga Messi koma víða við sögu, auk þess sem í bókinni er að finna ýmsar áhugaverðar frásagnir af flottum fyrirmyndum og öflugum strákum. Elli, dagur í lífi drengs með ADHD Teikningar og saga eftir Ara H. G. Yates Útgáfuár: 2020 Bókin er gefin út af ADHD samtök- unum og er byggð á raunverulegum atburðum í lífi níu ára íslensks drengs sem er með ADHD. „Börn með ADHD upplifa sig oft misskilin og fá gjarnan neikvætt viðmót þegar þau eiga erfitt með að hlýða, vera kyrr eða vinna verk- efni sem þeim finnst óspennandi. Megininntak bókarinnar að gefa raunsanna innsýn í líf barna með ADHD og benda ungum jafnt sem öldnum á að það er vel hægt að líta á ADHD með jákvæðum hætti; það er hægt að „beisla“ ADHD til góðs,“ segir um bókina á síðu ADHD sam- takanna. Handbók fyrir ofurhetjur eftir Elias og Agnes Vålund Útgáfuár: 2017 – 2020 Út eru komnar fimm bækur í bókaflokknum Handbók fyrir ofurhetjur. Sú fyrsta er frá 2017 en sú nýjasta er nýkomin í versl- anir. Lísu líður illa í nýja skólanum. Nokkrir strákanna leggja hana í einelti og á hverjum degi leitar hún skjóls á bókasafninu. Einn daginn rekst hún á bók sem inni- heldur 101 æfingu fyrir þau sem vilja verða ofurhetjur. Getur verið að það sé hægt? Hröð, spennandi og skemmtileg saga um stúlku sem tekur málin í eigin hendur. Í fimmtu bókinni er meðal annars komið inn á mikilvægi þess að sýna veikleika. „Aðeins þau sem eru raunverulega sterk þora að sýna veikleika,“ segir í lýsingu bókarinnar. 28 FÓKUS B ækur eru sígild gjöf sem aldrei fellur úr gildi. Íslendingar eru mikil bókaþjóð en fjöldi bóka sem koma út ár hvert er með því mesta í heimi hérlendis. Það getur verið flókið að velja réttu bókina í pakkann þegar svo mikið úrval er í boði. Bækur sem bæta sjálfstraust barna eru ávallt góð hugmynd. Hér koma fimm tillögur af annars löngum og álitlegum lista. Í næsta tölublaði DV, Jólablaðinu mikla, verður ann- ar og lengri listi yfir bækur sem DV mælir með. n Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Bækur sem efla sjálfstraustið eru góð gjöf. MYND/SIGTRYGGUR ARI 11. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.