Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Blaðsíða 28
BÆKUR SEM AUKA
SJÁLFSTRAUST BARNA
Í jólabókaflóðinu í ár er fjöldinn allur af góðum kost-
um í jólapakkann. Hér gefur að líta brot þeirra góðu
barnabóka sem út koma, en þessar bækur þykja
sérstaklega til þess fallnar að ljá börnum hugrekki
og kynda undir kraftinum sem býr í þeim öllum.
Ég vel mig
eftir Ernu Kristínu Stefánsdóttur
Útgáfuár: 2020
Bókin hjálpar börnum og um-
sjónaraðilum að læra inn á sjálfs-
myndina og líkamsmyndina,
þekkja helstu hugtökin og efla
sjálfstraustið með fræðandi og
skemmtilegum hætti þar sem
karakter bókarinnar leiðir ykkur
í gegnum allt það mikilvæga í
tengslum við virðingu gagnvart
okkur og einstaka líkamanum
okkar. Áherslan er lögð á að
hjálpa öðrum að komast skrefinu
nær því að ná sátt við líkama sinn,
bera virðingu fyrir honum og elska
hann. Elska hann eins og hann er
núna og í gegnum allar breytingar
sem kunna að verða í gegnum
lífið.
Íslandsdætur
eftir Nínu Björk Jónsdóttur
Útgáfuár: 2020
Bókin fjallar um margar merkustu
konur Íslandssögunnar og sýnir
svo sannarlega að konur geta allt.
Hugrekki, dugnaður og kjarkur
drýpur af hverri síðu. Bókin er
falleg myndskreytt af Auði Ýri
Elísabetardóttur sem ljær sögu-
hetjunum sterka mynd. Í formála
frá höfundi kemur fram að það
sé hennar von að börn eigi eftir
að lesa bókina og sækja í hana
hvatningu og kjark til þess að láta
drauma sína rætast og gefast ekki
upp þótt á móti blási.
Öflugir strákar:
Trúðu á sjálfan þig
Eftir Bjarna Fritzson
Útgáfuár: 2020
Bjarni Fritzsson er sálfræði-
menntaður afreksmaður í íþrótt-
um sem haldið hefur fjölda sjálfs-
styrkingarnámskeiða fyrir börn
og unglinga. Bjarni hefur gefið út
fjölda bóka með það markmið að
efla krakka og hafa bækurnar um
Orra óstöðvandi og Möggu messa
notið mikilla vinsælda en Bjarni
hefur einbeitt sér að því að ná til
drengja með skrifum sínum.
Bókin Trúðu á sjálfan þig kemur
meðal annars inn á hvernig
börn geta verið ánægð með sig
og öðlast meira sjálfstraust.
Hvernig ná má betri árangri í því
sem þau hafa áhuga á og hvernig
takast skuli á við mótlæti. Orri
óstöðvandi og Magga Messi
koma víða við sögu, auk þess
sem í bókinni er að finna ýmsar
áhugaverðar frásagnir af flottum
fyrirmyndum og öflugum strákum.
Elli, dagur í lífi drengs með ADHD
Teikningar og saga eftir Ara H. G. Yates
Útgáfuár: 2020
Bókin er gefin út af ADHD samtök-
unum og er byggð á raunverulegum
atburðum í lífi níu ára íslensks
drengs sem er með ADHD.
„Börn með ADHD upplifa sig oft
misskilin og fá gjarnan neikvætt
viðmót þegar þau eiga erfitt með
að hlýða, vera kyrr eða vinna verk-
efni sem þeim finnst óspennandi.
Megininntak bókarinnar að gefa
raunsanna innsýn í líf barna með
ADHD og benda ungum jafnt sem
öldnum á að það er vel hægt að líta
á ADHD með jákvæðum hætti; það
er hægt að „beisla“ ADHD til góðs,“
segir um bókina á síðu ADHD sam-
takanna.
Handbók fyrir ofurhetjur
eftir Elias og Agnes Vålund
Útgáfuár: 2017 – 2020
Út eru komnar fimm bækur í
bókaflokknum Handbók fyrir
ofurhetjur. Sú fyrsta er frá 2017
en sú nýjasta er nýkomin í versl-
anir. Lísu líður illa í nýja skólanum.
Nokkrir strákanna leggja hana
í einelti og á hverjum degi leitar
hún skjóls á bókasafninu. Einn
daginn rekst hún á bók sem inni-
heldur 101 æfingu fyrir þau sem
vilja verða ofurhetjur. Getur verið
að það sé hægt? Hröð, spennandi
og skemmtileg saga um stúlku
sem tekur málin í eigin hendur.
Í fimmtu bókinni er meðal annars
komið inn á mikilvægi þess að
sýna veikleika. „Aðeins þau sem
eru raunverulega sterk þora að
sýna veikleika,“ segir í lýsingu
bókarinnar.
28 FÓKUS
B ækur eru sígild gjöf sem aldrei fellur úr gildi. Íslendingar eru
mikil bókaþjóð en fjöldi bóka
sem koma út ár hvert er með
því mesta í heimi hérlendis.
Það getur verið flókið að velja
réttu bókina í pakkann þegar
svo mikið úrval er í boði.
Bækur sem bæta sjálfstraust
barna eru ávallt góð hugmynd.
Hér koma fimm tillögur af
annars löngum og álitlegum
lista. Í næsta tölublaði DV,
Jólablaðinu mikla, verður ann-
ar og lengri listi yfir bækur
sem DV mælir með. n
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
Bækur sem efla sjálfstraustið eru góð gjöf. MYND/SIGTRYGGUR ARI
11. DESEMBER 2020 DV