Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 30
S ælar. Ég er nýbúin að eignast kærasta. Það lítur allt vel út en ég er brennd eftir fyrri sambönd og langar til þess að vita hvernig ég get verið viss um að þetta sé „sá rétti“? Áttu einhvern tékklista til þess að styðjast við? Mikilvægu stoðirnar Sæl. Takk fyrir mikilvæga spurningu sem miklu fleiri mættu spyrja sig. Ég segi stundum í gríni að helsti vandi í parsamböndum fólks sé að hafa yfirhöfuð byrjað saman. Með því á ég við að fólk leggur rosalega mikla vinnu í að velja sér til dæmis hund. Þá velur fólk tegundina gaumgæfilega, skoðar got, stærð, karakter og fær sér- fræðiálit. Í kjölfarið leitar fólk á hvolpanámskeið og allt er þetta hið besta mál. Aftur á móti gætum við stundum tekið hundaleitina til fyrir- myndar því þegar fólk velur sér maka þá fær ástríðan oft að ráða för og rannsóknar- vinnan lýtur í lægra haldi. Þú biður um tékklista en það besta sem ég get gefið þér eru upplýsingar um að það eru fjórar mikilvægar stoðir í góðu parsambandi. Þessar stoðir eru vinátta, lífs- skoðanir, ástríða og þekking. Í vináttu felst svo margt til dæmis virðing, traust, að njóta félagsskapar hvort ann- ars og stuðningur. Ef þú spyrð hamingjusöm pör hvers vegna þau eru svona hamingjusöm þá er tíðasta svarið „við erum svo góðir vinir“. Í minni vinnu með pörum hef ég rekið mig á að stundum vantar upp á vin- áttuna, en þá þarf að greina betur hvað í vináttunni mætti vera betra og styrkja það eins og kostur er. Sameiginleg gildi Lífsskoðanir endurspegla gildi okkur í lífinu og þeim er gríðarlega erfitt að breyta hjá fólki. Þessar skoðanir mótast á löngum tíma, þær eru djúpstæðar og litaðar af mörgum þáttum. Dæmi um lífsskoðanir eru trúarbrögð, pólitísk viðhorf og hugsjónir. Þegar par hefur mjög ólíkar lífsskoðanir, það er annað er hægrisinnað og hitt vinstri- sinnað, annað er vegan og hitt kjöt æta og eitt er trú- leysingi og hitt kaþólikki, þá getur slíkt framkallað óró- leika í parsambandinu um hin minnstu smáatriði. Ég er þó ekki að að fullyrða að slík sambönd séu ekki lífvænleg, síður en svo, þar þarf þó að vera til staðar mikil virðing fyrir ólíkum sjónarmiðum. Þekking er nokkuð sem pör sem hafa verið saman lengi telja sig yfirleitt búa yfir. Við erum þó aldrei búin að viða að okkur þekkingu um makann og það má alltaf gera betur. Fólk tekur stöð- ugum breytingum og því er það mikilvægt að vera sífellt að viða að sér nýrri þekkingu um maka sinn, vera forvitin, fylgjast með og spyrja. Uppá- haldsmaturinn hennar fyrir þrjátíu árum er ólíklega sá sami í dag og stefnan sem hann tók í fyrra í tengslum við atvinnumál gæti hafa breyst á undanförnum mán- uðum. Fiðrildi í maganum Ég tala stundum um kemistrí þegar ég fiska eftir því hvort pör finni fyrir ástríðu sín á milli. Mér finnst fólk tengja vel við þá breytu án þess að ætla að ég sé að spyrja beint út í kynhegðun. Það er svo margt sem felst í ástríðunni til dæmis að vera skotin í hvort öðru, fá fiðrildi í mag- ann, nánd, faðmlög eða koss- ar. Sum pör finna fyrir mik- illi ástríðu án þess að snerta hvort annað mikið, önnur pör uppfylla allar hinar breyt- urnar það er lífsskoðanir, þekkingu og vináttu en á milli þeirra ríkir ekkert kemistrí. Ef vilji er fyrir hendi frá báðum aðilum eru forsendur til þess að vinna með bresti í tengslum við allar þessar mikilvægu stoðir í parsam- bandi. Það sem ég tel þó að fólk flaski oftar á en öðru í upphafi parsambanda er að það leyfir ástríðunni að blekkja. Ef fólk hefur fundið fyrir fiðrildum í maganum og getur ekki sleppt sjónum hvort af öðru þá telur það sig vera ástfangið. Ástfangið af manneskju sem það þekkir ekki sérlega vel, hefur ekki fengið tíma til þess að byggja upp vináttu við og hefur ekki gefist tækifæri á að kynna sér lífsskoðanir hvort annars. Tveggja ára reynslutími Að þessu sögðu, er það mín von að þú og aðrir sem eru að stíga sín fyrstu skref í par- samböndum njóti ástríðunnar að vild en séuð meðvituð um að það er mikilvægt að halda öllu opnu, rannsaka aðrar mikilvægar hliðar, horfast í augu við rauð flögg og eiga opinskátt samtal um þessa þætti sem hér hafa verið ræddir. Ég heyrði eitt sinn að það tæki um það bil tvö ár að verða ástfangin af mann- eskju, ég sel það ekki dýrara en ég keypti það, en það gæti verið ágætis bjargráð að taka slíkan tíma til reynslu. Umfram allt, fylgstu vel með sjálfri þér, öryggi þínu og sjálfsmynd. Það er innsæi sem getur gefið þér góðan leiðarvísi um hvort þú sért á réttri leið. Svo bara njóta þess að vera skotin og sjá hvert það leiðir ykkur. Góða skemmtun. n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem var að byrja í nýju sambandi. ER HANN SÁ RÉTTI? Sérfræðingur svarar MYND/GETTY 30 FÓKUS 11. DESEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.