Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Page 32
Matseðill
Karítasar Hörpu
Morgunmatur
Uppáhaldið mitt er „spari“ grautur
okkar eldri sonar míns. Hafra-
grautur með stöppuðum banana út
í, matskeið af hnetusmjöri, kanil og
mjólk. Öllu hrært vel saman. Hrika-
lega góð leið til að byrja daginn.
Hádegismatur
Oft eru það afgangar síðan kvöldið
áður, eitthvað aðkeypt eða ef ég
vippa einhverju upp er það yfir-
leitt einfalt. Eitthvað eins og egg/
ommeletta, grænmeti og kannski
ristað brauð.
Kvöldmatur
Fiskur er vinsæll heima, við reyn-
um að hafa hann að minnsta kosti
tvisvar í viku, við erum líka rosa
dugleg að gera hakk og spaghetti
sem virðist alltaf ganga vel ofan í
alla heimilismeðlimi.
Hvít terta (Vínarterta)
Svona þar sem við erum dottin í jóla-
undirbúninginn og baksturinn langar
mig svo að deila með ykkur lagköku-
uppskrift sem við Aron hentum í ein-
mitt um daginn, saman, þegar strák-
arnir voru sofnaðir, ekki heppnaðist
hún bara svona ljómandi vel (betur
en við þorðum að vona) heldur varð
úr þessu heilmikil bakstursgæða-
stund hjá okkur parinu.
1 kg hveiti
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. hjartarsalt
500 g smjör
500 g sykur
5-6 egg
Smá vanilla ef vill
Sulta
Hitið ofninn í 200°C.
Hnoðið deig og skiptið í fjóra jafna
bita, best að vigta og kæla.
Breiðið síðan deigið út á plötur með
bökunarpappír á.
Bakið við 200°C í ca. 15 mín. Passið
að botnarnir verði ekki of dökkir.
Gott er að leyfa þessu aðeins að
kólna eftir ofninn og leggja síðan
botnana saman með sultu á milli laga
(klassík að hafa rabbarbarasultuna).
Pakkið tertunni í plast og bíðið í
sólarhring til að hún mýkist áður en
hún er skorin í bita, pakkað og fryst.
Verði ykkur að góðu.
32 MATUR 30. DESEMBER 2020 DV
Hvít terta sem kallar
á bakstursgæðastund
Söngkonan Karítas Harpa Davíðsdóttir á von á sínu þriðja barni,
er að gefa út nýja plötu í janúar og telur niður til jóla með jóla
lagadagatali á Face book. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi?
Karítas Harpa
hefur verið
myndarleg í
eldhúsinu í
desember.
MYNDIR/
ANTON BRINKS öngkonan Karítas Harpa Davíðsdóttir er tveggja barna móðir og á von á
sínu þriðja barni. Ekki nóg
með það þá er hún að vinna í
nýrri tónlist og telur niður til
jólanna með svokölluðu jóla
lagadagatali á Facebook. Frá
1. desember hefur hún sungið
eitt lag sem hún deilir með
aðdáendum sínum á Face
book og mun gera það til 24.
desember.
Venjulegur dagur
Karítas Harpa lýsir venju
legum degi í lífi sínu. Hún
byrjar á því að koma drengj
unum sínum í skóla og leik
skóla. Hún er komin 34 vikur
á leið með þriðja barn sitt og
ef nætursvefninn hefur verið
lítill, þá reynir hún að leggja
sig örlítið fyrir hádegi.
„Uppáhaldsdagarnir mínir
eru stúdíódagar, ég er að
vinna að því að leggja loka
hönd á plötu sem kemur út í
janúar svo ég reyni að nýta
daginn í skipulag á því eða
vinnu í tölvu,“ segir Karítas.
„Strákarnir litlu koma
heim milli 15.00 og 16.00,
þá er ýmist körfuboltaæfing
með þeim eldri eða við höf
um ofan af fyrir okkur með
perli, bakstri, málningu og
svo framvegis þar til kemur
að undirbúningi fyrir kvöld
matinn. Við Aron höfum bæði
mjög gaman af því að elda og
skiptumst gjarnan á að elda á
kvöldin.“
Fjölbreytt og ferskt
Karítas fylgir engu ákveðnu
mataræði. „Það hefur komið
mér í koll áður, þegar ég var
yngri. Verandi svolítið svona
allt eða ekkert týpa þá hent
aði það mér illa að ætla að
taka mataræði sérstaklega
fyrir og fór hreinlega út í
öfgar þar sem ég missti tökin
á því. Í dag reyni ég að hafa
mataræðið fjölbreytt, ferskt
og neita mér ekki um neitt
en reyni að halda skammta
stærðum þá innan eðlilegra
marka,“ segir hún.
Aðspurð hvort hún verji
miklum tíma í eldhúsinu segir
Karítas hann hafa aukist með
árunum.
„Ég er alltaf meira og meira
í eldhúsinu, mér finnst rosa
lega gaman að elda og baka.
Það vita það alls ekki allir
um mig en ég var nemandi
við Hússtjórnarskóla Reykja
víkur vorið 2013, sem ég
hreinlega elskaði. Mér finnst
held ég skemmtilegra að elda
og baka í dag þar sem ég er
að gera það loks fyrir fleiri
en bara sjálfa mig eða álíka,
það er alveg fátt eins leiðin
legt og að eyða löngum tíma í
að nostra við mat eða bakstur
og enginn vill einu sinni
smakka,“ segir hún.
„Svo hef ég verið alveg sér
staklega myndarleg núna í
desember og prófað nýjar
uppskriftir eins og að baka
lagköku og mömmukökur með
vinkonu minni sem dæmi.“
Uppáhaldsmáltíð?
„Einhver ferskur og góður
fiskur í ofni með nóg af ofn
bökuðu grænmeti, vel krydd
að með léttri jógúrtsósu. Ég
er alveg sérstaklega hrifin af
fiski og fiskréttum.“ n
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
MYND/ANTON BRINK