Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Page 33
Þreföld marengsterta með ís á milli
Þessi kaka er tilvalin til þess að
hafa í eftirrétt yfir hátíðirnar. Það
sem er þægilegt við hana er það að
hægt er að útbúa hana með fyrir-
vara og geyma í frysti. Ég mæli hins
vegar með því að þeyta rjómann og
setja ávextina ofan á kökuna sam-
dægurs.
6 eggjahvítur
320 g sykur
2 tsk. vanilludropar
200 ml rjómi
2 lítrar ís (ég notaði ís ársins með
Sambó-lakkrís)
Fersk ber og ávextir að eigin vali
(ég notaði mandarínur, brómber,
hindber og jarðarber)
Smá suðusúkkulaði og flórsykur til
að skreyta með.
Byrjið á því að stilla ofninn á 160
gráður, undir- og yfirhita.
Þeytið saman eggjahvíturnar og
sykurinn þar til að hægt er að hvolfa
skálinni án þess að blandan leki til,
bætið þá vanilludropunum saman
við og hrærið saman.
Myndið þrjá hringi á þrjár bökunar-
pappírsarkir og setjið inn í ofn og
bakið í 35 mínútur.
Takið botnana úr ofninum og leyfið
þeim að kólna vel áður en ís og
rjómi er settur á botnana.
Þegar botnarnir hafa fengið að
kólna er rjóminn þeyttur og settur
til hliðar.
Byrjið að leggja ískúlur á neðsta
botninn, setjið ávexti að vild og
leggið svo annan botninn ofan á,
endurtakið og leggið ís og ávexti
á þennan botn líka, ef að þið ætlið
að nota mandarínur, mæli ég með
að setja þær eingöngu á toppinn á
kökunni.
Leggið rjómablönduna svo ofan á
toppinn á kökunni, setjið fleiri ávexti
og saxið suðusúkkulaði og flórsykur
aðeins yfir til að skreyta.
Una í eldhúsinu
Skúffukaka með kaffikremi
4 dl hveiti
2 dl sykur
2 ½ tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
5 msk. kakó
4 egg
1 dl brætt smjör
1 dl ab-mjólk ( eða súrmjólk)
1 dl mjólk
2 tsk. vanilludropar
Byrjið á því að stilla ofninn á 180
gráður.
Blandið þurrefnunum saman í skál
og hrærið saman.
Bræðið smjörið og leyfið því aðeins
að kólna.
Bætið næst smjörinu, mjólkinni,
ab-mjólkinni, vanilludropunum og
eggjunum saman við og hrærið
vel þar til allt hefur blandast vel
saman.
Smyrjið bökunarform og setjið
deigið í, ég nota gjarnan ofnskúffu.
Bakist við 180 gráður í um 30-40
mínútur.
Leyfið kökunni að kólna vel áður en
kremið er sett ofan á hana.
Kaffikrem
250 g mjúkt smjör eða smjörlíki
250 g flórsykur
½ dl kalt kaffi
1 msk. vanilludropar
Blandið saman 250 g smjörlíki
(mjúkt) og flórsykri og hrærið vel
saman.
Bætið næst 1 msk. af vanilludrop-
um saman við ásamt ½ dl af köldu
kaffi hrærið öllu vel saman.
Mér finnst skemmtilegt að skera
kökuna í bita og setja kremið á með
kremsprautu.
Una Guðmundsdóttir, mat-
gæðingur DV, er ekki hætt að
baka og segir heimabaksturinn
fína sárabót fyrir jólaboð. Allra
nánustu geti vel gætt sér á
heimabakstri með jólalegu ívafi
og horft saman á huggulega
jólamynd.
MYNDIR/AÐSENDAR
MATUR 33DV 4. DESEMBER 2020