Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Page 36
Tíu atriði sem þú vissir ekki
um skærustu stjörnu heims
Anya Taylor-Joy er ein eftirsótt-
asta leikkona heims um þessar
mundir eftir að hafa leikið í
Netflix-þáttunum The Queen’s
Gambit. Þættirnir slógu áhorfs-
met og virðast allir vera æstir í
að vita meira um þessa frábæru
leikkonu.
1. TALAÐI SPÆNSKU SEM BARN
Anya talar spænsku reiprennandi
og lærði ekki ensku fyrr en hún
var átta ára gömul. Anya fæddist
í Flórída en flutti til Búenos Aíres
þegar hún var smábarn með for-
eldrum sínum, móðir hennar er
af spænskum ættum. Anya talaði
spænsku þar til hún var átta ára og
fjölskyldan flutti til London, þessi
breyting reyndist henni erfið.
2. NEITAÐI AÐ TALA ENSKU
Anya neitaði að tala ensku eftir
að hún flutti til London. Að læra
nýtt tungumál getur verið erfitt,
en ástæðan fyrir því að hún harð-
neitaði að tala tungumálið var ekki
vegna erfiðleika, heldur því hana
langaði að flytja aftur til Argentínu.
Hún trúði því að ef hún myndi ekki
læra að tala ensku, þá myndi fjöl-
skyldan enda með að flytja aftur
heim. Brögð hennar virkuðu ekki
og endaði hún með að fara í skóla
í Bretlandi.
3. HARRY POTTER HJÁLPAÐI
Þegar Anya sætti sig loksins við að
hún þyrfti að læra ensku fékk hún
aðstoð frá galdradrengnum Harry
Potter og bókunum um hann. Harry
Melling, sem lék Dudley í Harry
Potter-myndunum, var mótleikari
Anyu í The Queen‘s Gambit og
viðurkennir hún að hafa verið með
stjörnur í augunum þegar hún hitti
hann fyrst.
4. FAÐIR HENNAR VAR VÉLBÁTA-
KAPPSIGLINGAMAÐUR
Þetta hljómar eins og eitthvað úr
hasarmynd, vélbátakappsiglinga-
maður. En faðir hennar var ekki
alltaf í svona spennandi starfi,
hann var bankamaður fyrir það.
Örugglega ekki leiðinlegt að svara
spurningunni: „Hvað gerir pabbi
þinn?“
5. BLANDAÐUR HREIMUR
Í The Queen‘s Gambit er Anya með
bandarískan hreim, en leikkonan
sjálf er með hreim sem er ansi erf-
itt að staðsetja. Eins og kemur fram
hér að ofan bjó Anya í Argentínu til
átta ára aldurs, hún flutti síðan til
London og dvaldi þar til fjórtán ára
aldurs. Þá flutti hún til New York og
þar með er hreimur hennar einhvers
konar blanda af hreimum frá ólíkum
heimshornum.
6. UPPGÖTVUÐ SEM FYRIRSÆTA
Þegar Anya var unglingur var hún
uppgötvuð sem fyrirsæta. Hún var
á gangi fyrir utan verslun þegar hún
var sextán ára gömul. Útsendari
í leit að fyrirsætum bauð henni á
fund, sami útsendari og uppgötvaði
ofurfyrirsætuna Kate Moss.
7. FORÐAÐIST SPEGLA
Anya þykir áberandi í útliti og er
talin einstaklega falleg. En hún er
ekki sammála. Um tíma forðaðist
hún spegla og segir að hún hafi
aldrei og heldur að hún muni aldrei,
sjá sig sjálfa sem fallega.
MYND/INSTAGRA
M
8. HÚN ER LJÓSHÆRÐ
Það kemur kannski mörgum á
óvart, en Anya er náttúrulega
ljóshærð. Rauðu lokkarnir fara
henni svo vel í The Queen‘s Gam-
bit og hún sportar svörtu síðu hári
í kvikmyndunum Split, Glass og
Radioactive.
9. ÁSTRÍÐA FYRIR LEIKLIST
Anya vissi alltaf að hana langaði
til að verða leikkona. Hún hætti
í skóla þegar hún var sextán ára
til að elta drauma sína en það tók
tíma fyrir hana að fá hlutverk.
Á þeim tíma starfaði hún sem
fyrirsæta og í einni myndatökunni
hitti hún Alan Leech úr Downton
Abbey. Þau náðu vel saman og
hann reddaði henni fyrstu stóru
áheyrnarprufunni.
10. HÚN HATAÐI SKÓLA
Þó að ástríða hennar fyrir leik-
list hafi verið aðalástæðan fyrir
því að hún hafi hætt í skóla, þá
spilaði það vissulega inn í hversu
mikið hún hataði skólann. Hún átti
ekki marga vini, var lögð í einelti
og leið almennt mjög illa í skóla.
M
Y
N
D
/G
E
T
T
Y
MYNDIR/NETFLIX
MYND/IMDB
36 FÓKUS 11. DESEMBER 2020 DV