Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2020, Side 38
38 SPORT 433 BÆKUR FYRIR BOLTAFÓLK Hátíð ljóss og friðar kallar oftar en ekki á góða bók, en knattspyrnuáhugafólk getur svo sannarlega lesið sér til gagns og gamans yfir jólin. Ár hvert kemur út bókin Íslensk knattspyrna sem Víðir Sigurðsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, heldur utan um. Fleiri bækur tengdar þessari stærstu íþróttagrein í heimi komu út fyrir jól og henta þær bæði ungum sem öldnum. 11. DESEMBER 2020 DV ÍSLENSK KNATTSPYRNA 2020 Bækur Víðis Sigurðssonar um íslenska knattspyrnu þykja einstakar. Þessi vinsæli bókaflokkur hefur nú komið út í fjörutíu ár og hefur aldrei verið betri. Um er að ræða mikilvæga heimild um íslenska knattspyrnu. Íslensk knattspyrna kom út í fyrsta skipti árið 1981 en höfundur hennar þá var Sigurður Sverrisson, Víðir tók við ári síðar og hefur séð um skrifin síðan þá. Það sem meira er að núna geta lesendur keypt nýjustu bókina í forsölu og fengið aðgang að öllum hinum í rafrænu formi, eitthvað sem margir hafa lengi beðið eftir. Auk þess að fara yfir knattspyrnu- árið eru í bókinni í ár viðtöl við Rasmus Christiansen og Sonný Láru Þráinsdóttur sem fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum með sínum liðum og þá eru pistlar frá Gumma Ben, Guðna Bergssyni og Mist Rúnarsdóttur. LIVERPOOL – FLOTTASTI KLÚBBUR Í HEIMI Illugi Jökulsson fer í þessari bók ítarlega yfir eitt sögufrægasta knattspyrnufélag í heimi sem varð í sumar enskur meistari í fyrsta sinn í 30 ár. „Liverpool á glæstari sögu en nokkurt annað fótboltalið á Eng- landi. Ekkert enskt lið hefur oftar unnið æðstu met- orð í Evrópuboltanum. Hér segir frá Robbie Fowler, Kenny Dalglish, Virgil Van Dijk, Jordan Henderson og ótal fleiri snillingum,” er haft eftir útgefanda um bókina. Bókin er fyrir alla aldurshópa og sérstaklega þá sem minni eru enda eru stórar myndir og textinn er skemmtilegur. Bók sem eldheitur stuðningsmaður Liverpool mun elska um ókomna tíð. Í FAÐMI LJÓNSINS – ÁSTARSAGA Orri Páll Ómarsson ritar þessa skemmtilegu bók um ást Íslendinga á enska fótboltanum. Það er oftar en ekki talað um enska fótboltann sem þjóð- aríþrótt Íslendinga, fyrir mörgum er enski boltinn hreinlega trúarbrögð. Stuðningsmaður Manchester United fagnar þegar vel gengur en situr í sárum í marga daga þegar lið hans tapar, þannig má segja um öll lið og þeirra stuðningsmenn. Í bókinni ræðir Orri við einstaklinga um ástina á enska boltanum og þeirra liði. En hvernig hófst þessi ástarsaga? Hvenær og hvers vegna lentum við í faðmi enska ljónsins? Tilkoma getrauna 1952 og sjónvarpsins 1966 eru sannarlega vörður á þessari vegferð. Frásagnir og ritstíll Orra gera bókina fræðandi en afar skemmtilega á sama tíma. MEISTARATAKTAR Bók sem yngri kynslóðin mun kunna vel að meta en í bókinni eru æfingar í bland við fróðleik. Ungt knatt- spyrnufólk getur lesið bókina og farið svo út á völl og reynt að herma eftir stjörnum fótboltans, æfing- arnar sem eru sýndar eru vel útskýrðar með myndum og texta. „Viltu ná stjórn á boltanum eins og Kylian Mbappé, fara fram hjá andstæðingunum eins og Lionel Messi, tækla eins og Lucy Bronze eða verja óverjandi skot eins og Alisson Becker? Þessi bók getur hjálpað þér að ná tökum á meistaratöktum bestu leikmanna heims,” segir á kápu bókarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.