Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 9

Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 9
 sínum ljúfu danstónum. Heldur var færra en kvöldið áður en vel messufært engu að síður. Svíarnir tóku við af Erlingi og höfðu nú skipt um stíl. Var því vel tekið að vonum og dansgólfið þéttskipað. Vindbelgirnir tóku við af þeim og sama stuðið hélst. Lokatónana áttu þeir Þorleifur Finnsson og Guðbjartur Björgvinsson Nikkólínumaður. Þeim til full- tingis var Lára Björg Jónsdóttir söngkona. Þarna var komið stuðbandið sjálft. Dansararnir voru nú teknir til kostanna sem aldrei fyrr og í lokin var ánægður hópur, sem yfirgaf Þinghamar í þriðja sinn á einni helgi. Var ekki laust við einhverjir færu sér hægt heim enda flestir af léttasta skeiði. Mánudagurinn varð eins og best verður á kosið. Sól skein i heiði og ekkert fararsnið á harmonikuunnendum. Kveðju- stund var þó runnin upp, en óskir um góða heilsu til næsta vors ekki skornar við nögl. Margir fengu sér eina aukanótt í blíðunni. Friðjón Flallgrímsson / Ljósmyndir Siggi Harðar Trío Ingrid Hlíðberg í léttri œfingu Hljómsveit Þorleijs Finnssonar ásamt söngkonunni Láru Björg lauk VarmahlíSarhátíðinni Fyrstu gestirnir stilla saman strengi í borgfirskri blíSu 2016 Skemmtanir Félags harmonikuunnenda í Reykjavík veturinn 2016-2017: 22. október 26. nóvember 7. janúar 4. febrúar 11. mars 22. apríl 6. Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Dansleikur í Breiðfirðingabúð Dansleikur í Breiðfirðingabúð Dansleikur í Breiðfirðingabúð Árshátíð og Þorrablót í Breiðfirðingabúð Dansleikur í Breiðfirðingabúð Dansleikur í Breiðfirðingabúð Harmonikudagurinn 9

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.