Harmonikublaðið - 01.09.2016, Qupperneq 10

Harmonikublaðið - 01.09.2016, Qupperneq 10
Færeyjaferð Þingeyinga sumarið 2016 Fœreyjafaramir. Mikið úrvalslið afþingeyskum gleíi mönnum og konum í vor fór Harmonikufélag Þingeyinga til Fær- eyja. Lagt var upp með Tanna Travel 16.6. kl 05 að morgni. Bílstjóri og leiðsögumaður var Svenni, Sveinn Sigurbjarnarson og til aðstoðar kona hans Margrét Oskarsdóttir. Norræna sigldi í rauðabítið. Allnr var hópurinn, austur á jjöllum óvenju þögull og dálítið sljór syndandi fullir, af sjóveikistöflum seelir hrutu menn allir í kór. Sveinn tók okkur vara fyrir, að við yrðum „ruglaðar" af sjóveikistöflum. Þá orti Sigríður Ivarsdóttir: Fyrir endann á túrnum fier ekki séð árans lendir í hrellingum. Hann má til Fœreyja, halda með hrúgu afrugluðum kellingum. I Seyðisfirði var þoka en bjart til hafsins. Um kvöldið var spilað, sungið og dansað að Þing- eyingasið. Þjóðhátíðardaginn 17. vöknuðum við á óttu til að sjá Færeyjar rísa úr hafi, lögðum okkur svo á hóteli í Þórshöfn fram að dagmálum og héldum síðan áfram til Suður- eyjar með Smyrli.Veður var gott og sást vel til eyja. A Þvereyri tók Sævar Halldórsson frá Keflavík á móti okkur og bauð í lífsins vatn og veitingar í íþróttahúsinu og sýndi okkur bæinn, kirkjuna, gömlu bryggjuna og Segl- loftið þar sem djamma átti um kvöldið. Enduðum við daginn í dásamlegri 17. júní veislu þar sem skipst var á gjöfum. Síðan leið kvöldið með söng, dansi og harmonikuleik og mátuðu Suðureyingar okkur alveg í húmor, söng og danshraða. Vel er glaðst á vinafundum við höfum notiðþessa dags. Með svima afdansi, okkur undum alvegfram til sólarlags. 10 Á Suðurey svaf Grímur á Rauðá einn í her- bergi. Á færeysku, merkir orðið skattur ást. Um nóttina villtust þrjár konur til Gríms, hver í sínu lagi.en voru gerðar afturreka jafn- harðan og höfðu orð á. Skenkja Grimi skömm í hattinn skörulegar kellingar. Að hann þáði ekki skattinn er þeim mjög til hrellingar. Hildur Petra og Vigdís Jónsdóttir deildu her- bergi og hafði Hildur Petra Friðriksdóttir þetta að segja um herbergisfélagann. Fœreyjaferðina lofandi. Frœkin um klettana klofandi. Þó aldrei sá neitt, var alltafsvo þreytt, að hún fór alla ferðina sofandi. Daginn eftir fórum við með Sævari í Pork- eyrarkirkju, þar sem meðhjálparinn söng fyrir okkur, síðan í Voga með skáldi staðarins, Sæv- ari og myndlistarmanni sem á skemmtileg verk þar í fjörunni. Þá var ferðinni heitið til Sumba, síðan upp að vita á Akrabergi og að lokum enduðum við í Lionshúsinu og voru höfðinglegar veitingar á báðum stöðum. A Suðurey eru vegir brattir og mjóir og þurfti víða að bakka til að ná beygjunum. Býsna er leiðin brött og mjó og bílstjórinn okkar fullkominn. Fáeinar rollur fóru þó flam úr okkur, íþriðja sinn. Margt er kinda í Færeyjum, hrútar ófáir og þykja góðir í skerpukjöt. Fóru Svenni í gamni að líkja yngstu konunum Hildi og Vigdísi við gimbrar. Þá orti Hildur. Aflygum miklum mœddust, mér erþó eiður sœr, aðfélaginu fieddust, í ferðinni gimbrar tvœr. Að kvöldi þess átjánda júní kvöddum við gest- gjafana, sigldum til Þórshafnar og ókum til Klakksvíkur þar sem gist var fjórar nætur. En tímamismunurinn ruglaði Hildi og fór hún á fætur um miðja nótt og orti: Er svefnhöfgi við hana skildi, þá strax hún á fartina vildi. Nú Vigdísi brá, hún eftirþví sá að hafa deilt rúmi með Hildi. Eins og gengur vildu konur í búðir en þær opnuðu seint og lokuðu snemma og gekk Guðný Gestsdóttir sig upp að hnjám í versl- analeit. / erfiðum tröppum hún útafdatt og eftir það varð ekki þokað. Við Sigrún í búðina hlupum svo hratt að henni var samstundis lokað. Þann nítjánda var hlýtt á messu í Klakksvíkur- kirkju og svo í skoðunarferð til Kunoy, sem er sætt gamaldags þorp. Um kvöldið vorum við boðin í veislu og tónleika í Fuglafirði hjá Harmonikufélagi Færeyja og spiluðu þeir yndislega og voru skemmtilegir. Þeir sögðust hyggja á Islandsferð næsta sumar, sem vonandi verður. Þessi veisla einstök er afallra besta tagi. Fareyingar finnast mér flinkir í meira lagi. Nú var runninn upp tuttugasti júní og förinni heitið tilTofta og Runavik, þar sem við hittum

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.