Harmonikublaðið - 01.09.2016, Qupperneq 11
Þránd í Götu. Um kvöldið borðuðum við
heima á Klakksvíks Sjömannshem, en þar er
ekki leyft að hafa vín um hönd. Guðný tjáði
sig mjög um þetta harðræði.
Þeir bönnuðu Guðnýju bjórinn sinn
brattur er dyggðanna vegur.
Nú er grdtur nývakinn
nú er hlátur tregur.
Þrátt fyrir þetta var spilað og sungið fram á
nótt og lét Smári Kárason bannið sem vind
um eyru þjóta.
Um það orti Sigríður:
I Rúsabúðina runnið var
reyndu að setja upp á hóteli bar
greyin í mörgu mœðast.
Er Smári hœttur að smakka það,
eða smeygir sér út á leynistað,
og Guðný með glasið að Imðast.
Eitt sem þeir vissu ekki þar
að ráku hótelið templarar
Jón því virðist í vanda.
Varla má nota veigarnar
voru ífelum hér ogþar
sem vœru með íslenskan landa.
Þann 21. ókum við til Saksun ogTjörnuvik
og sáum Risann og Kellinguna sem eitt sinn
ætluðu að draga Færeyjar til Islands. Síðan
ókum við niður í Gjögv að sjá Gjána sem er
einstök náttúruleg höfn. Seinasta stoppið var
Funning að skoða Rinkusteinana. Um kvöldið
ætluðum við að panta kvöldverð aftur á Hótel
Klakksvík, en þá hafði hótelstjórinn gefið
kokknum frí. En við sultum ekki lengi. Svenn-
inn fann KeiluhöII í Leirvik með ágætis mat-
seðil en meðan á biðinni stóð varð þessi til.
Þó viðfáum fátt að borða
finnst mér vera lítið mál.
Gamalœr með góðan forða
geta étið skarfakál.
Um kvöldið í Klakksvík var sungið og spilað
en Smári hljóp út og inn, því hann þurfti að
klára birgðirnar úr rúsabúðinni og fékk með
sér nokkra hrausta menn.
Til augnanna Smári er ekki sljór
og á honum mikið stuð.
Hann réði hóp til að bjarga bjór
það er bölvað puð.
Þann 22. ókum við aftur til Þórshafnar. I allri
ferðinni var Svenni óspar á sögur, fróðleik og
gamanmál og fór m.a.með vísu eftir Hákon
Aðalsteinsson, hvar kom fyrir nýyrði, innan-
píkubleikur. Þá mundi ég eftir að hafa séð í
búð, bleika peysu, í of litlu númeri.
Utsalan reyndist fráleitt tilfjár
aðfitna, er enginn leikur.
En tískuliturinn okkar í ár
er utan-kónga- bleikur.
Og þá orti Sigríður:
Hljóp hann Smári heldur sprœkur
við Hafdísi nú semja má.
Kom með efni í bleikar brœkur
býsna verðurflotturþá.
Þennan síðasta dag skoðuðum við Kirkjubæ
og Norræna húsið, en á eftir var bæjarrölt.
Byrðar mínar ber ég sveitt.
Búðaráp er erfitt gaman.
Brattar götur þramma þreytt
og þurrka mér í framan.
Heimferðin:
Þegar komið var í Norrænu var seinkun, vegna
bilunar í reykháf en til glaðnings voru boðnir
tveir fyrir einn á barnum.
Kaldur er Smári og kotroskinn
með kollurnar ekki seinn.
Tvœrfyrir eina í áttunda sinn
og enn stendur kallinn beinn.
Loks var látið úr höfn og siglt móti sólarlaginu.
Ekki höfðum við nikkur uppi, svo fátt var að
gera, nema versla í fríhöfninni. Þar keypti
Guðný glæsilegar nærbuxur. Um þær var
fjallað á heimleiðinni.
I innkaupum vorum áýmsu gekk
engar brœkur égfann
en Guðný í Múla G-strengfékk
aðgleðja sinn eiginmann.
Um hádegið, þann 23. sigldum við inn Seyðis-
fjörð í góðri fjallasýn og stigum á land í sól-
skini.
Með ástarþökk fyrir góða ferð,
Hólmfríður Bjartmarsdóttir
Gunnlaugur Þröstur Höskuldsson
f. 17. október 1943 - d. 16. ágúst 2016
Gunnlaugur Þröstur var fæddur í Reykja-
vík en fluttist ungur að árum austur á
Höfn í Hornafirði og bjó þar og starfaði
til dauðadags. Lífshlaup Gunnlaugs Þrastar
helgaðist að mestu tónlist. Þröstur eins og
hann var oftast nefndur byrjaði 16 ára
gamall að spila í danshljómsveitum á
Höfn, hann söng í Karlakórnum Jökli í
fjölmörg ár, stofnaði Lúðrasveit Horna-
fjarðar og stjórnaði henni í 20 ár, stjórnaði
skólalúðrasveit Hornafjarðar í 19 ár,
stjórnaði og spilaði í Harmonikufélagi
Hornafjarðar í 16 ár og tók félagið þátt í
harmonikulandsmótum. Þröstur var einn
af stjórnendum Jassklúbbs Hornafjarðar,
stofnandi og stjórnandi Jassbands Horna-
fjarðar, Dixielandshljómsveitar og Big-
bands Hornafjarðar. Afþessu má sjá hversu
víða Þröstur kom við í tónlistinni og lagði
lið þar sem hann gat því við komið. Hann
lék líka á mörg hljóðfæri. Þröstur starfaði
við tónlistarkennslu við Tónlistarskóla
Hafnarkauptúns og síðar Tónlistarskóla
Austur Skaftafellssýslu frá árinu 1972 til
2015. Þröstur hlaut Menningarverðlaun
Hornafjarðar árið 2011. Tónlistin var líf
og yndi Þrastar og vann hann mikið og
óeigingjarnt sjálfboðastarf á þeim vett-
vangi. Eftirlifandi kona Gunnlaugs Þrastar
er Linda Helena Tryggvadóttir og eignuð-
ust þau þrjú börn. Harmonikuvinir á
Hornafirði og Samband íslenskra harm-
onikuunnenda sendir fjölskyldu Gunn-
laugs Þrastar innilegar samúðarkveðjur.
Haukur Helgi Þorvaldsson, Höfn
F.h. Sambands íslenskra harmonikuunnenda
Gunnar Kvaran, formaður
11