Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 14

Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 14
Fannahlíðarhátíð 1 Hátíðin var haldin eins og stefnt var að samkvæmt áætlun. Hollvinir Fannahlíðar þeir Sigurður Harðarson og Sveinn Sigurjónsson stóðu að mestu að verklegum undirbúningi, en höfðu haft mikið samráð við Geir Guðlaugsson formann HUV í aðdraganda mótsins. Þegar mótið hófst á föstudagskvöldið voru tuttugu og fjórir húsbílar mættir á svæðið. í dansinum um kvöldið voru nokkru færri í húsinu en á síðasta ári, en dansað af „list“ eigi að síður frá hálf níu. Lékum við HUV menn, undir- ritaður, Geir og Jón Heiðar, fyrstu 45 mínúturnar, en síðan tók Svenni Sigurjóns við. Þorleifur Finnsson var næstur á dagskrá áður en Vind- belgirnir luku ballinu. Þegar Mývetningurinn Friðrík Steingrímsson mætti á svæðið rifjuðust upp hrakfarir ársins áður þegar draga varð húsbílinn til áfangastaði í Fannahlíð. Lífireynslunni lœrður afi legg ég út meðfirúna. Ifyrra hér hún fór á kaf, en flýtur betur núna. Þegar meistarinn vaknað á laugardagsmorguninn varð honum hins vegar að orði Yfir grúfa skúraský, skuggum dreifa lausum. Það er líka þoka í, þunnra gesta hausum. Sirrý fór listahöndum um flautuna Laugardagurinn heilsaði með sól og blíðu og tónleikarnir hófust klukkan hálf þrjú á leik okkar félaganna í HUV. Lékum við þrjú lög, en þá tók Friðjón við og flutti fræðsluerindi um litlar tvöfaldar harmonikur og tókst vel upp eins og hans er vandi. Að erindi hans loknu vatt Friðrik Steingrímsson hagyrðingur úr Mývatnssveit sér að fyrirlesaranum og stakk að honum vísukorni, svo hljóðandi: .-3. júlí 2016 Það var pröngt setinn Svarfaöardalurinn á fóstudagskvöldiS Ekki stór en orkurík, upp hún rekur mikla skrœki. Mérfinnstþau verafurðu lík, Friðjón og þetta litla tœki. Nú var komið að snillingnum Sigríði Indriðadóttur (Sirrý) sem lét okkur fyrst heyra m.a. hvernig á að spila WHISKY polka og SÁKKIJÁRVEN polka á flautu, en lék síðan allmargar klassískar tónsmíðar af mikilli snilld. Eftir kvöldverð, sem margir snæddu undir berum himni hófst dansleikur kl. hálf níu og Selfyssingarnir Birgir Hartmannsson og Þórður Þorsteins- son hófu leik og fljótlega var gólfið þéttskipað. Þá var komið að hálf- gerðum leynigesti, en Aðalsteinn Isfjörð var mættur á svæðið og nú fengu gestir kunnuglega tóna. Nú fylltist það litla pláss sem eftir var á gólfinu. Næstir á svið voru Vindbelgirnir og síðan tókum við félagar í HUV eina törnina. Svenni Sigurjóns lauk síðan ballinu með stæl. Ágætis mæting var á hátíðina og virtust allir skemmta sér hið besta. Undirleik- arar í Fannahlíð voru þau Sigríður Indriðadóttir, sem fékk að blása úr nös þegar Aðalsteinn Isfjörð leysti hana af. Hreinn Vilhjálmsson sá um bassaleikinn. Gítarleikarar voru þeir Jón Bjarnason og Lárus Skúlason. Geir lét þess getið að Hollvinirnir væru búnir að tryggja sér húsið næsta sumar, en vegna Landsmótsins á fsafirði væri dagsetning að þessu sinni 14. til 16. júlí. Frágangur að hátíð lokinni mun hafa verið í höndum Hollvinanna, en ég var lítið á staðnum milli spilatíma vegna lasleika heima fyrir. Ekki er enn vitað um fjárhagslega útkomu hátíðarinnar, en Valdimar gjaldkeri sagði þegar nokkuð var á liðið, að við værum komin fyrir vind, sem bendir til þess að ekki hafi orðið halli á framkvæmdinni. Gestur Friðjónsson með örlitilli viðbótfrá ritstjóra /Ljósmyndir Siggi Harðar

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.