Harmonikublaðið - 01.09.2016, Síða 15
Harmonikutónleikar Itríos í Hörpunni
Sunnudagurinn 10. júlí 2016 mun í framtíðinni verða minnst
sem eins stærsta dagsins í harmonikusögu Islendinga. Það er
dagurinn sem þrír nemendur í harmonikuleik héldu sjálfstæða
tónleika x tónlistarhúsi Islendinga, Hörpunni.
Hér er að sjálfsögðu átt við þau Helgu Kristbjörgu Guðmunds-
dóttur, Jón Þorstein Reynisson og Jónas Asgeir Ásgeirsson. Þau
kalla sig Itrío. Það verður að fara aftur til þess tíma, þegar Hrólfur
Vagnsson kom frá námi á níunda áratugnum til að finna sam-
jöfnuð. Gamall draumur margra rættist með þessum tónleikum
og er enn ein staðfesting á þeim árangri sem harmonikufélögin
hafa náð með starfi sínu. Sagt er að miklu valdi sá er upphafinu
veldur. Þess vegna eiga þau skilið sérstakt hrós tónlistarkennararnir,
Messíana Marselíusdóttir, Stefán R. Gíslason og Guðmundur
Samúelsson.
En hvað var gefið á garðann í Norðurljósasalnum? Það var sko
ekkert moð. Fyrsta verkið var Stjörnur eftir Pawel Baranek. Ákaf-
lega fallegt verk, draumkennt og hrífandi. Þá var komið að Johanni
Sebastian Bach. Allegro-kaflinn úr sónötu í g-moll sem samin var
upphaflega fyrir fiðlu, BWV 1020. Stórkostlega fallegt og krefjandi
verk. Magnað verk Himnalestin eftir Pólverjann Janusz Wojtarowics
var næst á dagskránni. Þarna þurfa spilararnir svo sannarlega að
vera á tánum, eins og þeir voru. Pólverjinn Janusz Wojtarowicz
er stofnandi þess fræga Motion-Tríós, sem hélt ógleymanlega
tónleika í Nasa við Austurvöll sumarið 2006. Dagskráin í Hörpu
var reyndar mjög í anda Motion-tríós og verkefnalistinn mjög
svipaður. Þá var komið að meistara Astor Piazzolla. Vorið úr
árstíðunum fjórum í Buenos Aires hljómaði stórkostlega, gullfal-
legt verk um lífið að vakna eftir vetrardvalann. Þá var komið að
Air, adagio kaflanum úr svítu nr. 3 eftir J.S. Bach. Þetta náði
sannarlega til áheyrenda, enda öllum kunnugt. Finninn Jukka
Tiensuu átti næsta stykki. Ekki hljómaði það eins kunnuglega.
Magnað stykki með gjeggjaða kafla. Þá var komið að Parísarkaffi-
húsinu eftir Janusz Wojtarowics. Einstaklega heillandi ljóðrænt
verk sem áheyrendur kunnu að meta. Sigling eftir Junchi Deng,
sem er kínverskur samnemandi þremenninganna í Kaupmanna-
höfn, fylgdi í kjölfarið. Næst fengu tónleikagestir sumarið úr
árstíðunum effir Astor Piazzolla. Ekta Piazzolla, heillandi tónsmíð
meistarans, sem hélt gestum föngnum. Þá var komið að þriðja
kafla fiðlusónötunnar eftir Bach, sem engan svíkur. Lokalagið var
Balkandans í útsetningu Janusz Wojtarowicz. Sérlega lifandi og
fallegt verk sem fékk áheyrendur til gleyma sér gjörsamlega. Ekki
fengust gestirnir út eftir þetta og fengu sem aukaverk íslenska
þjóðlagasyrpu í útsetningu þremenninganna. Ekki dugði þetta
svo tónleikunum lauk með You dans eftir Wojtarowicz, verk í
mjög svipuðum anda og Balkandans og ekki síður verulega krefj-
andi.
Tónleikarnir voru stórkostleg upplifun fyrir á þriðja hundruð
tónleikagesta, sem mættu í Norðurljósasal Hörpunnar. Jafnvel
hörðustu gömlu dansa unnendur sátu agndofa og réðu sér ekki
Dagskrá tónleikanna
Pawel Baranek
Johann Sebastian Bach
Janus Wojtarowicz
Astor Piazzolla
J.S. Bach
Jukka Tiensuu
J. Wojtarowicz
Junchi Deng
A. Piazzolla
J.S. Bach
Þjóðlag (J. Wojtarowicz)
Stjörnur
Allegro (BWV 1020, kafli I)
Himnalestin
Vorið
Aría (úr BWV 1068)
mutta
Parísarkaffihúsið
Sigling
Sumarið
Allegro (BWV 1020, kafli III)
Balkneskur dans
Þéttskipaður Norðurljósasalurinn í Hörpu
Helga Kristbjörg, Jónas Ásgeir og Þorsteinn Reynir á sviðinu í Hörpunni
fyrir hrifningu. Flutningur þremenninganna var frábær og ekki vafi að þar
fóru tónlistarmenn í hæsta gæðaflokki. Tæknin og túlkunin frábær. Við
sem höfum fylgst með þeim þroskast í gegnum árin þekkjum þau, en
framkoma þeirra hefúr ætíð borið keim af hógværð snillingsins. Spilagleðin
geislaði af þeim og skipti þá ekki máli upp á hvað var boðið. Það er langt
síðan jafn margir harmonikuunnendur hafa farið jafn ánægðir af harmo-
nikutónleikum. Vonandi verður ekki löng bið fram til næstu tónleika.
Texti FriSjón Hallgrímsson / Ljósmyndir: Siggi Harðar
_________
Skoðið timarit.is og flettið harmonikublöðum frá 1986
r : a
Helðursfélagar SÍHU
Aðalsteinn Isfjörð, Baldur Geir-
mundsson, Bragi Hlíðberg og Reynir
Jónasson.
V _________________________________J