Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 16

Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 16
Fréttir frá Harmonikufélagi Selfoss Síðastliðið haust var haldinn árlegur haustfundur SÍHU á Hótel Stracta á Hellu. Við morgunverðarborðið hittust formenn HFS og HFR og barst þá í tal framtíð félaganna og voru menn sammála um að hún væri ekki björt. Félagsmönnum fækkar, aldurinn færist yfir og lítil sem engin endurnýjun. Upp kom sú hugmynd hvort ekki væri flötur á því, að félögin tækju upp samstarf við æfingar og samspil. Þetta var síðan rætt í báðum félögunum og ákveðið að prófa hvort þetta gengi upp. Sameiginlegar æfingar hófust upp úr áramótum og var áhugi mikill að láta þetta ganga. Æft var til skiptis á Hellu og Selfossi og þegar á leið vetur vorum við orðin níu, sem spiluðum á harmonikur auk bassa- og gítarleikara. Grétar Geirsson sá um að stilla okkur saman og allir höfðu gaman af þessu enda Grétar frábær stjórn- andi og félagi. A degi harmonikunnar var haldin harmonikuveisla á Hellu, þar sem hópurinn spilaði sitt prógram við góðar undirtektir. Síðan tóku félagar HFR nokkur lög og einnig félagar frá HFS og að lokum spiluðu félagarnir Grétar Geirs og Guðmundur Samúelsson og var öllum spilurum vel fagnað af fjölmörgum áheyrendum. Undanfarin ár hefur HFS staðið fyrir útileguhátíð í Básnum Ölfusi í byrjun júnímánaðar og hefur það verið ágætlega sótt undanfarin ár og verið hjá mörgum fyrsta útilega sumarsins. Nú varð breyting á og við fluttum okkur að Minni Borg í Grímsnesi. Þar er mjög góð aðstaða og var vel mætt enda veður gott. Fyrstu gestir helgarinnar renndu í hlað á miðvikudeginum og um kvöldmatartímann á föstudegi var kominn dágóður hópur harmonikuunnenda, sem naut veðurblíðunnar. Klukkan níu um kvöldið hófst dansinn og voru það heimamenn sem störtuðu. Sveinn Sigurjónsson, sem leit við á leið heim úr sumarbú- staðnum var drifinn á svið um tíu leytið og klukkutíma síðar stigu Vindbelgirnir á svið. Birgir og Doddi luku síðan ballinu um hálf eitt leytið. Þá var komin svarta þoka á svæðinu, en staðsetningartæki sáu til þess að allir komust heim. Mæting var nokkuð góð og ástæða til bjartsýni fyrir laugardaginn. Tónleikar fóru fram á laugardeginum og þar kynnti Haraldur formaður HFR dagskrána og var ekki í vand- ræðum að koma orðum að hlutunum. Sameiginlegur hópur HFS og HFR steig fyrst á sviðið og síðan Birgir og Þórður, Sigurður Alfonsson og Garðar Olgeirsson. Þetta tókst allt saman vel. Mæting á tónleikana hefðu mátt vera betri, en við skrifum það á veðurblíðuna sem tók sér bólfestu að Borg. Garðar Olgeirsson hóf leik á laugardagsballinu, Sveinn Sigurjóns leysti hann af, þar til heimamennirnir Doddi, Biggi og Sigurður Guðjóns spiluðu þar til yfir lauk. Á bassa spiluðu Birgir Haraldsson og Hreinn Vil- hjálmsson. Gítarleikarinn Hróbjartur Vigfússon hljóp undir bagga þegar mikið lá við. Þá má ekki gleyma aðaltrommaranum til áratuga Guð- mundi Steingrímssyni. Norður til Skagafjarðar var haldið í boði Skag- firðinga og tekið þátt í skemmtun að Steins- stöðum. Vel var tekið á móti mannskapnum og ýmislegt til gamans gert, haldin voru böll og farið í skoðunarferð, sem mikil ánægja var með og eiga Skagfirðingar þakkir skildar fyrir. Einnig léku nokkrir félagar HFS og HFR á Kaffi Langbrók í Fljótshlíðinni í sumar og var spilað í tjaldi um miðjan dag. Einnig tekið þátt og spilað áTöðugjöldum 13. ágúst á Hellu. Að lokum sendi ég öllum harmonikuunnendum bestu kveðjur með ósk um bjarta framtíð. Þórður Þorsteinsson, formaður HFS. Ljósmyndari: Siggi Harðar Jœvið má ekki vanta Eru ekki allir í stuði ? Hljómsveit heimamanna Biggi, Doddi og Sigurður Guðjóns. Fyrir aftan Hróbjartur Vigfússon gítarleikari, „Papa jass“ trommari og Birgir Haraldsson á bassa 16

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.