Harmonikublaðið - 01.09.2016, Page 18
Harmonikuhátíðin í Ásbyrgi 2016
Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum og
Nikkólína úr Dölum héldu sína árlegu harm-
onikuhátíð í Asbyrgi í Miðfirði helgina 17.-19.
júní sl. Hátíðin hófst að þessu sinni á sjálfan
þjóðhátíðardaginn föstudaginn 17. júní, sem
er auðvitað almennur frídagur og því var þetta
löng helgi. Utisvæðið var enda orðið þétt-
skipað fljótlega upp úr hádegi, harmoniku-
unnendur komnir víða að, sól skein í heiði og
skemmtilegir dagar framundan í góðum félags-
skap.
Fjörið byrjaði svo með dansleik frá klukkan
níu til eitt. Það var stórsveit Nikkólínu sem
spilaði fyrir dansi að kvöldi þjóðhátíðardagins
17. júní. Sveitina skipuðu að þessu sinni á
harmoniku Halldór Þ. Þórðarson, stjórnandi
sveitarinnar, Steinþór Logi Arnarson, Kristján
Ingi Arnarson, Ásgerður Jónsdóttir, Sigvaldi
Fjeldsted, Melkorka Benediktsdóttir, Guð-
bjartur A. Björgvinsson, Jóhann Elísson, Ingi-
mar Einarsson og Sigrún Halldórsdóttir, á
gítar Hafliði Olafsson, á bassa Haraldur Reyn-
isson og við trommurnar sat í þetta sinn
Jóhann Ríkarðsson. Okkar ágæti trommari
með meiru, Ríkarður Jóhannsson hafði nefni-
lega þurft að láta krukka í hendina á sér og
var því alveg handlama svo við fengum Jóa
son hans til að bjarga okkur og það var ekki
slæmt, hann er frábær trommari og góður
félagi. Þetta var meiri háttar dansleikur, mikil
stemming og mikið dansað og sungið. ... Og
þá var hoppað, hlegið og dansað, heldur betur
aldrei varstansað, meðan entist máttur ífótum,
mikið vargaman aðþví... allt fram til kl. 1, þá
var sungið saman lokalag og svo svifu menn
heitir og sælir út í bjarta sumarnóttina.
Laugardagurinn heilsaði svo bjartur og fagur,
menn tóku það rólega framan af, spjallað og
spilað á útisvæðinu og enn fjölgaði í hópnum.
Skemmtidagskráin hófst kl. 14, fyrst komu
fram nemendur frá Tónlistarskóla Húnaþings
vestra undir dyggri stjórn Elínborgar Sigur-
geirsdóttur skólastjóra. Þar lék á klassískan
gítar Bjarni Ole Apel Ingason, Ingi Hjörtur
Bjarnason faðir hans og bóndi á Neðri
Svertingsstöðum söng við undirleik Elínborgar
og einnig Skúli Einarsson bóndi áTannstaða-
bakka. Þeir eru nemendur Olafs Einars
Rúnarssonar. Guðmundur Jóhannesson tók
svo nokkur lög á hnappanikkuna. Sandlóurnar
áttu ekki heimangengt í þetta sinn en Þor-
valdur kom með harmonikukvartett í staðinn.
Hann skipuðu á harmoniku Þorvaldur Páls-
son, Þórður Skúlason, Björn Pétursson og
Sveinn Kjartansson og með þeim lék Sigurður
I. Björnsson á gítar. Kvartettinn lék nokkur
lög við afbragðs undirtektir áheyrenda, enda
var hann vel kynntur af Sveini.
Þá var kominn tími á kaffihlaðborðið árlega,
Nikkólína á fullri ferð
Harmonikukvartettinn, fv Sigurður I. Björnsson, Þórður Skúlason, Sveinn Kjartansson, Þorvaldur Pálsson og Björn
Pétursson
Kvennasveit FHUR, meðþeim spila á trommur Sigríður Indriðadóttir og á gítar Hafliði Ólafison
18