Harmonikublaðið - 01.09.2016, Síða 19
þar svignuðu borð undan kræsingum og sá
hvergi högg á vatni þótt gestir gerðu
veitingunum góð skil. A meðan á borðhaldi
stóð var líka veisla fyrir andann því að Kvenna-
sveit FHUR spilaði þar eins og í fyrra. Þessa
skemmtilegu sveit skipuðu að þessu sinni Elsa
Kristjánsdóttir, Elísabet H. Einarsdóttir,
Asgerður Jónsdóttir og Gyða Guðmunds-
dóttir. Kaffið rann ljúflega niður við þýða
harmonikutónana og menn gáfu sér góðan
tíma til að njóta meðlætisins, svona á þetta
að vera.
A laugardagskvöldið var svo dansleikur frá kl.
21-01, það var Sveinn Sigurjónsson og hljóm-
sveit sem sáu um fjörið eins og undanfarin
ár. Dansinn var stiginn af miklum móð og
allir skemmtu sér vel. Gólfið alltaf fullt af
dansunnendum í miklu stuði. Þegar ballið
var hálfnað var tekið hefðbundið hlé til að
draga í happdrættinu, en þar var fjöldi góðra
vinninga eins og ævinlega. Hilmar Hjartarson
var fenginn til að sjá um lukkudráttinn í fjar-
veru Friðjóns Hallgrímssonar. Þegar lukku-
legir vinningshafar voru búnir að sækja
happafenginn til Melkorku og Sólveigar var
dansinum haldið áfram af krafti þar til að
Svenni endaði skemmtunina og frábært ball
með fjöldasöng, gestir mynduðu hring á dans-
gólfinu og sungu saman af hjartans lyst. Héldu
síðan sælir og ánægðir út í milda og fallega
nóttina og þar hélt gleðin örugglega áfram hjá
einhverjum en allt fór þetta vel fram.Veðrið
lék svo sannarlega við okkur þessa helgi, bjart
og fallegt veður, sól í heiði og hjarta alla
helgina.
Þetta samstarf Húnvetninga og Nikkólínu
hefur gengið afskaplega vel og Sólveig for-
maður HUH tilkynnti svo í lok hátíðar að
búið væri að ákveða harmonikuhátíðina á sama
tíma að ári. Og þá er bara að taka frá helgina
og skemmta sér með okkur í Ásbyrgi 16.-18.
júní að ári, allir velkomnir og hittumst hress!
SBH / Ljósmyndarar Siggi Harðar og Vilhjálmur
Bragason
Sveinn Síourjónsson og hljómsveit
Og dansinn dunar enn, þarna glittir í brjóstbirtu í rassvasanum
Og svo var sungið afhjartans lyst
Stemming á svœðinu
..ogflétturnar skiptust og síðpilsin sviptust og danslagið dunaði og svall
Skoðið timarit.is og flettið harmonikublöðum frá 1986
19