Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 22

Harmonikublaðið - 01.09.2016, Side 22
Gamla greinin er úr Harmonikunni frá árinul991. Þar má lesa staðgóðar leiðbeiningar varðandi framkomu. Það má finna í gömlum blöðum mikið af þess háttar. Birt með góðfúslegu leyfi ritstjóra Harmonikunnar. HVERNIG H/BJT ER AB UHMRBÚA SIG ta að yfinrinna snðshReðslu Langflestir hljóðfæraleikarar þjást af sviðshræðslu (sviðssk- rekk) á einn eða annan hátt, sem er eðlilegt, en hægt er að koma í veg fyrir. Munið, að spila oft fyrir áheyrendur er góð aðferð til æfa sig og um leið að efla sjálfstraust- ið. Nemendur í tónlist eiga að fá fjölskylduna í lið með sér á eftifar- andi hátt: Gagnrýni heima. Margir nemendur og jafnvel langt komnir hljóðfæraleikarar falla oft í þá gryfju að æfa sig án gagnrýni. Þetta þarf ekki að þýða að maður sleppi einhverju eða spili rangar nótur. Það vantar einfald- Iega að hlusta með gagnrýni. Ef við fáum eitthvað af þeirri gagn- rýni heima sem við getum átt von á annarsstaðar, erum við á góðri leið. Spiiar þú jafnt eða skrykkjótt? Notarðu belginn rétt? Leikurðu hægar á erfiðum stöðum í laginu og flýtir svo þegar það er auðveld- ara? Passarðu að halda réttum takti á meðan þú spilar? Reyndu að varast þá galla sem þú kannt að hafa heima og hafa hugann við þá, þá er síður að þér verði á mistök þegar þú leikur opinberlega. Hvernig maður undirbýr sig fyrir tónleika. Flestir æfa sig á sama stað við sömu kringumstæður. Á tónleik- um eru aðstæður allt aðrar og því er gott að geta æft sig í mismun- andi herbergjum með mismun- andi hjómburð. í tónleikasölum eru aðstæður mismunandi og því er gott að geta æft sig við mismunandi hljóm- burð. Æfðu þig standandi og sitj- andi og fáðu einhvern til að beina að þér sterku Ijósi eins og oft tíðk- ast á tónleikum, og eins er gott að fara í þann klæðnað sem á að nota þegar leikið er á tónleikum. Ef þú ert vanur/vön að leika í kyrrð þá getur hávaði frá áheyrendum 18 truflað þig. Fáið fjölskylduna til að tala saman á æfingu og einnig er gott að kynna lögin í hljóðnema sem ekki er of nærri, til að þú getir æft þig í að einbeita þér fyrir það sem koma skal, án þess að láta ut- anaðkomandi hávaða trufla. Sviðsframkoma Sviðsframkoma er listin að ná athygli áhorfenda, sýna yfirvegun og vera sáttur við það sem þú hef- ur fram að færa. Það er mikilvægt til þess að áheyrendur geti notið tónlistarinnar. Ef þú ert feiminn og með taugarnar í ólagi, flýtir þér út af sviði strax og þú hefur lokið leik þínum, þá ert þú að gera hið gagnstæða við góða sviðs- framkomu. Hér koma nokkur atriði um það sem þú þarft að gera og það sem þú átt ekki gera. Þú átt ekki að A: storma inn á svið og byrja strax að spila B: ganga inn á svið með hendur tilbúnar á hljómborði C: horfa á fingurnar á þér allan timann sem þú leikur D: stappa taktinn með fótunum E: vera með grettur eða aðra kæki meðan þú spilar F: rjúka út af sviði án þess að hneigja þig Þú ættir að: A: ganga rólega inn á svið, horfa á áheyrendur og bíða eftir að kyrrð komist á B: gefa þér tíma og vertu ró- leg/ur með festu og öryggi C: horfðu af og til út í salinn og brostu D: reyna láta fólk finna að þú njótir þess að leika fyrir það E: doka við augnablik er þú hef- ur lokið leik þínum, hneigja þig og ganga síðan rólega af sviði. Styrkur Þú getur ekki notið tónleika hjá söngvara sem syngur allan timan eins hátt og hann getur eða syngur allan tíman svo Iágt að varla heyr- ist í honum. Það sama á við harm- oníkuna þegar tekið er mið af þeim styrk sem hljóðfærið getur gefið frá sér. Öll hljóðfæri gefa mismunandi tónstyrk og verður að hafa það í huga þegar leikið er á það. Reyndu sjálf/ur þegar þú æf- ir þig heima, að spila eins sterkt og þú getur og þá muntu finna hvílík- ur kraftur er í hljóðfærinu. Not- aðu allar stillingar með mismun- andi styrk og vittu hvort það gefur þér ekki möguleika. Einbeitingin er mikiivæg. Það er sagt að nemendur byggi upp sviðskrekk alveg ómeðvitað. Það hefst venjulega með því að þeir hugsa stíft um það sem þeir ætla að leika. Athuga hvort fingrasetn- ingin er rétt og grúfa sig yfir borð- ið til að loka sig frá umhverfinu. En málið er að æfa sig vel heima og spila eftir minni. Spila fyrir vini og vandamenn eins oft og kostur gefst þannig að þegar þú kemur framm ætti sjálfstraustið að vera töluvert betra. Reyndu ekki að fara yfir lagið í huganum heldur láttu það líða jafnóðum fram í hugan- um, það eykur á öryggið. Nokkur heiiræði Forðist að bera harmoníkuna langar leiðir áður en þið byrjið að spila, þyngdin getur haft áhrif á vöðvana sem getur haft áhrif á hljóðfæraleikinn. Á vetrum getur kuldinn haft áhrif á tónana. Takið harmoník- una úr töskunni og hitið hana upp með því að hreyfa belginn út inn í nokkur skifti. Setjið harmonik- una aldrei nálægt ofni eða loft- ræstikerfi. Reyndu að fá góðan nætursvefn og vera í jafnvægi áður en þú ferð að spila. Þú verður að vera rólegur og úthvíld/ur. Spilaðu eins oft og þú getur. Þýtt og endursagt úr „Rytme" nr. 2, 1951 Þ.Þ. 22

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.