Feykir - 14.08.2019, Qupperneq 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTUR : Pollur
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hvað gerðir þú um
verslunarmanna-
helgina?
Spurt á Facebook
UMSJÓN : Eysteinn Ívar
„Ég eyddi verslunarmanna-
helginni í blíðskapar-
veðri í bústað tengda-
fjölskyldunnar í Skorradal.
Fjallganga, Skorradalsleikar
og mikið af góðum mat.“
Brynjar Þór Björnsson
Finna skal út eitt orð úr
línunum fjórum.
Ótrúlegt - en kannski satt...
Hinn 1. janúar 2019 voru landsmenn 356.991, samkv. tölum
Hagstofunnar og hafði þá fjölgað um 8.541 frá sama tíma árið
áður eða um 2,4%. Konum (174.154) fjölgaði um 1,9% og körlum
(182.837) fjölgaði um 2,9%. Ótrúlegt, en kannski satt, þá er líklegast
að barn komi í heiminn á þriðjudögum.
Meðlæti með
grillmatnum
Að þessu sinni ætlar Feykir að mæla með meðlæti fyrir grillrétti
sumarsins. Þar er af mörgu að taka og er það sem hér varð fyrir valinu
tekið sitt úr hverri áttinni en uppskriftirnar eiga það sameiginlegt að
umsjónarmaður hefur fengið vatn í munninn við að lesa þær þó að
vísu hafi hann ekki prófað þær allar.
( Feykir mælir með) frida@feykir.is
Tilvitnun vikunnar
Aumingja er maðurinn sem ánægjuna ráðast af leyfi
annars /Madonna
UPPSKRIFT 1
Kryddlögur
Uppskriftin að þessum kryddlegi
er fengin af netinu en nú er gleymt
af hvaða síðu. Þessi kryddlögur
hentar vel með lambakjöti.
½ dl þurrt sérrí
1 dl ólívuolía
1 dl sojasósa
safi úr einni sítrónu
3 msk púðursykur
3 msk Dijon-sinnep
3 stönglar rósmarín,
saxið nálarnar
salt og pipar
Aðferð: Blandið öllu saman og
veltið kjötinu vel upp úr
kryddleginum. Látið kjötið
marinerast í að minnsta kosti 2-3
klukkustundir áður en það er
grillað.
UPPSKRIFT 2
Ofnbakaðar sætar
parmesan kartöflur
Þessi uppskrift er fengin af síðunni
Ljúfmeti og lekkerheit.
2 sætar kartöflur
2 tsk pressaður hvítlaukur
1 msk ólífuolía
2 msk smjör, brætt
4 msk rifinn parmesan ostur
½ tsk hvítlaukssalt
½ tsk ítölsk kryddblanda
Aðferð:
Hitið ofninn í 200°C. Afhýðið
kartöflurnar og skerið í 2 cm
teninga. Setjið hvítlauk, olíu, smjör,
hvítlaukssalt, parmesan og ítölsku
kryddblönduna í plastpoka og
blandið vel. Bætið sætu
kartöflunum í pokann og hristið
hann vel, þannig að kartöflurnar
verði hjúpaðar olíu-, smjör- og
ostablöndunni.
Setjið álpappír yfir ofnplötu,
spreyið léttilega yfir með olíu og
dreifið kartöflunum yfir.
Bakið í um 20 mínútur eða þar til
kartöflurnar eru mjúkar í gegn.
„Var heima i firðinum fagra
og kíkti einnig í bústað í
Hegranesinu.“
Halldór Jón Sigurðsson
Kryddsósa og mangó- og lárperusalsa. MYND: FE
„Ég var nú bara að vinna og
flaug svo til Þýskalands á
mánudeginum.“
Áróra Árnadóttir
„Ég fór á Eina með öllu
á Akureyri, skellti mér í
Sjallann og skemmti mér
geggjað vel. Skál fyrir því!“
Dagmar Lilja Hreiðarsdóttir
UPPSKRIFT 3
Kryddsósa með
grillmatnum
1 dós sýrður rjómi, 10 eða 18%
2 msk majónes
1 msk Dijon sinnep
1 tsk sítrónsafi
1 tsk sykur
2-3 hvítlauksrif, marin
2 msk söxuð steinselja
Aðferð:
Blandið saman sýrðum rjóma og
majónesi. Blandið öðru hráefni
saman við. Látið bíða um stund.
Þessi sósa er mjög góð með grilluðu
kjöti, bökuðum kartöflum og
grænmeti.
UPPSKRIFT 4
Mangó- og lárperusalsa
Þessi uppskrift er fengin úr gömlu
Gestgjafablaði. Salsað er mjög gott
með grillmat, bæði kjöti og fiski.
Þeir sem ekki eru hrifnir af
kóríander geta sleppt því, þó mér
finnist það setja punktinn yfir i-ið,
og í staðinn mætti t.d. nota
steinselju.
1 þroskað mangó
1 þroskuð lárpera (avókado)
½ rauðlaukur
¼ rautt chili
safi úr ½ - 1 límónu
1 msk ólífuolía
½ tsk (gróft) salt eða eftir smekk
1 dl ferskur kóríander
Aðferð:
Skerið mangó og lárperu í smábita.
Saxið rauðlauk og chili í mjög smáa
bita og blandið saman við. Kreistið
safann úr límónunni yfir ásamt
ólífuolíunni og sáldrið salti yfir.
Saxið kóríander og bætið við. Bætið
við límónusafa og salti ef óskað er.
Það fer eftir smekk hvers og eins
hve salsað er haft fínt skorið.
Verði ykkur að góðu!
30/2019 11
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Á Ísafirði er ég stór.
Ofursmár í kýlunum.
Milli landa liggur sjór.
Leikvangur hjá sóðunum.