Freyr

Volume

Freyr - 15.11.1967, Page 3

Freyr - 15.11.1967, Page 3
FREYR BÚNADARBLAD Freyr nr. 22 — nóvember 1967 63. árgangur Útgefendur: BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS STÉTTARSAMBAND BÆNDA Útgáfustiórn: EINAR ÓLAFSSON HALLDÓR PÁLSSON PÁLMI EINARSSON Ritstjórn: AGNAR GUÐNASON GÍSLI KRISTJÁNSSON (ábyrgðarmaður) Heimilisfang: PÓSTHÓLF 390, REYKJAVÍK BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK Prentsmiðja Jóns Helgasonar Reykjavík - Sími 38740 Ritstjórn, innheimta, afgreiðsla og auglýslngar: Bœndahöllinni, Reykjavík — Simi 19200 EFNI: Um veturnœtur Kostamesta sauðféð Sauðnautið og sauðkindin Hjarðmaðurinn Mat á heyjum Ford og Fordson Bœndaleiðtogar Fœreyinga Vigfús Helgason, minning Stálgrindahús Molar Um veturnætur Sumarið 1967 er horfið á hak við tímans tjald. Vetur er genginn í garð. Enginn veit Invað hann færir okkur af gagni og gæðum, vá eða vanda. Hitt er þó vist, að mann- leg atorka og nýting vitsmuna, í baráttunni fyrir tilver- unni, hlýtur að verða miklu ráðandi um, hversu fer um velferð mann og málleysingja. Þetta er engin ný saga, en er þó alltaf ný: að fyrir- hyggja og skynsamlegar athafnir þurfa að vera ofarlega í huga og athöfn, ef slys og vá skal haldið langt frá borði á fleyi lífsins, er flytur okkur öll að einhverju endamarki. Fyrir bóndann er það sitt af hverju, sem hugleiða ber um veturnætur, eins og endranær og ekki síður en vant er. Fyrirhyggja um hag og velsæld manna og skepna, er þá ofarlega í huga. Með afrakstur sumarsins mætir hann vetri, sem enginn veit hvort reynist örðugur eða ágœtur. Hinn takmarkaði fengur, sem í þetta sinn hefur aflast, hrekkur of stutt, ef veturinn reynist þungur í skauti og lengri en í meðalári. Fr þá víst að mikla fyrirhyggju þarf til að komast vel af og geta að vetri loknum litið til baka með sigurgleði í huga. Fóðurfengur bœnda er lítill að þessu sinni, en efa- laust betri en í meðallagi að fóðurgildi. Það léttir ékki vandann að nýta hið litla vel. Það orkar varla tvímœlis, að langflestir verða að byrja strax á haustnóttum að spara hey, beita öllum skepnum eins lengi og gengið getur og gefa þeim kraftfóður með beitinré. Nú vill svo vel til, að innlent próteinfóður er miklu ódýrara en um undanfarin ár, en beitargrös eru jafnan próteinsnauð; því er gott að hafa innlenda uppbótarvöru að fóðra með. En gætið þess, bœndur góðir, að ekki sé rotvarnarefni i því síldarmjöli, sem þið kaupið, og kaupið því aðeins, að ábyrgð um það fylgi. Og kaupið ekki brúnt og brankað síldar- eða fiskimjöl nema með afföllum, því að slík vara getur verið líiils virði. Og útlent kjarnfóður er nú fáanlegt með sœmilegu eða góðu verði. í fyrra voru það ýmsir, sem keyptu ómalaðan maís og fóðruðu með honum þannig. Þetta er vanhyggja, því að ómalað korn nýtist lakar en kurlað, fóðurgildið vex að mun við að mala, af því að þá meltist það betur. Sparið því heyin framan af vetri og notið kjarnfóður og kraftfóður svo að öruggt verði að ekki skorti hey í vor. G. F R E Y R 439

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.