Freyr

Årgang

Freyr - 15.11.1967, Side 9

Freyr - 15.11.1967, Side 9
arnir gætt hjarða bændanna, sumar eftir sumar, allt frá því þær voru reknar úr heimabyggð í gróanda vori, unz vetrarríki fjalla og öræfa knúði til heimfara á haust- nóttum. Að sjálfsögðu er ekki hægt að rekja hér atburðaröð, sem nefnd bók segir frá, á meira en 400 síðum í stóru broti. Röð sú gerist á nefndum slóðum, sem að sjálf- sögðu eru okkur íslendingum framandi, en margt af því, sem þar er til frásagnar, er svo nauðalíkt sem við, gömlu smalarnir ís- lenzku, höfum komizt í kynni við fyrr á tímum á smalaárum okkar og svo í smala- mennskum og í göngum og leitum, að gamlar minningar rifjast upp, þegar um- rædd bók er lesin. En fróðlegt er að grípa niður í inngangi. Meira þarf ekki til þess að komast á bylgju- lengd við efnið og færazt inn í þá veröld, sem var og er hjarðmannsins og smalans, rétt eins hvort sem hann er af Jaðrinum í Noregi eða úr Hrunamannahreppi, Svarf- aðardal, eða enn öðrum stöðum á íslandi. En hér er frásögnin norsk og eftirfarandi gripið úr miklu efni til birtingar hér í þýðingu. —o--- Bólið er orðið volgt eftir margra nátta notkun. Á jörðina var fyrst raðað hellum og ofan á þær lagður mosi, og þetta er það hátt, að vatn rennur ekki í bólið þó að rigni, heldur streymir það framhjá sem smálækir. Á hlóðunum er sótugur ketill, gljáandi svartur af elli og notkun. Borðið er steinn og steinar eru sæti, en á þeim sitja ungur maður og öldungur og talazt við. „Þegar yfir lýkur skalt þú ekki hafa fyr- ir því að flytja mig héðan. Þú býrð mér bara hinztu hvílu undir trénu þarna, það er alltof erfitt að flytja mig til byggða. Hér uppi á heiðinni á ég heima. Hvergi er svo gott að hvíla í gröf sinni eins og hérna“. Það er öldungurinn, sem mælir svo um leið og hann bendir út um glufu á kofa- veggnum og hönd hans titrar og varir hans bifast svo, að naumlega sést því að munn- urinn er að mestu hulinn miklu skeggi. Öldungurinn liggur kyrr, unz hann heyrir lambið kalla á móður sína, sem svarar með því að hrista bjölluna, svo að hljómur berst langt í kvöldkyrrðinni, en jafnframt svar- ar hún á sínu máli, þó að hún hafi munn- inn fullan af grængresi svo að röddin hljómar fölsk. En svarið er heyrt. Lambið kemur hopp- andi og hleypur þangað, sem það veit spenann sinn vera og hnippir í. Karri rop- ar í kjarrinu. Öldungurinn hefur lifnað við þegar þessar raddir bárust og hann spyr i Víst er þessi mynd í bókinni eins og hinar. Þetta gæti alveg eins verið íslenzk hjörð til að sjá, en þegar betur er að gáð er margt af fé þessu með langan dindil, og svipurinn á ýmsum kindum í hjörðinni er ekki úr okkar sauðahúsum. I

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.