Freyr - 15.11.1967, Side 21
ið, að „matvælakreppan hefði aldrei orðið, ef drátt-
arvélarnar hefðu komið tveim árum fyrr“ eins og
brezkur talsmaður komst að orði.
HELZTU VIÐBURÐIR f SÖGU FORD
OG FORDSON DRÁTTARVÉLA ERLENDIS
1907
Henry Ford smíðar sína fyyrstu henzíndrifnu drátt-
arvél, sem kölluð var „mótorplógurinn" af því að
hún gat dregið einskera plóg.
1907—16
Henry Ford smíðar á þessu tímabili meira en
fimmtíu mismunandi tilraunadráttarvélar í þeirri
von, að einhver reynist hæf til fjöldaframleiðslu.
1917
Brezka ríkisstjórnin fer þess á leit við Henry Ford,
að hann taki að sér smíði 7000 dráttarvéla fyrir
Bretland, þar sem hrýn nauðsyn var á aukinni mat-
vælaframleiðslu vegna hafnbannsins í fyrri heims-
styrjöldinni.
1917—28
Framleiðsla Fordson dráttarvéla í Bandaríkjunum
nemur 739.977 á þessum árum. Mörg þessara ára
smíðar verksmiðjan meira en þrjá fjórðu hluta allra
dráttarvéla þar í landi.
1933
Dagenham verksmiðjan í Bretlandi er reist til
fjöldaframleiðslu á Fordson dráttarvélum.
1945
„Fordson Major E 27“ sér dagsins ljós, en það var
fyrsta dráttarvélin eftir stríð, sem útbúin var með
þrítengibeizli og vökvakerfi.
1957
f Dagenham verksmiðjunni í Bretlandi rennur 100
þúsundasta dráttarvél verksmiðjunnar af færiband-
inu og jafnframt 500 þúsundasta diesel dráttarvélin
og milljónasta Fordson dráttarvél verksmiðjanna
allra.
1964
Brezka verksmiðjan er flutt frá Dagenham til Basil-
don í Essex og einnig er nafni dráttarvélanna breytt
í Ford úr Fordson. Dráttarvélarnar í heild eru
auknar og endurbættar og framleiddar í mörgum
stærðum og gerðum.
1966
Verksmiðjan í Basildon framleiðir rúmlega 55,000
dráttarvélar. Dráttarvélarnar eru framleiddar fyrir
ÖII lönd heims nema Efnahagsbandalagslöndin og
Bandaríkin.
HELZTU VIÐBURDIR f SÖGU FORD
OG FORDSON DRÁTTARVÉLA Á ÍSLANDI
Fyrsta dráttarvélin af Fordson gerð var flutt til
íslands árið 1920 og var það önnur hjóladráttarvél-
Fyrsta Ford-dráttarvélinn
in, sem flutt var til landsins. Sú fyrsta var af
„Avary" gerð og kom árið 1918. Það var Páll Stef-
ánsson frá Þverá, sem flutti þessa fystu dráttarvél
til Iandsins. Engin jarðvinnslutæki fylgdu dráttar-
vélinni og því var hún lítið reynd við jarðvinnslu
og kom því að Iitlum notum fyrst um sinn. Páll
gaf svo Halldóri Vilhjálmssyni skólastjóra á Hvann-
eyri dráttarvélina árið 1927 og var hún notuð þar
fram til ásins 1945.
Á áratugunum 1920—30 seldi Páll frá Þverá rúm-
lega 20 Fordson dráttarvélar og Sveinn Egilsson,
bifreiðasali nokkrar. Síðan Iá sala niðri fram til
ársins 1946 en þá voru fluttar til landsins 22 drátt-
arvélar frá Bretlandi. Árið 1949 var flutt inn fyrsta
dráttarvélin af gerðinni „Fordson 8N“, sem ætluð
var fyrir verkfæri, sem stjórnað er með vökva-
lyftu og tengd við dráttarvélina á þann hátt. Þetta
var eina vélin, sem flutt var inn það árið, en næstu
tvö árin voru fluttar inn 14 slíkar vélar til viðbótar.
Dráttarvélarnar voru ýmist á hjólbörðum eða
járnhjólum og að minnsta kosti 4 voru á hálfbelt-
um.
YFIRLIT UM INNFLUTNING FORD OG FORD-
SON DRÁTTARVÉLA TIL ÍSLANDS
1920—41
Fluttar eru inn 29 dráttarvélar, næstum allar á ár-
unum 1926—31 og kom þar til, að Búnaðarfélag ís-
lands veitti hreppahúnaðarfélögum styrki til drátt-
arvélakaupa, allt að 1250 kr. hverju félagi. Var fé-
lögunum því kleift að leggja í þessi vélakaup. A
fyrrnefndu tímabili, 1926—31, voru nær eingöngu
Fordson og International Harvester dráttarvélar,
sem fluttar voru inn og var Fordson fyrsta dráttar-
vélin, sem inn var flutt í nokkru magni.
Alls hafa nú verið fluttar til íslands 520 dráttar-
vélar af Ford- og Fordson-gerðum á árunum 1920
—1966.
F R E Y R
457