Freyr - 15.11.1967, Síða 23
Danjal Danjalsen og búnaðarmálastjóri ræða um hrútana, sem þeir voru að skoða á sýningunni á Berg-
hyl, en Joannes Patursson og Karsten Rassmussen hiýða á.
Djurhuus, er sæti á í landsstjórn (lögþingi)
Færeyja, en hann fer þar með málefni land-
búnaðarins, en aðrir í nefndinni voru:
Thomas Joensen, formaður Búnaðarfélags-
ins og kona hans, Danjal P. Danjalssen, for-
maður jarðráðsins, bóndi á Velbastad,
Joannes Patursson, varaformaður Búnaðar-
félagsins, bóndi í Kirkjubæ, Vilhjálmur
Patursson, stjórnaraðili í jarðráði, Oliver
Aaberg, forstjóri og Karsten Rasmussen,
skrifstofustjóri í jarðráði.
Hér var Færeyingunum veitt tækifæri
til að kynnast bændasamtökunum og at-
höfnum þeirra. Á vegum Sláturfélags Suð-
urlands skoðuðu þeir sláturhús um Suður-
land, heimsóttu Skálholt og fleira, og
marga aðra fyrirgreiðslu fengu þeir á veg-
um þeirrar stofnunar. Þeir heimsóttu Bún-
aðarfélag íslands, Stéttarsamband bænda,
Framleiðsluráð landbúnaðarins og fóru í
Borgarnes á vegum þess, skoðuðu hið nýja
tilraunasláturhús þar og dvöldu dagsstund
á Hvanneyri í sömu ferð. Þá skoðuðu þau
Mjólkurstöðina í Reykjavík og bóndabæi í
Mosfellssveit og Biskupstungum og víðar,
en í Mjólkurstöðinni vakti sérlega eftirtekt
þeirra rannsóknarstofan með tilheyrandi
heilbrigðis- og hreinlætiseftirliti og ráð-
stöfunum, sem að er unnið í sambandi við
hana.
Þá buðu bændur í Hrunamannahreppi
þessum frændum okkar í heimsókn, þar
sem þeim veittist tækifæri til að vera við-
staddir er fram fór hrútasýning í sveitinni.
Þá má og geta þess, að komið var við á
Teiknistofu landbúnaðarins og þar fengnir
uppdrættir að útihúsum þeim, sem nú eru
mest byggð. q
Hvað af því, sem séð var og skoðað, getur
orðið til fyrirmyndar í Færeyjum, er ekki
létt að segja fyrirfram. Aðstaða þar til bú-
F R E Y R
459