Freyr

Volume

Freyr - 15.11.1967, Page 25

Freyr - 15.11.1967, Page 25
Haustiö 1918 fór Vigfús til Danmerkur til fram- haldsnáms í búfræði við Landbúnaðarháskólann í Kaupmannahöfn og þaðan Iauk hann kandidats- prófi vorið 1920. Veturinn eftir dvaldi Vigfús í Reykjavík og hlýddi á fyrirlestra í Háskóla íslands. Á árinu 1921 dvaldi Vigfús nokkra mánuði í Eng- landi og Skotlandi og kynnti sér sauðfjárrækt. Haustið 1921 var Vigfús skipaður kennari við Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal, og því starfi gegndi hann til ársins 1963, er hann hætti vegna aldurs. Árið 1927 sigldi Vigfús til Noregs og fór námsferð um Norðurlönd það ár. Þá dvaldi hann nokkurn tíma við framhaldsnám í búvísindum og garðrækt við háskólann í Frankfurt am Main í Þýzkalandi á árunum 1928 og 1929. Með þessum námsferðum og námsdvölum erlendis sýndi Vigfús mikinn áhuga og elju við að efla hú- fræðiþekkingu sína. Þegar Vigfús var skipaður kennari á Hólum, var kennslustarfið aðeins vetrarstarf. Að sumrinu varð þá að finna önnur verkefni. Sumrin 1923 og 1924 starfaði Vigfús við mælingar á Flóaáveitusvæðinu, og á árunum 1926 til 1937 var hann trúnaðarmaður Búnaðarfélags fslands í Skagafjárðarsýslu og í Húnavatnssýslu 1925. Þetta starf var fólgið í því að fara á alla bæi í þessum byggðarlögum og taka út unnar jarðarbæt- ur. Jafnframt var bændum leiðbeint um eitt og annað viðvíkjandi búskap. A þessum árum voru ekki bílarnir, og ferðuðust trúnaðarmennirnir á hestum. Átti Vigfús góða hesta til þessara ferða- laga. Vigfús Helgason var þreklega vaxinn, tæplega í meðallagi hár, rammur að afli og ágætur íþrótta- maður á sínum yngri árum. Leiðir okkar Vigfúsar lágu fyrst saman fyrir 32 árum, eða haustið 1935. Veturinn 1935 til ’36 var snjóþungur í Hjaltadal, og var snjórinn óspart not- aður til skíðaferða, af skólapiltum og fleirum. Vig- fús tók þátt í þessari íþrótt sem öðrum. Hann var góður skíðamaður. knattspyrnumaður og ágætur leikfimismaður. í knattspyrnunni tók hann þátt mörg ár eftir að ég kom að Hólum. í Ieik og starfi var Vigfús glaður og hress. Hann tók virkan þátt í félagsskap nemenda, svo sem mál- fundum og skemmtunum. Stundum lék hann í leik- þáttum, sem se'ttir voru á svið og þótti það ávallt mikill fengur, því hann var góður leikari. Vigfús hafði mikið yndi af veiðiskap. Hann kunni vel að fara með skotvopn til tófu- eða fuglaveiða eða stöng til að veiða með lax og silung. Það liggur mikið kennslustarf eftir Vigfús Helga- son. Hann kenndi í 42 ár við Bændaskólann á Hól- um, að undanskildum þeim stuttu leyfum, sem hann fékk til utanferða og notaði til frekara náms. Hann kenndi margar námsgreinar á Hólum og ekki alltaf þær sömu allan sinn starfstíma. Hann var víðlesinn og fróður kennari. Hafði víða dvalið og gat notfært sér bækur á mörgum tungumálum. Stærðfræðingur var hann ágætur. Af nemendum var hann vinsæll, enda beitti hann ekki þeirri hörku, sem þarf til að fá alla nógu vel með. Þeir nemendur, sem voru áhugasamir og vildu læra, lærðu vel hjá Vigfúsi. Nemendahópurinn er orðinn stór eftir svo langan starfstíma. í sumum tilfellum tvær eða jafnvel þrjár kynslóðir. Þessi fjölmenni nemendahópur er dreifður um allt Iand, og mér er óhætt að fullyrða, að nemendur Vigfúsar minnast hans allir með þakklæti og vin- semd. Einn var sá þáttur í fari Vigfúsar, sem ég minnist með þakklæti, en það var lagni hans við að finna lausn á misklíðarefnum, sem stundum komu upp í skólanum, á þann hátt, að allir gátu vel við unað. Hann var tillögugóður og lagði gott til allra mála og dæmdi málefni og menn af hófsemi og sanngirni. Frá um 1940 hafði Vigfús smábúskap á Hólum. Bú sitt hirti hann af alúð. Garðrækt hans var til fyrir- myndar, enda var hann góður garðyrkjumaður og hafði ávallt fjölbreytta útigarðrækt. Allar skepnur hans voru vænar og afurðagóðar svo að af bar. Árið 1932 keypti Vigfús nýbýlið Varmahlíð í Seyluhreppi. Hann hóf sama ár þar allmikla garð- rækt í Reykjarhólsgarði. Garðrækt þessa rak Vig- fús í 6 ár og stundaði Iíka nokkurn annan búskap á jörðinni. Ymsar umbætur gerði Vigfús í Varma- hlíð, meðal annars reisti hann þar veitingaskála. Hann dvaldi þessi ár í Varmahlíð á sumrin. Um þetta leyti var rætt um héraðsskólabyggingu í Skagafirði. Varmahlíð var af mörgum talin til- valinn skólastaður, sökum legu sinnar og jarðhita. Vigfús var tregur að selja og gerði það ekki, fyrr en frumvarp um eignanámsheimild um Varmahlíð hafði verið lagt fram á Alþingi og vissa lá fyrir um, að það yrði samþykkt. Á Varmahlíð varð því þving- uð sala. í umbætur I Varmahlíð hafði Vigfús lagt mikið. Það fékk hann borgað, en ári seinna hófst heims- styrjöldin og verðbólga, sem gerði þessa peninga lítilsvirði. Það gætti alltaf nokkurra sárinda hjá Vigfúsi að hafa misst Varmahlíð með þeim hætti, sem það varð, þó hann ræddi fátt um. Árið 1935, 10. ágúst, kvæntist Vigfús eftirlifandi konu sinni, Elínu Helgu Helgadóttur frá Núpum í Fljótshverfi í Vestur-Skaftafellssýslu, hinni ágæt- ustu konu, sem alltaf kom fram til góðs á heimil- inu. Þau eignuðust 8 börn, eru 7 þeirra á lífi, gott og mannvænlegt fólk. Með Vigfúsi Helgasyni er góður maður genginn. Kristján Karlsson. F R E Y R 461

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.