Freyr - 15.11.1967, Side 27
Á síðastliðnu sumri var reist stálgrindahús
við Náttúrulækningaheimilið í Hveragerði.
Þetta hús var framleitt hjá vélsmiðjunni
Héðni í Reykjavík. Húsið er 5.86x15 m og
kostaði kr. 98 þúsund. Það er klætt báru-
járni og báruplast gluggar eru í gafli og
á hliðum.
Þeir hjá Héðni hafa fullan hug á, að
hefja fjöldaframleiðslu á stálgrindahúsum,
sem fyrst og fremst yrði notuð sem verk-
færageymslur.
Stálgrindahúsið við heilsuhæli Náttúrulækninga-
félagsins í Hveragerði.
í þeim vélum, sem þeir hafa nú, geta þeir
smíðað hús, sem eru 9 m breið, lengdin fer
eftir óskum kaupandans. Miðað við ákveðna
stærð, sem er 12.0 mx5.86 m, er verðið kr.
86.500, en hver 3ja m viðbót kostar 12.500,00
kr., þá er allt bárujárn, plast í gluggum,
festingar og hurð, innifalið í verðinu. Hægt
er að velja um, hvort tekinn eru fúavarinn
langbönd úr tré eða járn-langbönd. Talið
er, að bændur muni fremur kjósa tré-lang-
böndin, þar sem það yrði auðveldara fyrir
þá sjálfa að reisa húsin þannig. En ákveð-
ið er, að þeir, sem kaupa stálgrindahús, geti
fengið vana menn hjá fyrirtækinu til að
reisa þau. Það tók 3 menn tvo daga að reisa
fyrrnefnt hús í Hveragerði.
Hér á landi hefur enn sem komið er, lít-
ið verið byggt af stálgrindahúsum, en með
fjöldaframleiðslu og mikilli sölu, lækkar
verðið að sjálfsögðu.
Væri það ekki athugandi fyrir félög
bændanna úti á landsbyggðinni, að leita
tilboða í ákveðinn fjölda húsa?
Þetta hefur gefizt vel í kaupum á sjón-
varpstækjum, því ekki að gera slíkt sameig-
inlega á fleiri sviðum?
F R E Y R
463