Freyr - 15.11.1967, Side 32
mOj_Ar
Yfirnefnd
Eins og allir bændur muna var og er til hin svo-
nefnda sex manna nefnd, er reiknar árlega verðlag
búvöru. Ef ekki verður samkomulag milli fulltrúa
framleiðenda og neytenda í nefndinni var málinu
áður vísað til yfirnefndar, þar sem hagstofustjóri
var oddamaður, en sinn fulltrúi frá hvorum, fram-
leiðendum og neytendum, voru meðdómendur.
Með breytingu á þeim lagafyrirmælum, sem unn-
ið var eftir, er nú svo fyrir mælt, að núverandi sex
manna nefnd kjósi sjálf yfirnefnd, er skeri úr, þegar
ekki verður samkomulag um verðlagið. Þetta hefur
skeð að þessu sinni og í yfirnefnd eru kjörnir: Há-
kon Guðmundsson, borgardómari, Árni Yilhjálms-
son, prófessor og Ingi Tryggvason, bóndi á Kárhóli
í S.-Þingeyjarsýslu. Var yfirnefnd þessi að starfi
um það leyti, sem þetta hefti FREYs fór í prentun.
Uppeldi nútímans
„Hvað á maður eiginlega að gera, þegar krakk-
arnir fara í sorptunnuna, taka þar dót og drasl, sem
þau svo hera inn í stofur og leika sér að því þar?“
Svar: Auðvitað segja þeim að bera það út í tunn-
una aftur eða að minnsta kosti að leika sér að því
úti.
„En ef þau eru nú ófáanieg tii þess?“
Svar: Þá er eiginlega ekki annað að gera en að
sætta sig við það.
„En hvað ef krakkarnir koma þjótandi með exi,
Iemja útvarpstækið og eyðileggja það?“
Svar: Það er ekkert að gera annað en að sætta
sig við það, því að svona lagað fylgir því að eiga
börn.
„Og hvað ef Nonni litli er beðinn að skreppa í
búð og honum fengnir aurar til að kaupa fyrir, en
Nonni svarar stuttlega: „Ég fer ekkert, þú getur
farið“. Hvað á þá að gera?“
Svar: Þá verður mamman bara að fara sjálf og
kaupa það, sem hana vanhagar um til heimilisins.
Rússnesk sláturhús
Dönsk sendinefnd hefur nýlega verið í Rússlandi
til þess að kynna sér slátrun og vinnslu sláturaf-
urða þar í landi. Þegar nefndin kom heim aftur,
hafði hún sitt af hverju að segja í fréttum, sumt
nýstárlegt, annað hversdagslegt. Um tæknibúnað
sagði nefndin, að hann væri nákvæmlega eins og
sá, er notaður hafi verið og notaður er um Norður-
Evrópu, sumt af nýrri gerð, annað gamalt, rétt eins
og sláturhúsin eru sum ný, önnur eru gömul og
verða endurnýjuð.
í öllu landinu eru talin vera um 800 sláturhús,
og er því auðskilið, að þau eru stór, en víða eru í
sambandi við þau vinnslustöðvar, sem gjörnýta all-
ar afurðir, enda er markaður ævinlega nógur og
góður í landinu fyrir þessar vörur.
Eitt sérlega eftirtektarvert hafði nefndin að segja
og það var um menntun sláturhúsastarfsmanna,
bæði verkfræðinga og tæknifræðinga. Hún er til
sannrar fyrirmyndar, sögðu þeir, og allir verkamenn
virtust kunna mjög vel til allra starfa.
Harðviðarhurðir
Á síðari árum hefur það orðið að reglu, að harðvið-
arhurðir eru notaðar í stað þeirra, sem áður voru
og oft þurfti að mála. Harðviðarhurðir (spónlagðar)
eru lítið dýrari en aðrar og er miklu léttara að
halda þeim við en hinum, er mála þarf. En auðvit-
að geta harðviðarhurðir skemmst.
Sænska málgagnið „Rád og Rön“ birti fyrir
nokkru leiðarvísi í viðgerð harðviðarhurða, sem í
styttu máli hljóðar þannig:
Venjulega er nóg að viðhalda harðviðarhurðum
með því að nudda þær með tekkolíu og síðan með
hreinum klút. Hurðirnar verða ekki gljáandi frem-
ur en áður við þessa meðferð, en tekkolían hreinsar
og veitir spónlaginu eiginleika til meira viðnáms
en ella, og svo jafnar hún smá-rispur.
Hafi hurð fengið skrámu, t. d. af skó eða öðru, er
oft hægt að bæta þann galla með því að slípa með
stálull af fínustu gerð í lengdarstefnu viðarins og
nudda vel með tekkolíuvættum klút. En munið að
slípa ævinlega í lengdarstefnu viðarins.
A miðri nóttu
Hann var glaður og kátur labbandi eftir götunni
þegar hann mætti lögregluþjóni sem spurði:
— Hvert ætlar þú nú, væni minn?
— Ég er á leiðinni að hlusta á prédikun, var
svarið.
— Varla á þessum tíma sólarhringsins, nú er lok-
að alls staðar.
— Ekki heima hjá kerlu minni, sagði sá káti.
Fallegar kýr
Á dýralæknaþingi í Macuto, stutt frá Caracas í
Venezuela, var það staðhæft, að fegurð kúnna hefði
mikil áhrif á ástalíf nautpenings og viss dr. K. J.
Friss tjáði, að afkvæmin yrðu því betri, sem kýrnar
væru fegurri. Fallegar kýr verka á nautin eins og
segull, sagði hann.
— Hvað þá um sæðingamennina? var spurt.
468
F R E Y R