Feykir - 21.08.2019, Qupperneq 4
Atvinna í boði!
KÞ Lagnir á Sauðárkróki óska
eftir starfsmanni í 100% stöðu
– langtímaráðning í boði fyrir
réttan aðila. Um er að ræða
vinnu við almenn störf er lúta
að pípulagningum. Reynsla af
pípulagningum kostur en eru þó
allar umsóknir teknar til greina.
Fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Áhugasamir hafi samband við
Kára í síma 896-1310
Eftir minni bestu vitund er
Kaupfélag Skagfirðinga í eigu
bænda og annarra íbúa
Skagafjarðar. Undirritaður,
sem félagi og þá eðlilega einn
af eigendum KS, óskar eftir
því að fá birtar hér í Feyki,
afkomu- og rekstrartölur fyrir
einstaka deildir Kaupfélagsins
síðustu tíu árin. Ég tel það
útilokað að stjórn og
kaupfélagsstjóra sé stætt á
því að neita félaga um slíkar
tölur.
Einnig væri gaman að
skyggnast aðeins í launa-
greiðslumál stjórnar og
yfirmanna, nú er að verða sú
krafa uppi í þjóðfélaginu að
allt sé „gegnsætt“ og mitt mat
er að þetta ætti að vera
opinbert, unnið úr launa-
bókhaldi félagsins, sko með
öllum „aukagreiðslum og
hlunnindum“. Það er bara
þannig í dag, að þessi mál eru
ekki lengur algjörlega
einkamál yfirmanna. Ég
myndi telja að okkur félags-
mönnum ættu að vera ÖLL
ÞESSI MÁL VEL KUNNUG
og við vel upplýst um þessi
mál.
Ég veit að KS bregst fljótt og
vel við bón minni og margra
annarra félagsmanna og
svarar mér, og okkur, hér í
Feyki „frjálsu og óháðu“
fréttablaði (í meirihlutaeigu
KS), vilji okkar er ótvíræður,
ekki nema það þurfi að koma
til undirskriftasöfnun á meðal
félagsmanna til að ná þessu
fram. Ég er viss um að einhver
er til í það.
Ég held að kvikmyndin
„Héraðið“ hafi vakið marga til
umhugsunar um þessi mál og
vil ég þakka Grími Hákonar-
syni og aðstandendum mynd-
arinnar fyrir gott, athyglisvert
og fróðlegt verk.
Með bestu kveðju.
Helgi Dagur Gunnarsson.
Opið bréf til kaupfélagsstjóra og
stjórnar Kaupfélags Skagfirðinga
AÐSENT
Helgi Dagur Gunnarsson. MYND: AÐSEND
Spæjaraskólann, sem er leikur fyrir
9-12 ára krakka, er hægt að fá
inngöngu í á netinu á slóðinni
radgatur.is. Þar er hægt að gerast
áskrifandi að ráðgátum eða sögum
sem aðalpersónurnar, Klara Sif og Atli
Pawel, lenda í. Aðstæður eru ætíð
dularfullar og þurfa þau aðstoð
áskrifenda til að leysa gátuna. Í
hverjum kassa má finna inngang að
sögu kassans og nokkrar þrautir og
verkefni sem þarf að leysa til að
komast að lausn gátunnar.
Á bak við Spæjaraskólann stendur
þriggja manna teymi sem lengi hefur
haft áhuga á alls konar ráðgátum.
Guðmundur Valur Viðarsson er
grafískur hönnuður og sér um alla
hönnun efnis fyrir Spæjaraskólann.
Hann hefur áður verið viðriðinn
afþreyingu fyrir krakka, en hann var
einn af stofnendum Radiant Games og
var yfirhönnuður og teiknari
tölvuleiksins Box Island, sem hefur
það að markmiði að þjálfa rökhugsun
barna í gegnum forritunarleik. Hefur
leikurinn fengið fjölda viðurkenninga.
Guðmundur er fæddur og uppalinn í
uppsveitum Árnessýslu, en býr í dag í
Reykjavík með tveimur dætrum
sínum.
Kristín Ólafsdóttir er með BA-próf í
lögfræði, og hefur starfað síðustu sex
ár í opinberri stjórnsýslu, auk þess að
reka sitt eigið fyrirtæki, Fjölnota.
Kristín, sem er framkvæmdastjóri
Spæjaraskólans, er fædd og uppalin á
Hvammstanga, þar sem hún býr með
manni og tveimur börnum.
Lína Rut Olgeirsdóttir er með
meistaragráðu í lögfræði og lög-
gildingu sem fasteignasali, en hún
hefur starfað í fasteignasölu síðustu
fimm ár, auk þess að reka sitt eigið
fyrirtæki, Fjölnota. Lína sér um handrit
ráðgátukassanna og þrautirnar. Hún er
uppalin á Hvammstanga, en býr í dag á
Akureyri ásamt eiginmanni og tveimur
dætrum.
„Verandi foreldrar höfum við einnig
brennandi áhuga á því að veita börnum
okkar þroskandi og krefjandi
afþreyingarefni sem hæfir þeim, þar
sem þau eru ekki límd við skjá,“ segir
Lína Rut. „Hugmyndin á bak við
Spæjaraskólann er í stuttu máli sú að
veita krökkum skemmtilegt
afþreyingarefni, sem er á sama tíma
áskorun. Efnið er samsett þannig að
krakkarnir verða að leggja sitt af
mörkum til að leysa gátuna, því annars
gengur dæmið ekki upp.
Spæjaraskólinn gefur krökkum
tækifæri til að upplifa sig sem hluta af
teyminu og að þau geri gagn við lausn
gátunnar.“
Ráðgátur og rökvísi
Lína segir ráðgátukassa vinsæla
afþreyingu erlendis, en þar er þeim
einkum beint að fullorðnum.
„Ráðgátukassar er skemmtileg leið til
að þroska ályktunarhæfni, lífsleikni og
rökhugsun, auk þess að læra að meta
upplýsingar. Sögurnar í kössunum
byggja á samfélagi okkar og sögu, og
með því vonumst við til að vekja áhuga
krakka á samfélagi okkar og sögu.“
Spæjaraskólinn sendir út kassa sex
sinnum á ári. Efni kassans er skipt í
umslög, en aðeins má skoða laus gögn
í kassanum þar til leyfi fæst til að opna
fyrsta umslagið og svo koll af kolli.
Sumar lausnir þarf að slá inn á vefsíðu
til að vita hvort maður hafi leyst
þrautina á réttan hátt, en þar verður
jafnframt hægt að nálgast vísbendingar.
Í hverjum kassa felst afþreying sem er á
sama tíma áskorun og gefur krökkum
tækifæri til að upplifa sig sem hluta af
teyminu. Hver kassi á að veita u.þ.b.
tvær klukkustundir af afþreyingu.
„Ráðgátukassar er skemmtileg leið til
að æfa og þroska ályktunarhæfni,
lífsleikni og rökhugsun. Til að aðstoða
við að uppfylla þessi markmið höfum
við fengið til aðstoðar við okkur
kennara, íslenskufræðing, rithöfunda,
o.fl. Spæjaraskólinn stefnir á að gefa út
fyrsta kassann í september, en við
hvetjum þá sem hafa áhuga á að fylgjast
með verkefninu til að fylgja okkur á
Facebooksíðunni Spæjaraskólinn, en
svo má skrá sig á póstlista á www.
radgatur.is. /PF
Ráðgátur fyrir 9-12 ára krakka
SPÆJARASKÓLINN TEKUR TIL STARFA
Lína Rut Olgeirsdóttir, Guðmundur Valur Viðarsson og Kristín Ólafsdóttir standa að baki Spæjaraskólans sem
stefnir á útgáfu fyrsta ráðgátukassans í september. MYND AÐSEND
4 31/2019