Feykir - 21.08.2019, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455
7176 og netfangið feykir@feykir.is
31
TBL
21. ágúst 2019 39. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Sveitasæla 2019
Alltaf gaman að sjá húsdýrin
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, setti Sveitasælu 2019
formlega. Hann rakti sögu Dísu í dalakofanum sem sungið hefur verið um,
fyrst þegar hún bjó í dalnum forðum daga til þeirrar Dísu sem þeysist um
heiminn í dag. Þannig breytist tíminn og landbúnaðurinn með. Myndir: PF.
Á laugardaginn var haldin heljarmikil landbúnaðarsýning
í reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki, Sveitasæla
2019. Þar var margt til skemmtunar og fróðleiks og létu
gestir sig ekki vanta. Forseti Íslands, hr. Guðni Th.
Jóhannesson, setti dagskrána formlega og Guðrún
Tryggvadóttir, formaður Bændasamtaka Íslands, ávarpaði
gesti.
Það vakti nokkra kátínu meðal þeirra er á hlustuðu að
baulað var á forsetann er hann flutti setningaræðu sína. Þar
var á ferðinni ein kýrin á sýningunni og augljóslega
sammála forsetanum því baulið var glaðlegt og létt. Ýmislegt
var í boði fyrir börnin sem ætíð hafa gaman af að sjá og
heyra í húsdýrunum. Útsendari Feykis mætti með
myndavélina og reyndi að fanga stemninguna. /PF
www.skagafjordur.is
Auglýsing um Skipulag í
Sveitarfélaginu Skagafirði
Deiliskipulag – Tengivirki við Varmahlíð.
Tillaga að deiliskipulagi tengivirkis í Varmahlíð hefur fengið
meðferð í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga
nr. 123/2010. Tengivirkið er á lóðinni Reykjarhóll lóð
landnúmer 146062. Lóðin er samkvæmt aðalskipulagi
iðnaðarlóð merkt I-5.2.
Deiliskipulagið er fyrir nýtt 66 kV tengivirki sem mun taka
við hlutverki 66 kV hluta tengivirkis á lóðinni sem lagt
verður niður í kjölfarið.
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hefur samþykkt að
auglýsa deiliskipulagstillöguna í samræmi við 1. mgr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan liggur frammi í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar
frá og með þriðjudegi 20. ágúst 2019 til og með 2. október
2019. Þá verður deiliskipulagstillagan aðgengileg á heimasíðu
Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Athugasemdir eða ábendingar við deiliskipulagstillöguna
skulu vera skriflegar. Þær skulu berast í síðasta lagi
2. október 2019 til skipulags- og byggingarfulltrúa í
Ráðhúsið Skagfirðingabraut 17-19 eða
á netfangið: jobygg@skagafjordur.is.
Sauðárkróki 9. ágúst 2019
Jón Örn Berndsen
Skipulags- og byggingarfulltrúi