Læknablaðið - maí 2020, Blaðsíða 23
LÆKNAblaðið 2020/106 247
S J Ú K R A T I L F E L L I
Inngangur
Síðastliðna mánuði hefur heimsfaraldur með nýrri kórónuveiru,
(Severe Acute Respiratory Syndrome Coronavirus-2, SARS-CoV-2) lagt
tugi þúsunda að velli og valdið gríðarlegum skaða. Sjúkdómur-
inn sem veiran veldur er kallaður kórónuveirusjúkdómur, eða
COVID-19 á ensku (coronavirus disease 2019). SARS-CoV-2 er af
flokki betakórónuveira (betacoronavirus).1 Meginsmitleið er um
öndunarveg þar sem veiran hefur innrás sína í þekjuvef meðal
annars í gegnum ACE-2 viðtaka (angiotensin converting enzyme 2).2
Faraldurinn hófst í borginni Wuhan í Hubei-héraði í Kína síðla
árs 2019 og hefur síðan breiðst hratt um heiminn. Eins og annars
staðar hefur faraldurinn leikið almenning hér á landi grátt, auk
verulegs efnahagslegs skaða fyrir íslenskt samfélag sem enn sér
ekki fyrir endann á. Samhliða þessu hefur þurft að umturna
skipulagi og framkvæmd heilbrigðisþjónustu í landinu. Þegar
þetta er skrifað hafa tæplega 1800 staðfest smit verið greind hér-
lendis, samkomubann er enn í gildi, auk annarra samfélagslegra
takmarkana með víðtæk áhrif á starfsemi fyrirtækja og stofnana.
Stofnuð hefur verið sérstök COVID-göngudeild á Landspítala sem
hefur sinnt hátt í 1800 manns. Þar af hafa nálægt 100 einstaklingar
verið lagðir inn á spítalann, 13 farið í öndunarvél og 10 eru látin.
Enn er mikil óvissa um bestu meðferð þessarar sýkingar og engin
gagnreynd lyfjameðferð í boði, en margs konar klínískar prófanir
í gangi víðs vegar um heiminn.
Sjúkratilfelli
Rétt rúmlega fimmtugur karlmaður sem hafði verið á ferðalagi er-
lendis veiktist með flensulíkum einkennum við komuna til lands-
Fyrsta meðferð með tocilizumab
við COVID-19 hérlendis
– sjúkratilfelli
Á G R I P
Rúmlega fimmtugur karlmaður sem hafði verið á ferðalagi erlendis
veiktist við komuna til landsins með flensulíkum einkennum og
greindist með COVID-19. Nokkrum dögum síðar versnandi honum
af öndunarfæraeinkennum og lagðist inn á Landspítala. Hann
reyndist vera súrefnisháður og með útbreiddar íferðir í lungum.
Eftir innlögn fékk hann versnandi öndunarbilun og var fluttur á
gjörgæsludeild þar sem hann var meðal annars meðhöndlaður með
tocilizumab (IL-6 hemill). Hann sýndi batamerki í kjölfarið og þurfti
ekki að fara í öndunarvél.
Aron Hjalti Björnsson1
Þorbjörg Ólafsdóttir2
Katrín María Þormar3
Már Kristjánsson4
Anna Sesselja Þórisdóttir4
Björn Rúnar Lúðvíksson5,6
Sigurður Guðmundsson4,6
Magnús Gottfreðsson4,6
Höfundar eru öll læknar.
1Lyflækningasviði Landspítala, 2röntgendeild, 3svæfinga- og gjörgæsludeild,
4smitsjúkdómadeild, 5ónæmisfræðideild Landspítala, 6læknadeild Háskóla
Íslands.
Fyrirspurnum svarar Aron Hjalti Björnsson, aron_hjalti@icloud.com
Höfundar fengu samþykki sjúklings fyrir þessari umfjöllun og birtingu.
ins og fór strax í sjálfskipaða sóttkví. Maðurinn var í yfirþyngd
(BMI 32, líkamsþyngdarstuðull, Body Mass Index) og með fyrri
sögu um barnaastma og háþrýsting sem var vel meðhöndlaður
með lósartan, hýdróklórtíazíði og amlódipíni. Veikindin byrjuðu
með vægum hita, hálssærindum, þurrum hósta og hlustarverk.
Daginn eftir komuna til landsins reyndist nefkoksstrok jákvætt
fyrir SARS-CoV-2.
Í fyrstu var manninum fylgt eftir með reglulegum símtölum frá
COVID-teymi Landspítala. Á 8. degi veikinda var hann kominn
með sótthita, mikinn hósta, máttleysi og mæddist við gang. Næstu
daga var hann að mestu hitalaus en með þrálátan hósta, lystar-
leysi, ógleði, uppköst og niðurgang. Á 14. degi hækkaði hitinn og
hann fann fyrir takverk og þyngslum fyrir brjósti, höfuðverk og
þrýstingi út í eyru. Einnig var hóstinn nú með uppgangi. Hann
var lagður inn á smitsjúkdómadeild Landspítala til frekari rann-
sókna, greiningar og meðferðar.
Við komu á sjúkrahús var maðurinn veikindalegur, talmóður
og með mikinn hósta. Hann var með 38°C hita og súrefnismett-
un var 88% á andrúmslofti en fór upp í 95% á 4 L/mín súrefnis í
nös. Öndunartíðni var 20-22/mínútur en önnur lífsmörk voru inn-
an eðlilegra marka. Við lungnahlustun heyrðist fíngert brak yfir
báðum lungum, mest neðarlega. Að öðru leyti var líkamsskoðun
eðlileg. Blóðrannsókn (tafla I) sýndi hækkuð hvít blóðkorn, CRP
(>200 mg/L) og ferritín (>2000 μg/L), lengdar blæðingarprufur
og saltbrenglanir. Fengin var tölvusneiðmynd af brjóstholi sem
sýndi dreifðar útlægar þéttingar í öllum lungnablöðum; bæði
hélubreytingar (ground glass) og íferðir í lungnablöðrum (alveolar
consolidation) með loftberkjukortum (air bronchogram), sem voru
taldar geta samrýmst COVID-19 lungnabólgu (mynd 1). Vegna
möguleika á bakteríuyfirsýkingu var hafin meðferð með ceftrí-
axóni í æð og azitrómýsíni um munn. Jafnframt var hafin 5
daga meðferð með hýdroxýklórókíni um munn sem meðferð við
COVID-19. Daginn eftir var sjúklingur með allt að 40°C hita, slæm
hóstaköst og með mikla þreytu og þróttleysi. Hann var með versn-
andi hypoxíska öndunarbilun með súrefnismettun 88% á 5-6 L/